Morgunblaðið - 02.11.2016, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Draugur á ferð Það var líf og fjör í Engidalsskóla í Hafnarfirði á hrekkjavökunni og spruttu fram verur í hrauninu og hlupu út um allar trissur. Brá þar meðal annars fyrir ógnandi draugum.
Eggert
Þannig ættu neyt-
endur að spyrja, en
gera það ekki af því að
þeir átta sig ekki á að
meira að segja hingað
til Íslands eru fluttir
inn farmar í þús-
undum tonna af ís. Ís
úr margendurunnu
vatni sem hefur jafn-
vel farið 25 sinnum í
gegnum mannslíkam-
ann og út í skolpið aftur. Ekki hafði
ég hugarflug til þess að láta mér
detta í hug að í verslunum í Reykja-
vík væru innfluttir ísmolar til að
kæla gosið og veisluföngin. Við Ís-
lendingar eigum fágæt lífsgæði í
hreinu vatni og hollum, lyfjalausum
landbúnaðarafurðum. Við erum
meðvituð um hreinleika búvara,
kjötið laust við lyfja-
leifar og dýrin okkar
bíta gras sem vex und-
ir sól og regni, engin
lyfjamengun eða eitur-
efni í jarðvegi. Bænd-
urnir okkar eiga neyt-
endamarkaðinn og frá
þeim viljum þeir mat-
inn sinn vegna gæða
og öryggis. Enda eru
þessi lífsgæði hluti af
okkar sérstöðu, sem
við erum öfunduð af og
teljum kannski svo
sjálfsagða að ekkert sé að óttast.
En stundum vaða uppi menn sem fá
að virðist hljómgrunn og tröllríða
allri fjölmiðla umræðu að hér skuli
allt vera frjálst og leyfilegt og gott
ef þetta fólk skreytir sig ekki með
orðinu að vera „frjálslynt.“ Þeir eru
oft þessir frelsisberar eins og far-
iseinn í Biblíunni sem barði sér á
brjóst og þakkaði guði fyrir að hann
væri ekki eins og aðrir menn. Þess-
ir menn koma oft fram og telja
hættulaust að flytja kjöt og land-
búnaðarvörur inn til Íslands, enda
eigi neytandinn að velja. Og hvers-
vegna ætti neytandinn ekki sjálfur
að velja sina ísmola, aðeins brot af
mannréttindunum.
Skora á Neytendasamtökin að
grípa í taumana
Margan manninn rak hinsvegar í
rogastans þegar RÚV greindi frá
því að í verslunum hér væru inn-
fluttir ísmolar og þeir seldir grimmt
og teknir fram yfir þá íslensku sem
koma úr fjallavatninu tæra, enda
þeir erlendu oft ódýrari og á betri
stað í búðinni. Líffræðingur frá
Landvernd kom fram í fréttinni og
varaði neytendur við og undraðist
fólskuna og kallaði þennan innflutn-
ing „snargalinn,“ og minnti einungis
á að kolefnissporin væru sennilega
ekki reiknuð inn í verðið þegar
skipin kæmu með ísfarmana að
landi. Ísmolarnir voru m.a. sagðir
koma frá Bretlandi og Bandaríkj-
unum en oft er greint frá því að
vatnið sem notað er í stórborgunum
hafi farið aftur og aftur í gegnum
klóakið þar, en hreinsað og gert
drykkjarhæft aftur og aftur. Hvora
ísmolana ætli Íslendingurinn myndi
velja ef honum væri gerð grein fyr-
ir upprunalandinu, að á bak við
annan íspokann væri vatn úr hrein-
um fjallalindum Íslands. En í hinum
væri vatn, margendurunnið eftir að
hafa farið í gegnum klóakið í fjar-
lægri stórborg? Á dauða mínum átti
ég von frekar, en að hingað væru
fluttir ís molar erlendis frá í veislu-
föngin, eða eins og fréttakonan
sagði, engum dettur í hug að fara
með kaffi til Brasilíu eða sand til
Sahara, og við mætti bæta kjöt til
Nýjasjálands eða lambakjöt eða
skyr til Íslands. En svona er þetta,
hingað til Íslands flytja þeir inn ís í
viskíið og veisluföngin og gosdrykki
barnanna. Mikið ofboðslega er
frelsið magnað og misnotað. Ég
skora á nýjan formann Neytenda-
samtakanna, Ólaf Arnarsson, að
fara yfir þessi mál og krefjast vott-
unar og ærlegrar merkingar á upp-
runalandinu.
Eftir Guðna
Ágústsson » Ís úr margendur-
unnu vatni sem hef-
ur jafnvel farið 25 sinn-
um í gegnum manns-
líkamann og út í skolpið
aftur.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður og
ráðherra.
Frá hvaða landi eru ísmolarnir í glasinu þínu?
Þegar fólk áttaði sig
á því að veruleg hætta
væri á því að önnur
hrein og tær vinstri
norræn velferðarstjórn
væri í burðarliðnum
með ófyrirsjáanlegum
hroðalegum afleið-
ingum fyrir land og
þjóð þá hryllti það sig
og saup hveljur og
flykktist yfir til að-
almóteitursins, Sjálfstæðisflokksins,
og veitti honum brautargengi. Fólk
vill nefnilega frekar hæfa og góða og
gegna grímulausa mafíósa sem eru
með spillinguna uppi á borðum held-
ur en óhæfa vinstrisinnissjúka und-
irförula svikula baktjaldamakkandi
pukrara með allt sitt
öfgafemínistakomma-
lufsurétttrúnaðarruglumbull.
Fátt um fína drætti
Það fór því sem ég spáði að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi verða sig-
urvegari kosninganna og fá stjórn-
armyndunarumboðið. Sem er gott,
því fjölmargt giftusamlegt hefur
hann gert á þessu kjörtímabili.
Bjarna Ben hlýtur að takast að baka
og skreyta þokkalega stjórn. Ólík-
legt að hann bíði í of-
væni eftir því að hefja
viðræður við Vinstri
græningja og gera
Steingrím J. að fjár-
málaráðherra. Hann
hlýtur að horfa í aðrar
áttir þegar kemur að
því að finna heppilega
samstarfsfélaga. Bensi
frændi, formaður Við-
rekstrar, hlýtur að
koma til álita svo og
þau í Bjartri framtíð þó
svo að enginn viti fyrir
hvað þau standa og síst þau sjálf,
nema hvað þau segjast vilja iðka
öðruvísi stjórnmál sem þau gera
ekki, og stilla einhverjar klukkur,
sem þau gera ekki heldur. Virðast
vera soldið á eftir tímanum. Jú og
svo vilja þau að Íslendingar verði
orðnir 800 þúsund árið 2050. Semsé
no borders-stefnan. Nema að þau
séu sjálf svona afkastamikil. Efast
um að Bjarni kippi Framsókn inn á
völlinn því flokkurinn var eiginlega
baulaður út af í kosningunum. En
aldrei að vita. Ég veit um fjölmarga
sem hættu við að kjósa Framsókn
eftir að Sigmundi Davíð var dúndrað
úr formannsstólnum með svindli og
svínaríi. Ekkert smáræðis magn af
hnífasettum og kjötsöxum sem sá
góði drengur hefur í bakinu. Það er
slæmt að Simbi skuli vera úti í kuld-
anum því hann stofnaði ekki bara
Wintris heldur gerði hann marga
aðra góða hluti fyrir land og lýð sem
ber að þakka.
Pí-ratar og litla svarta Samfó
Vinstri fjórflokkurinn, sem var
farinn að mynda ríkisstjórn fyrir
kosningar með Pírata í broddi fylk-
ingar, rétt slefaði yfir 40% og hefði
þurft allmarga kommúnistasmá-
flokka í viðbót til að geta klastrað
saman nógu ógæfulegri vinstri-
stjórn.
Það var þessu lítt ígrundaða út-
spili Prímata að þakka að við fáum
ekki yfir okkur borgarstjórnarmeiri-
hlutaflokkana á landsvísu. Pýramíd-
ar komu nefnilega þarna endanlega
út úr skápnum sem vinstrihreyfing
og múlbundu sig við Vinstri grama,
Bjarta framtíð og litlu svörtu Samfó
– góðafólksflokkana sem vilja gal-
opin landamæri o.s.frv. eins og þeir.
Fólki varð skiljanlega flökurt og
gerði allt til að koma í veg fyrir
myndun slíkrar hreinnar og tærrar
vinstrióstjórnar og hugsaði til þess
með hryllingi að fá yfir sig sömu
flokkana og vinna við það baki
brotnu á hverjum Degi að eyðileggja
höfuðborgina og götur hennar.
Sjálfstæðisflokkurinn græddi
mest á þessari óbærilegu tilhugsun
fólks. Þetta er faktískt ástæðan fyrir
uppgangi Sjálfstæðisflokksins á
lokametrunum og niðurgangi Pírata.
Það er því ekki rétt sem Birgitta
sagði í viðtali eftir kosningar að Pí-
ratar hefðu fengið á sig vinstristimp-
ilinn. Þeir stimpluðu sig sjálfir sem
slíka í bak og fyrir og stimpluðu sig
einfaldlega inn sem anarkistulögð
vinstrihreyfing. Það var varla að
ástæðulausu að Össur Skarpi sagði
að það væri akkúrat enginn munur á
Pírötum og Samfylkingu. Semsé
enginn munur á krötum og rötum.
Hverfandi líkur eru á að Píratar fari í
stjórn. Þeir verða því áfram stjórn-
leysingjar í tvennum skilningi.
Ekki sama hvaðan
spillingin kemur
Það var sérkennilegt af Birgittu að
segjast neita að vinna með spilling-
arflokkunum og reyra sig síðan fasta
við flokk, sem gengur undir nafninu
Samspillingin, og kommúnistaflokk
Kötu Jak og Steingríms Joð sem mér
skilst að eigi Íslandsmet í svikum,
baktjaldamakki og raðlygum. Píröt-
um finnst þeir eiga mesta samleið
með þessum flokkum, af einhverjum
ástæðum, enda studdu þeir (Hreyf-
ingin) af heilum hug Nor-rænulausu
helferðarstjórnina sem lá maríneruð
í óþverra og spillingu eftir því sem
kemur fram í skýrslu meirihluta fjár-
laganefndar um einkavæðingu bank-
anna hina síðari. Það virðist semsé
skipta Pírata höfuðmáli að spillingin
komi úr réttri átt, allsekki af hægri
vængnum heldur eingöngu þeim
vinstri. Þá sé allt í orden.
Hvað um það. Fjölmargir kjós-
endur kveiktu á perunni og því fóru
kosningarnar á þennan veg. Sjálf-
stæðisflokkurinn er langstærsti
flokkurinn. Einu vonbrigðin eru að
Íslenska þjófylkingin skyldi hafa
slátrað sjálfri sér og að Flokkur fóls-
ins skyldi ekki hafa náð í gegn og að
litla svarta Samfó skyldi ekki hafa
þurrkast út, enda hefur hún það
helst á stefnuskránni að ganga um
borð í Titanic (ESB). Það er hennar
eini blauti draumur. Skilur ekki að
Titanic er á hafsbotni. Mjög blautur
draumur það. Ég hélt að þessi flokk-
ur væri nógu djúpt sokkinn fyrir.
Að öðru leyti er niðurstaða kosn-
inganna fín. Landið mun allavega
haldast á floti fram að næsta hruni.
Óttinn við vinstrióstjórn skapaði
sigur Sjálfstæðisflokksins
Eftir Sverri
Stormsker » Sjálfstæðisflokk-
urinn græddi mest á
þessari óbærilegu til-
hugsun fólks.
Sverrir Stormsker
Höfundur er tónlistarmaður og rit-
höfundur.