Morgunblaðið - 02.11.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Beðið er niðurstöðu dóms Hæsta-
réttar í máli fimm ára drengs sem
norskur dómstóll fól í umsjá barna-
verndaryfirvalda í Noregi. Forsjá
var dæmd af móðurinni, Elvu
Christinu, af norskum dómstól og
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði, á grundvelli Haag-
samningsins frá 1980, að barna-
verndarnefnd í Kristiansand í Nor-
egi hefði heimild til að fjarlægja
drenginn úr umsjá móður sinnar
hér á landi og flytja hann til Nor-
egs í fóstur þar sem móðirin bjó.
„Ég býst við að niðurstaða
Hæstaréttar muni liggja fyrir á
næstu dögum eða vikum,“ segir
Oddgeir Einarsson, lögmaður móð-
ur drengsins, en hann segir málið
snúast um túlkun á Haag-
samningnum og íslenskum lögum.
Haag-samningurinn kveður á um
að mál barns sé rekið í því landi
þar sem barnið er búsett fyrir
brottnám en það var amma drengs-
ins, Helena Brynjólfsdóttir, sem
flúði með drenginn frá Noregi til
Íslands.
Því úrskurða norskir dómstólar
um örlög drengsins ef Haag samn-
ingurinn gildir um þetta einstaka
mál líkt og niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur kveður á um.
Fylgja ekki eigin lögum
Helena segir norsk stjórnvöld
ekki fylgja eigin lögum og því hafi
ekki verið neitt annað í stöðunni en
að koma með drenginn til Íslands.
„Málið hefst vegna neyslu móður
drengsins í Noregi en samkvæmt
norskum lögum á að byrja á
skammtímavistun á barni í slíkum
tilvikum og gefa fólki færi á að taka
á sínum málum. Það var ekki gert
heldur barnið úrskurðað í vistun
hjá fósturforeldrum til 18 ára ald-
urs,“ segir Helena en hún og föð-
uramma drengsins óskuðu eftir því
að fá umsjón hans en án árangurs.
„Lögin gera ráð fyrir því að fyrst
sé leitað til ættingja barns áður en
því er komið í fóstur. Ég, föður-
amma hans og móðursystir fórum
allar fram á að fá forræði hans en
var synjað.“
Fjöldi sambærilegra mála hefur
komið upp í Noregi að sögn Helenu
en norsk barnaverndaryfirvöld hafa
hag af því að koma börnum í fóstur.
„Ólíkt því fyrirkomulagi sem er
hér á landi fá barnaverndaryfirvöld
í Noregi aukið fjármagn frá norsk-
um stjórnvöldum þegar börnum er
komið í fóstur. Lögin í Noregi eru
sambærileg íslensku lögunum og
barnaverndaryfirvöld hér á landi
sjá enga ástæðu til að taka dreng-
inn af okkur.“
Norðmenn svara ekki
Barnaverndaryfirvöld í Kristians-
and í Noregi vilja ekki tjá sig um
einstaka mál og ekki fengust upp-
lýsingar frá þeim um almenna
málsmeðferð þar í landi. Þá fengust
engin svör um það hvort sérstakar
greiðslur fylgdu því að koma börn-
um í fóstur.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu hér á landi, seg-
ir þetta flókið mál og að Barna-
verndarstofa hafi þegar haft sam-
band við barnaverndaryfirvöld í
Kristiansand.
„Ég get auðvitað ekki tjáð mig
efnislega um þetta mál öðruvísi en
að segja að þetta er flókið. Það þarf
að leysa úr ýmsum lagatæknilegum
atriðum. Það hjálpar okkur þó að
löggjöfin er sambærileg í báðum
löndum.“
Bragi segir að þótt viðræður séu
hafnar milli stofnananna hér á landi
og í Noregi hafi þær ekki mikið
vægi meðan beðið er niðurstöðu
Hæstaréttar í málinu.
Beðið niðurstöðu Hæstaréttar
Færa á fimm ára íslenskan dreng frá Íslandi í fóstur til Noregs Barnaverndarstofa á Íslandi hef-
ur sett sig í samband við stjórnvöld í Noregi Amma drengsins segir Norðmenn ekki fylgja lögum
Helena
Brynjólfsdóttir
Bragi
Guðbrandsson
Morgunblaðið/Þórður
Mál Beðið er niðurstöðu í máli fimm ára drengs sem senda á í fóstur til Noregs.
Flytja á fimm ára dreng frá
móður sinni til Noregs sam-
kvæmt úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur á grundvelli Haag-
samningsins frá 1980 og ís-
lenskra laga m.a. um viðurkenn-
ingu og fullnustu erlendra
ákvarðana um forsjá barna og
afhendingu brottnuminna
barna.
Drengurinn kom til Íslands
frá Noregi með ömmu sinni en
norskur dómstóll fól barna-
verndaryfirvöldum í Noregi
umsjá drengsins. Deilt var um
það fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur og nú Hæstarétti Íslands
hvort Haag-samningurinn ætti
við í þessu einstaka tilviki.
Haag-samn-
ingurinn
RÉTTARKERFIÐ
Morgunblaðið/Eggert
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
RÝMINGARSALA
vegna flutninga hefst
fimmtudaginn 3. nóv. kl. 10
50% afsláttur af öllum vörum
Lokað í dag