Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Beðið er niðurstöðu dóms Hæsta- réttar í máli fimm ára drengs sem norskur dómstóll fól í umsjá barna- verndaryfirvalda í Noregi. Forsjá var dæmd af móðurinni, Elvu Christinu, af norskum dómstól og Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði, á grundvelli Haag- samningsins frá 1980, að barna- verndarnefnd í Kristiansand í Nor- egi hefði heimild til að fjarlægja drenginn úr umsjá móður sinnar hér á landi og flytja hann til Nor- egs í fóstur þar sem móðirin bjó. „Ég býst við að niðurstaða Hæstaréttar muni liggja fyrir á næstu dögum eða vikum,“ segir Oddgeir Einarsson, lögmaður móð- ur drengsins, en hann segir málið snúast um túlkun á Haag- samningnum og íslenskum lögum. Haag-samningurinn kveður á um að mál barns sé rekið í því landi þar sem barnið er búsett fyrir brottnám en það var amma drengs- ins, Helena Brynjólfsdóttir, sem flúði með drenginn frá Noregi til Íslands. Því úrskurða norskir dómstólar um örlög drengsins ef Haag samn- ingurinn gildir um þetta einstaka mál líkt og niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur kveður á um. Fylgja ekki eigin lögum Helena segir norsk stjórnvöld ekki fylgja eigin lögum og því hafi ekki verið neitt annað í stöðunni en að koma með drenginn til Íslands. „Málið hefst vegna neyslu móður drengsins í Noregi en samkvæmt norskum lögum á að byrja á skammtímavistun á barni í slíkum tilvikum og gefa fólki færi á að taka á sínum málum. Það var ekki gert heldur barnið úrskurðað í vistun hjá fósturforeldrum til 18 ára ald- urs,“ segir Helena en hún og föð- uramma drengsins óskuðu eftir því að fá umsjón hans en án árangurs. „Lögin gera ráð fyrir því að fyrst sé leitað til ættingja barns áður en því er komið í fóstur. Ég, föður- amma hans og móðursystir fórum allar fram á að fá forræði hans en var synjað.“ Fjöldi sambærilegra mála hefur komið upp í Noregi að sögn Helenu en norsk barnaverndaryfirvöld hafa hag af því að koma börnum í fóstur. „Ólíkt því fyrirkomulagi sem er hér á landi fá barnaverndaryfirvöld í Noregi aukið fjármagn frá norsk- um stjórnvöldum þegar börnum er komið í fóstur. Lögin í Noregi eru sambærileg íslensku lögunum og barnaverndaryfirvöld hér á landi sjá enga ástæðu til að taka dreng- inn af okkur.“ Norðmenn svara ekki Barnaverndaryfirvöld í Kristians- and í Noregi vilja ekki tjá sig um einstaka mál og ekki fengust upp- lýsingar frá þeim um almenna málsmeðferð þar í landi. Þá fengust engin svör um það hvort sérstakar greiðslur fylgdu því að koma börn- um í fóstur. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu hér á landi, seg- ir þetta flókið mál og að Barna- verndarstofa hafi þegar haft sam- band við barnaverndaryfirvöld í Kristiansand. „Ég get auðvitað ekki tjáð mig efnislega um þetta mál öðruvísi en að segja að þetta er flókið. Það þarf að leysa úr ýmsum lagatæknilegum atriðum. Það hjálpar okkur þó að löggjöfin er sambærileg í báðum löndum.“ Bragi segir að þótt viðræður séu hafnar milli stofnananna hér á landi og í Noregi hafi þær ekki mikið vægi meðan beðið er niðurstöðu Hæstaréttar í málinu. Beðið niðurstöðu Hæstaréttar  Færa á fimm ára íslenskan dreng frá Íslandi í fóstur til Noregs  Barnaverndarstofa á Íslandi hef- ur sett sig í samband við stjórnvöld í Noregi  Amma drengsins segir Norðmenn ekki fylgja lögum Helena Brynjólfsdóttir Bragi Guðbrandsson Morgunblaðið/Þórður Mál Beðið er niðurstöðu í máli fimm ára drengs sem senda á í fóstur til Noregs. Flytja á fimm ára dreng frá móður sinni til Noregs sam- kvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur á grundvelli Haag- samningsins frá 1980 og ís- lenskra laga m.a. um viðurkenn- ingu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna og afhendingu brottnuminna barna. Drengurinn kom til Íslands frá Noregi með ömmu sinni en norskur dómstóll fól barna- verndaryfirvöldum í Noregi umsjá drengsins. Deilt var um það fyrir Héraðsdómi Reykjavík- ur og nú Hæstarétti Íslands hvort Haag-samningurinn ætti við í þessu einstaka tilviki. Haag-samn- ingurinn RÉTTARKERFIÐ Morgunblaðið/Eggert Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 RÝMINGARSALA vegna flutninga hefst fimmtudaginn 3. nóv. kl. 10 50% afsláttur af öllum vörum Lokað í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.