Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Það vefst fyrir mörgum að skilja hvað
er svona flókið fyrir Guðna Th. Jó-
hannesson, forseta Ísland, að afhenda
augljósum sigurvegara kosninganna
nú um helgina, Bjarna Benediktssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, stjórn-
armyndunarumboðið.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 29% at-
kvæða og 21 þingmann, sem er þriðj-
ungur þingmanna á Alþingi. Sjálf-
stæðisflokkurinn er með þrefaldan
þingmannafjölda Viðreisnar, en
Benedikt Jóhannesson, formaður
flokksins, falaðist eftir því við forset-
ann í fyrradag að hann fengi umboð til
stjórnarmyndunar. Það gerði Katrín
Jakobsdóttir, formaður VG, einnig,
en þingmannafjöldi VG er innan við
helmingur af þingmannafjölda Sjálf-
stæðisflokksins, eða 10 þingmenn.
Hvað er forsetinn að hugsa?
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins
sagði í gær: „Ég skil ekki hvað forset-
inn er að hugsa. Er hann hugsanlega
og meðvitað að leggja drög að því að
hér verði stjórnarkreppa? Mér finnst
það áleitin spurning, því í stað þess að
gera það sem augljóst er, að afhenda
Bjarna umboðið, dregur hann lapp-
irnar, án þess að nokkur augljós skýr-
ing sé á því.“
Hann bendir á að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé óumdeilanlega sigurvegari
kosninganna og hans þingmenn séu
fyrstu þingmenn allra kjördæma.
Hvað varðar stjórnarmyndunar-
möguleika, þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn myndi leiða, hafa menn helst
bent á samstarf flokksins við Viðreisn
og Framsóknarflokk. Það þarf þó alls
ekki að verða einfalt að mynda slíka
stjórn, því mikið ber á milli Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks annars
vegar og Viðreisnar hinsvegar, í þýð-
ingarmiklum málaflokkum. Þar hafa
menn bent á afstöðuna til ESB og þess
hvort ráðast eigi í þjóðaratkvæða-
greiðslu um að taka upp aðildarvið-
ræður við Evrópusambandið á nýjan
leik. Þá er bent á mjög ólíka afstöðu
flokkanna til stjórnkerfis sjávarút-
vegsins. Slík ríkisstjórn hefði traustan
þingmeirihluta, eða 36 þingmenn.
Geta þeir unnið með VG?
Annar möguleiki sem ýmsir virðast
spenntir fyrir væri samstarf Sjálf-
stæðisflokks, Vinstri grænna og
Framsóknarflokks, sem hefði enn
traustari þingmeirihluta eða 39 þing-
menn.
En þar eru vissulega ýmis ljón í
veginum og fullyrt er að Katrín Jak-
obsdóttir hafi ekki kjark til þess að ljá
máls á slíku samstarfi, enda eru Svan-
dís Svavarsdóttir og fleiri VG þing-
menn sagðir hafna slíkum hugmynd-
um alfarið. Þó er fullyrt að Stein-
grímur J. Sigfússon, oddviti VG í
Norðausturkjördæmi og einhverjir
aðrir VG þingmenn, gætu vel hugsað
sér að kanna til þrautar hvort mögu-
legt væri að reyna slíkt stjórnarsam-
starf.
Frekja eða valdagræðgi
Þingmenn sem rætt var við í gær
töldu að Benedikt Jóhannesson, for-
maður Viðreisnar, hefði sýnt af sér
taumlausa valdagræðgi þegar hann
lagði það til við forsetann að hann
fengi umboð til stjórnarmyndunar.
Það væri í besta falli ósmekkleg
frekja hjá nýgræðingi á Alþingi í sjö
manna þingflokki að ætlast til þess að
fá umboðið og í versta falli valda-
græðgi.
„Hversu oft skyldi Benedikt þessi
Jóhannesson hafa skrifað um það í
gegnum tíðina, að smáflokkar hafi
haft allt of mikil völd í þessu landi,
eins og Framsóknarflokkurinn? Það
væri sérstakt rannsóknarefni að taka
þau skrif þingmannsins nýkjörna
saman,“ sagði þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins.
Þingmaður Framsóknarflokksins
segir að hann telji jafnlangsótt að hér
verði mynduð minnihlutastjórn VG,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar,
sem Píratar og Samfylking hyggist
verja falli. Undir það sjónarmið taka
þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
„Allir þessir flokkar, þegar þeir
koma fram í fjölmiðlum, reyna að
bjóða af sér góðan þokka, tala um
skyldur sínar til þess að vinna saman
o.s.frv., en útiloka svo í hinu orðinu
samstarf við ákveðna flokka, ekki síst
okkur í Sjálfstæðisflokknum og
Framsóknarflokknum,“ sagði þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Það sé einfaldlega ekki í boði að Pí-
ratar og Samfylking verji ríkisstjórn
VG, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar
falli með hjásetu. Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur hafi yfir 29 at-
kvæðum á Alþingi að ráða. VG, Við-
reisn og Björt framtíð ráði yfir 21 at-
kvæði, Píratar 10 og Samfylking 3.
Það liggi því fyrir, að þessi minni-
hlutastjórn falli mjög fljótlega, ætli
Píratar sér hjásetu, sem ekki sé ólík-
legt.
„Ef Píratar og Samfylking ætla að
verja vinstri minnihlutastjórn falli,
verða þeir að taka þátt í stjórnarsam-
starfinu og greiða atkvæði með öllum
málum stjórnarinnar og þar mega
aldrei fleiri en tveir hlaupa úr
skaftinu. Ella munu Sjálfstæð-
isflokkur og Framsóknar-
flokkur fella öll mál,“ sagði
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins í gærkvöldi
voru taldar miklar líkur á því að
forseti Íslands myndi
gefa það út í dag
hver fær stjórn-
armyndunar-
umboðið.
Minnihlutastjórn er ekki í boði
Hjáseta Pírata og Samfylkingar myndi þýða fall minnihluta vinstristjórnar Ellefu af þrettán þing-
mönnum Pírata og Samfylkingar yrðu alltaf að greiða atkvæði Hjáseta þingmannanna ekki í boði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bessastaðir Í kjölfar þingkosninga beinist kastljósið að Bessastöðum, þegar stjórnmálamenn heimsækja forsetann.
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Á morgun 3. nóvember gefur
Íslandspóstur út jólafrímerkin 2016
og frímerkjaröð tileinkaða íslenskri
myndlist, þ.e. strangflatalistinni
eftir seinna stríð.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sendi
sjálfstæðisfólki bréf í gær,
þar sem hann sagði m.a.: „Við
gáfum ekki stór og óraunhæf
loforð. Við lofuðum því einu,
að við héldum okkar striki,
treystum efnahagslífið frekar,
byggðum upp heilbrigðiskerfið
og innviðina. Að við sinntum
því sem skiptir alla Íslendinga
máli af trúmennsku.
Af úrslitunum sjáum við að
fólkið kom og kaus það sem
við settum á oddinn: það valdi
stefnufestu og stöðugleika og
það hafnaði vinstri upplausn
og óvissu.
En það er ekki nóg að vinna
kosningarnar. Eftirleikurinn er
líka mikilvægur og það er ekki
vandalaust að koma saman
góðri ríkisstjórn. Í gær gekk
ég á fund forseta Íslands og
kynnti honum viðhorf okkar
til ríkisstjórnarmyndunar.
Sjálfstæðisflokkurinn á að
verða kjölfestan í næstu ríkis-
stjórn. Hann er bæði stærsti
þingflokkurinn – með þriðj-
ung þingheims innan
sinna vébanda – og
jafnframt eini afgerandi
sigurvegari kosning-
anna. Niðurstöður kosn-
inganna gefa okkur
tækifæri til þess að
mynda þriggja flokka
stjórn, þó það séu ýmsir
kostir aðrir í stöð-
unni.“
Ekki óraun-
hæf loforð
BRÉF FORMANNSINS
Bjarni
Benediktsson
ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Smiðir vinna nú að því að útbúa nýtt
þingflokksherbergi í Alþingishúsinu.
Sjö flokkar náðu kjöri á laugardag-
inn og hafa aldrei verið fleiri.
Þar sem eitt þingflokksherbergi
vantaði til viðbótar þeim sex sem
fyrir voru var gripið til þess ráðs að
skipta þingflokksherbergi Samfylk-
ingarinnar í tvennt, að sögn Þor-
steins Magnússonar, aðstoðar-
skrifstofustjóra Alþingis.
Samfylkingin hafði til afnota stór-
an sal í Skála Alþingis en þar hefur
flokkurinn haldið fundi frá árinu
2003. Þá voru þingmenn flokksins 20
en eru nú orðnir þrír svo ekki er þörf
á svo stóru herbergi.
Í Skála Alþingis hafa Píratar og
Björt framtíð einnig haft herbergi.
Reiknað er með því að Píratar og
Viðreisn skipti með sér því rými sem
Samfylkingin hafði áður, Björt fram-
tíð verði á sínum stað en Samfylk-
ingin fari í herbergi Pírata. Sjálf-
stæðisflokkur, Framsóknarflokkur
og Vinstri grænir hafa yfir að ráða
þingflokksherbergjum í gamla þing-
húsinu. Lengst af hafa þingflokkar
verið færri, en að sögn Þorsteins
hefur með fjölgun þingflokka þurft
að taka undir starfsemi þeirra her-
bergi sem hugsuð voru undir aðra
starfsemi. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt þingflokksherbergi
Herbergi Samfylkingarinnar verður skipt í tvennt