Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 13
Ingrid Kuhlman sýnir heimildarmynd
sína Hamingjan sanna! á Lífsstíls-
kaffi í Borgarbókasafninu Gerðu-
bergi kl. 20 í kvöld, miðvikudaginn
2. nóvember. Í myndinni ræðir Ingrid
við þrettán einstaklinga á aldrinum
70-91 árs um það hvernig skapa
megi sér hamingjuríka tilveru. Við-
tölin veita innsýn í það sem viðmæl-
endur gera í dag til að auka vellíðan
sína.
Hugtakið hamingja hefur verið
viðfangsefni heimspekinga í alda-
raðir. Fræðimenn á sviði félags-
vísinda hafa lagt sig fram í seinni
tíð til að finna hina sönnu uppskrift
að hamingjuríku lífi. Hamingjan hef-
ur einnig verið mörgum söng-
skáldum og rithöfundum hugleikin
og verið ljóðrænt viðfangsefni
söngva, ljóða og skáldsagna.
Rannsóknir í jákvæðri sálfræði
hafa sýnt að fólk upplifir oft mestu
hamingjuna eftir að það hættir að
vinna og því ætti margt að vera
hægt að læra af eldri borgurum.
Ingrid Kuhlman er þjálfari og ráð-
gjafi og jafnframt framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar. Hún er með dip-
lóma á meistarastigi í jákvæðri sál-
fræði og diplóma í praktísku kvik-
myndanámi frá Met Film School í
London. Í heimildarmyndinni sam-
einar hún áhuga sinn á þessum við-
fangsefnum. Ingrid hefur skrifað
ótal greinar í erlend og íslensk
tímarit, m.a. um fræðslumál, sjálfs-
traust, samskipti, tímastjórnun,
markmiðasetningu, seiglu, hamingju
og streitu.
Aðgangur ókeypis – allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir!
Lífsstílskaffi í Gerðubergi - Hamingjan sanna!
Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi.
Hvernig er hægt að skapa sér
hamingjuríka tilveru?
varð lítið ágengt og tóku því til
sinna ráða.
2.000 konur 18-95 ára
Notendum vefsins er boðið að
kanna á einkar myndrænan hátt
með hvaða hætti ólíkar konur upp-
lifa kynferðislegan unað samkvæmt
nýjustu rannsóknum. „Hressandi,
opinská og heiðarleg myndbönd og
leiðir til að prófa hverja aðferð,
beint á snertiskjánum,“ eins og þar
stendur. Innihaldið er byggt á
rannsóknum sem tvö þúsund konur
á aldrinum 18 til 95 ára tóku þátt í.
Fyrst voru tekin djúpviðtöl við ríf-
lega eitt þúsund konur sem fylgt
var eftir með umfangsmikilli rann-
sókn á kynlífsunaði jafnmargra
kvenna í samstarfi við Indiana-
háskólann og Kinsey-stofnunina.
Enginn kinnroði, engin skömm
eru leiðarstef stofnendanna. Vakin
er sérstök athygli á að konurnar
sem koma fram í myndböndunum
séu ekki leikkonur, heldur raun-
verulegar konur víðsvegar í Banda-
ríkjunum, í mismunandi störfum og
með ólíkan bakgrunn og lífsstíl.
Þær deili reynslusögum sínum
tæpitungulaust og sýni og lýsi í
senn aðferðum sem gagnast þeim
hvað best til fullnægingar. Öðrum
til heilla og eftirbreytni væntan-
lega.
Notendur fá tækifæri til að
æfa sig með því að snerta gagn-
virkar myndir af kynfærum
kvenna, en myndirnar eru forrit-
aðar með mismunandi hætti eftir
lýsingu einstakra kvenna á snert-
ingu, strokum og gælum sem þeim
hugnast best. Um leið og notand-
inn snertir myndirnar fær hann
munnlegar leiðbeiningar á borð við
þessar: „Ókei, ókei … bíddu í smá,
aðeins meira í hringi, þetta er
betra … örlítið neðar.“ Jafnvel Oh
my God, yes, yes … YES!, svona
rétt í lokin.
Aðgangur bannaður
yngri en átján ára
Með því að vafra á OMGYES-
.com má fræðast um býsna margt
varðandi tilurð vefsins og tilgang,
skoða myndir og fá svör við ýms-
um mikilvægum spurningum án
þess að kaupa áskrift. Raunar er
ekki boðið upp á hefðbundna
áskrift heldur greiðir notandinn
aðeins einu sinni fyrir aðgang,
öðruvísi kemst hann ekki í beina
snertingu við vefsíðuna. Slíkur að-
gangur virkar líkt og þegar hann
kaupir sér bók sem hann hefur
innan seilingar uppi í bókahillu og
grípur til eftir hentugleikum. Þess
má geta að aðgangur er stranglega
bannaður yngri en átján ára.
OMGYES-vefurinn fékk
óvænta og ókeypis auglýsingu á
dögunum þegar leikkonan og
stjarnan í Harry Potter-mynd-
unum, Emma Watson, upplýsti í
spjallþætti við kvenréttindakonuna
Gloriu Steinem að hún hefði keypt
sér aðgang. „Endilega skoðið vef-
inn. Áskriftin er ekki ókeypis, en
vel þess virði,“ sagði hún og fór
um hann fögrum orðum.
Sjálfir segja aðstandendur
vefsins að tabúið í umræðunni hafi
ekki hjálpað neinum, fólk þyrsti í
vitneskju um öll þau blæbrigði sem
skipt geta sköpum þegar kynferð-
islegur unaður kvenna er annars
vegar. OMGYES.com sé ætlaður
báðum kynjum, einstaklingum og
pörum, eða einfaldlega öllum þeim
sem vilja gera gott kynlíf ennþá
betra. Enda séu pör sem sífellt
leiti nýrra leiða til að bæta kynlífið
fimm sinnum líklegri til að vera í
hamingjusömu sambandi og tólf
sinnum líklegra til að vera kyn-
ferðislega fullnægð.
Könnun Áskrifendum býðst að fara í myndrænan könnunarleiðangur.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is
Landvættaáskorunin 2017
Ferðafélag Íslands kynnir aftur FÍ Landvætti sem stunda
náttúruæfingar saman með það að markmiði að ljúka
Landvættaáskoruninni á næsta ári.
Hópstjórar eru Róbert Marshall og Brynhildur Ólafsdóttir.
Fossavatnsgangan
50 km skíðaganga
Blálónsþrautin
60 km fjallahjól
Urriðavatnssundið
2,5 km útisund
Jökulsárhlaup
33 km fjallahlaup
Vilt þú verða Landvættur?
Náttúruæfingar í 10 mánuði Kynningar-
fundur
fimmtudaginn3. nóvember kl. 20í sal FÍ, Mörkinni 6.
Allir velkomnir.
Fyrsta Bókakonfekt Forlagsins verður
kl. 20 í kvöld, miðvikudag 2. nóv-
ember, á Café Rosenberg. Eftirtaldir
rithöfundar lesa úr bókum sínum:
Sigurður Pálsson – Ljóð muna rödd,
Inga Mekkin Beck – Skóladraugurinn,
Einar Kárason – Passíusálmarnir,
Sverrir Norland – Fyrir allra augum,
Guðmundur Andri Thorsson – Hæg
breytileg átt, Margrét Tryggvadóttir
og Linda Ólafsson – Íslandsbók
barnanna, Óskar Magnússon – Verj-
andinn og Hildur Knútsdóttir – Vetr-
arhörkur.
Upplestrarkvöldin eru orðin fastur
liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks
og hafa lagst vel í fólk.
Bækur höfunda eru seldar á staðn-
um og vænta má að þeir taki vel í að
árita þær.
Endilega …
… fáið ykkur bókakonfekt