Morgunblaðið - 02.11.2016, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
✝ Sigurður Vil-helm Garðars-
son fæddist í Mið-
húsi í Þórkötlu-
staðarhverfi,
Grindavík, 17.
febrúar 1934.
Hann lést á dvalar-
og hjúkrunar-
heimilinu Horn-
brekku 22. október
2016.
Foreldrar hans
voru Garðar Sigurðsson, f. 2.8.
1911, d. 25.8. 2002, og Jóhanna
Petrúnella Vilhjálmsdóttir, f.
29.8. 1917, d. 13.10. 2002. Sig-
urður var elstur fimm systkina,
sem eru Ingibjörg Garðarsdótt-
ir, f. 4.11. 1935, Jóhanna Garð-
arsdóttir, f. 10.8. 1940, Bjarni
Kristinn Garðarsson, f. 5.3.
1943, Ester Garðarsdóttir, f.
30.12. 1947, Eygló Garðars-
dóttir, f. 25.9. 1960.
Sigurður kvæntist 17. júní
1956 Brynhildi Ingibjörgu Vil-
hjálmsdóttur, f. 1.10. 1933, d.
kona Unnur Guðjónsdóttir, bú-
sett erlendis og eiga þau eiga
einn son. Auk þess á Hjalti þrjá
syni fyrir.
Sigurður ólst upp í foreldra-
húsum en fór snemma að vinna
fyrir sér. Byrjaði að róa á ára-
bát frá Þórkötlustaðarhverfi
um fermingu og reri á ýmsum
bátum gegnum tíðina með
mörgum af aflasælustu skip-
stjórum í Grindavíkur. Árið
1959 lauk hann vélstjóramennt-
un. Var vélstjóri á Mána GK 36
1960-61, Hrafni Sveinbjarnar-
syni II GK 10, 1961-66, Sigfúsi
Bergmann GK 38, 1966-67,
Hrafni Sveinbjarnarsyni III GK
11, 1967-71. Rak Helganes hf.
sem gerði út Gísla lóðs GK 130
ásamt félögum sínum 1971-
1981. Var síðan 21 ár vélstjóri á
Hrungni GK 50 sem var í eigu
Vísis hf. í Grindavík. Árið 2004,
eftir 51 árs farsælan feril á sjó,
fékk Sigurður heiðursorðu sjó-
mannadagsráðs Grindavíkur.
Eftir það starfaði hann sem vél-
gæslu- og eftirlitsmaður með
bátum Vísis hf. til ársins 2009
er hann settist í helgan stein.
Útför Sigurðar fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag, 2.
nóvember 2016, og hefst hún
klukkan 14.
7.4. 2011, frá
Brandaskarði í A-
Húnavatnssýslu.
Foreldrar hennar
voru Vilhjálmur
Benediktsson, f.
7.4. 1894, d. 21.10.
1955, og Jensína
Hallgrímsdóttir, f.
4.10. 1892, d. 7.2.
1963. Börn þeirra
eru: 1. Vilhjálmur,
f. 13.9. 1956, maki
Helena Reykjalín Jónsdóttir,
búsett í Ólafsfirði. Þau eiga
þrjú börn og sjö barnabörn. 2.
Jens, f. 20.9. 1959, búsettur í
Grindavík, Hann á fjögur börn
og fimm barnabörn. 3. Garðar
Hallur, f. 11.11. 1963, maki
Þóra Kristín Sigvaldadóttir,
búsett í Reykjavík. Þau eiga tvo
syni. 4. Jóhanna Harpa, f. 7.12.
1965, maki Kristján
Steingrímsson, búsett í Mý-
vatnssveit og þau eiga tvö börn
og eitt barnabarn. 5. Hjalti
Páll, f. 25.10. 1971, sambýlis-
Elsku afi, mikið þykir mér
sárt að hugsa til þess að heyra
ekki í þér aftur. Ég veit þó að
núna líður þér vel og ert kom-
inn til ömmu. Mér þykir svo
vænt um að hafa getað komið
norður til þess að kveðja þig, þó
svo ég væri ekki tilbúin til þess
að sætta mig við það að þú vær-
ir að fara frá okkur, en ég veit
að þú kvaddir sáttur. Eftir að
þú kvaddir fórum við frænk-
urnar uppá Hornbrekku um
kvöldið og eyddum góðum tíma
þar hjá þér og fannst mér það
dýrmæt stund. Ég bar alltaf svo
mikla virðingu fyrir þér, meiri
en nokkrum öðrum enda varstu
stórglæsilegur, góður og flottur
maður.
Síðan ég var lítil þá man ég
alltaf hvað mér fannst þú og
amma virðuleg hjón. Þið voruð
alltaf fín og heimilið ykkar hlý-
legt. Öll ferðalögin sem ég fór
með ykkur ömmu í þegar ég var
lítil, þeim gleymi ég aldrei. Það
var alltaf gaman að fara með
ykkur, aftur í var búið að græja
sæng og kodda fyrir mig og svo
sögðuð þið mér skemmtilegar
sögur frá gömlu tímunum alla
leiðina. Þú varst mikill bílakarl
og man ég að það var smákúnst
að fara inn í bílana þína því það
mátti alls ekki stíga á listana á
leiðinni inn og sömuleiðis að
passa listana á leiðinni út.
Eftir að amma kvaddi þá
breyttist samband okkar, við
urðum nánari og töluðum meira
saman þó að oft á tíðum værir
þú nú alls ekki ræðinn. Okkur
fannst gaman að því þegar þú
fórst að koma í kvöldmat til
okkar og varst nú svolítið hissa
á þessum nútímamat sem ég
elda, eins og t.d. pítu, þú baðst
mig vinsamlegast um að sýna
þér hvernig í ósköpunum ætti
nú að græja það. Eftir að þú
fluttir norður urðu samskiptin
minni og þykir mér það svo
leitt.
Við hittum þig ekki oft en
okkur þótti afar vænt um þau
skipti sem við hittumst. Mér
fannst svo gaman að sjá vænt-
umþykjuna á milli þín og
barnanna minna, enda spurðir
þú í hvert einasta skipti sem ég
talaði við þig hvernig gengi í
skólanum hjá krökkunum og
hvernig þau hefðu það. Þeim
þótti svo vænt um langafa og sá
ég að þau báru mikla virðingu
fyrir þér líka.
Við kveðjum þig með sorg í
hjarta en jafnframt miklu þakk-
læti fyrir að hafa átt þig að í lífi
okkar. Núna ertu kominn á góð-
an stað og ég veit að amma hef-
ur tekið vel á móti þér. Blessuð
sé minning þín, elsku afi okkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér
(Hallgrímur Pétursson)
Hvíldu í friði, elsku afi, þú átt
stóran stað í hjarta okkar.
Við elskum þig og söknum
þín.
Jenný, Patrekur Ívar
og Antonía Björk.
Mig langar að kveðja Sigurð
Vilhelm Garðarsson með nokkr-
um orðum.
Ég kynntist Sigga afa, eins
og við kölluðum hann alltaf okk-
ar á milli, fyrir rúmlega 20 ár-
um en við urðum ekki nánir
fyrr en Siggi flutti á Horn-
brekku. Þegar ég heimsótti
Sigga þar gátum við talað um
allt á milli himins og jarðar en
oftar en ekki barst talið að sjón-
um.
Ég þurfti ávallt að hafa allar
aflatölur á hreinu þegar ég kom
í land og heimsótti Sigga, því
hann vildi vita hve mikið var
veitt í hvert sinn og af hvaða
tegund. Það kom fyrir að við
fórum inn á Akureyri til læknis
og þá var tekinn bryggjurúntur
eftir hverja ferð, við kíktum í
leiðinni á bílasölur og gerðum
einu sinni það vel við okkur að
borða á Bautanum.
Á þessum stundum áttum
alltaf gott spjall á leiðinni heim
aftur. Við fórum nokkrar ferðir
yfir á Siglufjörð, þá þótti okkur
gott að koma við í bakaríinu og
fá okkur vínarbrauð og kaffi.
En segja vil ég að þú varst
gull af manni og tókst mér allt-
af vel þegar ég kíkti í heimsókn
til þín, Siggi minn, þó þér liði
ekki alltaf vel þá var samt oft-
ast stutt í brosið hjá þér. Mikið
á ég eftir að sakna spjallsins
okkar en ég veit að þú ert kom-
inn á góðan stað og með sökn-
uði og virðingu vil ég þakka fyr-
ir þann tíma sem við áttum
saman.
Kæru Vilhjálmur, Jens,
Harpa, Hjalti og önnur skyld-
menni, ég sendi ykkur mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Þröstur Björnsson.
Sigurður Vilhelm
Garðarsson
✝ Sigríður Ein-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 28.
maí 1932. Hún lést
eftir stutta legu á
líknardeild Land-
spítalans 19. októ-
ber 2016.
Sigríður var
dóttir hjónanna
Guðbjargar
Jónsdóttur, f. á
Eystri-Lofts-
stöðum, Gaulverjabæjarsókn
22.8. 1891, d. 18.1. 1982, og Ein-
ars G. Guðmundssonar, f. í Eyði-
Sandvík í Kaldaðarnessókn
12.11. 1893, d. 9. 10. 1984. Sig-
ríður var yngst í systkina-
hópnum sem taldi auk hennar
bræðurna Guðmund, f. 25.12.
1924, kvæntur Hönnu Ragnars-
dóttur, látin. Jón Þorbjörn, f.
30.8. 1926, d. 24.2. 2016, kvænt-
ur Gyðu Áskelsdóttur, látin, og
Harald, f. 8.8. 1927, d. 13.7.
2007.
Þann 7.8. 1953 giftist Sigríð-
ur Stefáni Trjámanni Tryggva-
syni, f. á Akureyri 2.6. 1933, d.
22.10. 2001 en leiðir þeirra lágu
saman á Akureyri þar sem Sig-
ríður sótti nám í Húsmæðra-
skóla. Þau slitu hjúskap sínum
árið 1999. Hann var sonur
10.10. 1996. 3. Erna, þroska-
þjálfi og fjölskylduráðgjafi í
Reykjavík, f. 25.5. 1957, m.
Hrafn Hilmarsson verkfræð-
ingur, f. 7.7. 1959. Hann á fjórar
dætur. Börn Ernu og Jóns H.
Sveinssonar: a) Örn Hermann, f.
21.6. 1980, kvæntur Rebekku
Hilmarsdóttur. b) Jóhann Ás-
geir, f. 4.4. 1984, d. 30.7. 2000. 4.
Guðbjörg Sigrún, sjúkraliði á
Selfossi, f. 11.7. 1964, m. Oddur
Árnason yfirlögregluþjónn.
Þeirra börn eru: a) Hjalti Rúnar,
f. 17.9. 1987, unnusta Arna
Steinarsdóttir, b) Tryggvi
Hjörtur, f. 3.4. 1992, unnusta Ír-
is Alma Össurardóttir og eiga
þau eina dóttur. c) Árný Odd-
björg, f. 28.12. 1996, unnusti
Arnar Bjarki Sigurðarson.
Þau Sigríður og Stefán hófu
sinn búskap á Jaðri við Reykja-
vík, þar sem rekinn var heima-
vistarskóli, en fluttu þaðan á
Álfhólsveg 89 í Kópavogi og síð-
ar að Kjarrhólma 22 þar í bæ. Á
unglingsárum vann Sigríður
m.a. í Leðuriðjunni en lengst af
vann hún í Dósagerðinni í Kópa-
vogi. Auk þess, að aukastarfi,
við ræstingar á Heilsuverndar-
stöðinni í Reykjavík en starfs-
ævinni lauk hún í mötuneyti
Landspítalans. Síðustu árin bjó
Sigríður í Hamraborg í Kópa-
vogi og undir það síðasta á
hjúkrunarsambýlinu að Roða-
sölum 1 í Kópavogi.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag, 2.
nóvember 2016, klukkan 13.
hjónanna Tryggva
Stefánssonar, skó-
smiðs á Akureyri
og bónda á Þrastar-
hóli í Hörgárdal, f.
14.11. 1893, d. 11.3.
1983, og Sigrúnar
J. Trjámanns-
dóttur, f. 18.12.
1898, d. 23.06.
1965. Börn Sigríðar
og Stefáns eru: 1.
Einar rafvirkja-
meistari í Kópavogi, f. 1.12.
1951, k. Hrönn Antonsdóttir, f.
5.7. 1950, þau skildu. Þeirra
börn eru: a) Sigríður, f. 7.2.
1977. Hennar börn eru þrjú. b)
Eyrún Björk, f. 31.8. 1980, gift
Árna Jónssyni. Þau eiga þrjú
börn. Fyrir á Hrönn dótturina
Ágústu Jóhönnu Sigurjóns-
dóttur, f. 4.12. 1969. Sambýlis-
maður hennar er Helgi Guð-
laugsson, hennar börn eru sex
og hún á eitt barnabarn. 2.
Tryggvi, skrifstofumaður í
Kópavogi, f. 22.9. 1954, k.
Margret Gunnarsdóttir Flóvenz
endurskoðandi, f. 14.8. 1959.
Þeirra börn eru: a) Birgir, f.
27.7. 1979, giftur Ýri Geirs-
dóttur. Þau eiga tvo syni. b)
Hildur, f. 24.6. 1981. c) Unnur, f.
18.2. 1988, og d) Sólrún Lára, f.
Glaðlyndi, þrautseigja, svart-
ur húmor, tryggð, smitandi
hlátur, dugnaður og æðruleysi
eru orð sem koma mér í hug
þegar ég minnist móður minn-
ar.
Eiginleikar sem einkenndu
hana og hún nýtti vel í gegnum
skin og skúrir lífsins. Mamma
var ekki manneskja margra
orða, sérstaklega ekki þegar
ræddar voru tilfinningar eða
líðan en hún veitti nærveru og
skilning á sinn sérstaka hátt.
Ég fluttist ung vestur á firði
og stofnaði þar fjölskyldu.
Vegna fötlunar yngri sonar
míns, Jóhanns, þurfti ég mikið
að sækja suður.
Oftast hélt ég til á heimili
foreldra minna en þar vann
mamma öll heimilisverkin eins
og húsmæður af hennar kyn-
slóð gerðu gjarnan. Þetta gerði
hún auk þess að vinna fulla
vinnu utan heimilis. Í þessum
heimsóknum okkar mæðgina
sem gátu verið frá viku upp í
tvo til þrjá mánuði ef því var að
skipta þá passaði mamma upp á
að ég þyrfti ekki að vera að
vasast í neinu nema sinna
drengnum.
Þau skipti sem Jóhann lá á
sjúkrahúsum kom hún í heim-
sókn hvern einasta dag og allt-
af gátu þau, tvö mamma og
hann, fundið sér eitthvað til að
grínast með og hlæja að, en
húmor þeirra var mjög líkur og
oft á tíðum beittur en þaðan
komu orðatiltæki sem oft voru
notuð síðar eins og: „Þetta er
vont en það venst“, „Fúlt, en
skítt með það“.
Lengst af bjuggu foreldrar
mínir í íbúð á fjórðu hæð í
lyftulausri blokk. Oft var þungt
að rogast með poka upp hæð-
irnar. „Guð blessi stigana“ var
algengt að heyra mömmu segja
í gamansömum tón þegar við
vorum að þramma upp stigana
saman klyfjaðar pokum og
hjálpandi Jóhanni sem átti erf-
itt með að ganga þá.
Þegar Jóhann lést nokkuð
skyndilega 16 ára gamall kom
mamma vestur og var hjá mér í
margar vikur eða þar til ég
sagði henni að nú væri kannski
orðið tímabært að hún færi. Þá,
líkt og áður, gekk hún í verkin
og var til staðar en hafði ekki
um það mörg orð.
Að missa barnið sitt er eitt-
hvað sem enginn getur skilið til
fulls nema hafa reynt sjálfur. Í
langan tíma hringdi mamma
hvern einasta dag til að vita
hvort það væri í lagi hjá mér.
Þetta gerði hún án þess vera í
einhverri tilfinningaumræðu.
Hún tók bara stöðuna á sinn
hátt, veitti skiling og stuðning
þannig að mér fannst hún oftar
en ekki skilja mig best allra.
Um aldamótin 2000 flutti
mamma í Hamraborgina. Þar
átti hún góða daga í mörg ár.
Eignaðist nýjar vinkonur og
var í meiri samskiptum við
gamlar.
Hún stundaði félagsstarf
aldraðra í Gjábakka. Fór að
prjóna og sauma út, konan sem
alltaf hafði haldið því fram að
hún væri með þumalputta á öll-
um.
Fyrir nokkrum árum fór að
bera á minnisleysi og hæfni
hennar til að annast sig sjálfa
fór dvínandi. Eftir að hafa ver-
ið í dagdvöl í Roðasölum 1 í
nokkurn tíma flutti hún hjúkr-
unarsambýli á sama stað. Þar
naut hún einstakrar umhyggju
og umönnunar sem við fjöl-
skyldan erum afar þakklát fyr-
ir.
Ég kveð mömmu nú með
söknuði um leið og ég er þakk-
lát fyrir að hún þurfi ekki leng-
ur að þjást í veikum líkama. Ég
lýt höfði og segi takk fyrir mig
í dýpstu og fallegustu merk-
ingu þeirra orða.
Erna.
Snemma í haust var ljóst að
dögum mömmu færi að fækka
með okkur.
Ég minnist hennar fyrst og
fremst sem þrautseigrar
hvunndagshetju sem eins og
svo margar konur af hennar
kynslóð var hvorki með víl né
væl þó blési á móti. Þess utan
var húmorinn hennar helsta að-
alsmerki, hárfínn og á köflum
beittur. Mamma talaði stundum
um fæðingu mína, örverpisins,
en henni þótti fæðingin ganga
mjög illa, tók heila sex klukku-
tíma á móti klukkustundarfæð-
ingu frumburðarins þrettán ár-
um áður. Á þeim tíma var
fjölskyldan nýflutt í Kópavog-
inn.
Mamma bjó því í Kópavog-
inum í 53 ár. Hún var ekki mik-
ið fyrir að tala um sjálfa sig
hún mamma og ef ég spurði
hana einhvers frá liðinni tíð
svaraði hún gjarnan: „Æ ég
man það ekki, það er svo langt
síðan.“
Frá því ég man eftir mér var
mamma útivinnandi, lengst af á
tveimur stöðum frá morgni til
kvölds og ferðamátinn var með
strætó. Þá tóku heimilisstörfin
við.
Samneyti pabba við Bakkus
bætti svo oftar en ekki um bet-
ur við verkefnin heima fyrir.
En með húmorinn og jafnaðar-
geð að vopni tókst henni að
stíga ölduna. Hún átti afar gott
samband við Halla heitinn
bróður sinn og þau voru hvort
öðru mikill félagsskapur og
stuðningur.
Mamma og pabbi komu oft
til okkar meðan við bjuggum á
Ísafirði.
Við töluðum svo saman í
síma þess á milli og frægt er
orðið þegar hún hringdi eitt
sinn og spurði frétta. Allt gott,
var svarið, en hjá þér? Bara
ágætt, ég hringdi nú bara til að
segja þér að þú ættir móður á
lífi!
Henni fannst þá orðið frekar
langt milli símtala og sendi
þessa hárfínu áminningu! Til-
svörin hafði hún oft á reiðum
höndum með blöndu af tilsögn
og glettni.
„Án þess að mér komi það
við eða ætli að skipta mér af,
þá finnst mér nú samt að þú
ættir …“ voru iðulega ummæli
mömmu ef hún hafði einhverjar
athugasemdir um ákvarðanir
okkar.
En hennar líðan og óskir
voru sjaldan í forgangi. Sem
minnst átti fyrir henni að hafa
og ef hún var lasin á efri árum
sínum þá var það bara leti og
lækna vildi hún sem minnst
tala við.
Við starfslok flutti mamma í
Hamraborgina. Þar átti hún
ljúf ár og fór að gefa sér tíma
fyrir sjálfa sig. Fyrir fáum ár-
um fór að bera á minnisleysi
hjá mömmu og síðustu tvö árin
bjó hún í hjúkrunarsambýlinu í
Roðasölum 1. Þar naut hún ein-
stakrar umhyggju sem ber að
þakka.
Ég á eftir að sakna hennar
mömmu en er um leið þakklát.
Þakklát fyrir öll árin og minn-
ingarnar, hlýjuna og umhyggj-
una og allt sem hún gaf.
Lífsgátan er stundum stríð,
stundum góð og stundum blíð.
Stundum bros og stundum tár,
stundum ljúf og stundum sár.
(HZ)
Guðbjörg Sigrún.
Sigríður
Einarsdóttir
Eiginmaður minn, faðir okkar,
afi og langafi,
AÐALSTEINN HARALDSSON,
lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi
þann 21. október.
Útförin fór fram í kyrrþey þann 28. október.
.
Ester Óskarsdóttir
Kristín Aðalsteinsdóttir Lena Gunnlaugsdóttir
Óskar Aðalsteinsson Ester Ósk Óskarsdóttir
Haraldur Aðalsteinsson Aðalsteinn Haraldsson
Haraldur Már Haraldsson Hugrún Eva Haraldsdóttir
Arnar Óli
Rakel Irma
Viktoría Ósk
Tinna Guðrún og
Heiða Kristín.