Morgunblaðið - 02.11.2016, Qupperneq 12
Áhuginn skein úr andlitum barnanna á
árlegum Vísindadegi sem Verkfræði-
og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
stóð fyrir um liðna helgi. Að vanda
var dagskráin fjölbreytt, m.a. var boð-
ið upp á fræðandi viðburði um nýjustu
tækni. Vísindamenn sviðsins sögðu
frá rannsóknum og fræddu gesti og
gangandi um undraheim vísindanna.
M.a. fengu börnin að kíkja inn í dular-
fulla dýrarannsóknastofu og eldfjalla-
herbergi auk þess sem þeim var boðið
í ferðalag um sólkerfið. Markmið Vís-
indadagsins er að kynna ungum sem
öldnum undur verkfræði og raun- og
náttúruvísinda.
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands sló upp vísindaveislu
Undraheimur
vísindanna
Ljósmyndir/Kristinn Ingvarsson
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Leiðarvísir Hvað má bjóða þér? Á OMGYES.com er ýmis kynleg tilbrigði.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Oh My God! er frasi eðaupphrópunarsetning semflestir þekkja og notajafnvel sjálfir á sam-
skiptamiðlum, í SMS-skilaboðum
og víðar, og skammstafa þá yfir-
leitt OMG. Íslenska þýðingin er
Guð minn góður! – svo því sé hald-
ið til haga, en hún hefur átt undir
högg að sækja gagnvart enska
ákallinu. Fólk á öllum aldri á það
líka til að hrópa Oh my God í tíma
og ótíma með ýmsum blæbrigðum
og í mörgum tóntegundum til að
tjá tilfinningar sínar og líðan;
undrun, hrifningu, hneykslan, of-
boð, skelfingu, og ekki síst unað.
Yes bætist svo mögulega við og
verður Oh My God Yes! þegar leik-
ar æsast í kynlífinu.
Að minnsta kosti má álykta að
nafn gagnvirkrar vefsíðu, OMG-
YES.com, sem fór í loftið í árs-
byrjun, sé ekki alveg út í bláinn.
Líklegt er að það dragi einmitt
dám af þessari meintu upphrópun
fólks þegar það fær fullnægingu.
Yfirlýst markmið vefsíðunnar er að
svipta hulunni af öllu því sem veitir
konum kynferðislegan unað og hef-
ur löngum verið tabú að mati að-
standenda hennar. Hópurinn sam-
anstendur af sérfræðingum af
báðum kynjum og á ýmsum sviðum
í New Jersey, m.a. vísinda-
mönnum, kvikmyndagerðar-
mönnum, hönnuðum, kennurum og
kynlífsfræðingum. Öll höfðu ástríðu
fyrir að fræðast um fyrirbærið,
sjálfum sér til gagns og gleði, en
Hulunni svipt af
fullnægingu kvenna?
OMGYES!
Engin tæpitunga, kinnroði eða skömm eru leiðarstef stofnenda allnýstárlegrar
vefsíðu, OMGYES.com, sem fór í loftið fyrr á árinu. Markmiðið er að svipta hul-
unni í máli og myndum af öllu því sem veitir konum kynferðislegan unað.
Rannsókn Stofnendur síðunnar gengust fyrir umfangsmikilli rannsókn á
upplifun tvö þúsund kvenna á aldrinum 18 til 95 ára af kynlífi.
Sýningin Handverk og hönnun verð-
ur opnuð kl. 16 á morgun, fimmtu-
daginn 3. nóvember, í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Sýningin stendur til 7.
nóvember og eru þátttakendur 58
talsins. Meðal þess sem getur að
líta eru munir úr keramik, horni,
beini og tré, skartgripir, fatnaður,
leðurvörur, textíl og barnafatnaður.
Listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir
kynna vörur sínar.
Þetta er tíunda árið sem Hand-
verk og hönnun stendur fyrir og
skipuleggur þennan viðburð.
Á sýningunni verða Skúlaverð-
launin afhent fyrir besta nýja hlut-
inn á sýningunni, en þau hafa verið
veitt í tengslum við sýninguna frá
árinu 2008. Allir þátttakendur geta
skilað tillögu í samkeppnina. Hug-
myndin er að hvetja þátttakendur til
nýsköpunar og vöruþróunar. Almar
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
SI, afhendir verðlaunin, sem styrkt
eru af Samtökum iðnaðarins, á opn-
unardeginum.
Til marks um fjölbreytnina má
nefna að í ár koma tveir þátttak-
endur; Violita Urbonaite og Virginija
Stigaite, frá Litháen til að vera með.
Með sýningunni gefst einstakt
tækifæri til að kynna sér fjölbreytt
íslenskt handverk, listiðnað og
hönnun á einum stað. Frá föstudag
til mánudags er opið kl. 10-18 en
fyrsta daginn er opið kl. 16-19. Að-
gangur er ókeypis.
Vefsíðan www.handverkoghonnun.is
Íslenskt, já takk Þátttakendur á sýningunni eru 58 talsins. Þar á meðal Sigga
Sif á Ísafirði sem hannar prjónafatnað undir vörumerkinu Ívaf.
Fjölbreytt handverk, listiðnaður
og hönnun á einum stað
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ráðgjöf og þjálfun
nolta.is
Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – S. 564 6464 – fasthof.is
að farsælum
viðskiptum
Elsa Alexandersdóttir
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Evert Guðmundsson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Guðmundur Hoffmann
Steinþórsson
lögg. fasteignasali