Morgunblaðið - 02.11.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Það er mikið um dýrðir og fagra tóna
framundan en tónlistarhátíðin Ice-
land Airwaves hefst í dag. Hátíðin er
alltaf vel sótt enda yfirtekur tónlist af
fjölbreyttum toga Reykjavíkurborg,
sem vert er að sækja.
Henný María Frímannsdóttir,
skipulags- og fjölmiðlafulltrúi hátíð-
arinnar, segir hátíðina lofa góðu í ár.
Um 220 listamenn og hljómsveitir
stíga á svið, þar af um 150 frá Íslandi
og um 70 frá útlöndum. Huga þarf að
mörgu en vel hefur gengið að skipu-
leggja hátíðina. „Við erum allt árið að
skipuleggja hátíðina og erum strax
farin að leggja drög að næstu hátíð.
Þetta er því stöðugt í gangi,“ segir
Henný. Skipulag og utanumhald er í
höndum Hennýjar, Gríms Atlasonar
framkvæmdastjóra og Egils Tómas-
sonar sem kemur að framleiðslu og
bókunum á íslenskum hljómsveitum.
Auk þeirra starfa um 10 aðilar að
þessu stóra batteríi og sjálfboðaliðar
eru um 30.
Slá líklega met í „off venue“
„Við erum með 13 staði þar sem
fram fara tónleikar en svo erum við
með um 64 staði þar sem fer fram
„off venue“ dagskrá. Líklega erum
við að slá eitthvert met í því en um
800 tónleikar fara fram á þessum
stöðum, sem er frábært,“ segir
Henný.
Mörg stór nöfn koma fram í ár og
má þar einna helst nefna Björk, Of
Monsters and Men, Mugison, Kias-
mos, Agent Fresco, Emmsjé Gauta,
Úlf Úlf og fleiri.
„Björk verður með sérstaka tón-
leika í Eldborgarsal Hörpu laugar-
daginn 5. nóvember en uppselt er á
þá. Það verða haldnir aukatónleikar á
þriðjudeginum 8. nóvember,“ segir
Henný. Af stóru erlendu listamönn-
unum má nefna PJ Harvey, War-
paint, Dizzee Rascal, Silvana Imam,
Julia Holter, Santigold og Digable
Planets, svo einhver dæmi séu tekin.
Margir koma og njósna
Á hverju ári sækir fjöldi erlendra
blaðamanna hátíðina og margir eru í
rannsóknarleiðangri. „Ætli það séu
ekki hundruð blaðamanna sem mæta
á hátíðina. Við erum með ákveðna
tölu þar sem við deilum út blaða-
mannapössum en svo er fullt af
blaðamönnum sem koma og láta ekki
vita af sér,“ segir Henný. „Það sama
má segja um áhrifafólk í bransanum,
það eru margir sem við vitum af en
Airwaves flýgur af stað í dag
Stærsta tónlistarhátíð Íslands tekur yfir miðborgina
næstu daga Rúmt ár tekur að skipuleggja hátíðina
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ljósadýrð Tónleikar FM Belfast fóru fram í Vodafone-höllinni í fyrra.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Allt endar á safni og það er orðið
langt síðan pönkið fór hér á safn; í
Árbæjarsafni var 2004 sett upp sýn-
ing um pönk og diskó,“ segir popp-
fræðingurinn og tónlistarmaðurinn
Dr. Gunni, Gunnar Lárus Hjálm-
arsson, þegar hann er spurður út í
Pönksafn Íslands sem verður opnað
í dag í Bankastræti 2, því syðra af
gömlu almenningssalernunum sem
voru kölluð Núllið.
Þau Dr. Gunni, Guðfinnur Sölvi
Karlsson, Axel Hallkell Jóhannes-
son og Þórdís Claessen koma að
stofnun safnsins og hafa unnið
hörðum höndum að uppsetningu
þess en reynt er að fanga andrúms-
loft pönktímabilsins hér á landi með
ljósmyndum og ýmsum munum.
Opnunin er á dagskrá Iceland Air-
waves-hátíðarinnar og mun fræg-
asti pönkari sögunnar, John Lydon,
sem þekktur var sem Johnny Rot-
ten þegar hann var söngvari Sex Pi-
stols, opna safnið en hann les einnig
úr bókum sínum á bókmenntahátíð
Iceland Airwaves.
„Hvers vegna pönksafn?“ endur-
tekur Dr. Gunnar spurningu blaða-
manns. „Finni [Guðfinnur] átti hug-
myndina og ásældist þessi klósett
sem hafa verið ónotuð síðan 2006,
fyrir utan að Nýló var kvennamegin
í eitt ár. Finna fannst þetta töff
lókal, fékk það frá borginni og þetta
er sýning til framtíðar.“
– Hvaða tímabil er undir?
„Við segjum poppsögu Íslands í
mjög stuttu máli fram til 1978, þeg-
ar Stranglers komu og Fræbbblarn-
ir spiluðu í fyrsta skipti. Þá förum
við djúpt í söguna til svona ’83, þeg-
ar Rás 2 drap pönkið endanlega.“
Gunni hlær. Hann bætir svo við að
líklega hafi það þó verið dautt löngu
áður. „Mest var að gerast 1980 og
’81, fram á ’82. Melarokk var líklega
síðasta stóra uppákoman og svo
voru öll böndin hætt. Þetta tímabil
stóð stut og ef Friðrik Þór Frið-
riksson hefði ekki gert heimildar-
myndina Rokk í Reykjavík veit
maður ekki hvaða vægi þetta tíma-
bil hefði í sögunni. En það er ekki
til neins að vera með ef-vangavelt-
ur …“
– Þú hefur sagt Friðrik Þór hafa
drepið þessa bylgju.
„Hann bæði drap hana og ramm-
aði inn og gerði hana að því sem
hún er. Þessi bönd hefðu öll hætt
þótt ekki hefði verið gerð þessi
mynd.“
– En sumar hljómsveitir þessa
tímabils hafa haldið áfram að koma
fram, til að mynda Fræbbblarnir,
Vonbrigði og Q4U.
„Flestir byrja aftur á endanum,
nema mér sýnist útilokað að Purrk-
ur Pillnikk og Þeysarar komi saman
– maður veit samt aldrei. Bubbi er
enn að spila lög Utangarðsmanna,
bara með Dimmu í dag. Enda engin
ástæða til að hætta að spila meðan
maður hefur gaman af því.“
Merkileg kassettuútgáfa
– Var þessi íslenska bylgja pönk?
„Nei. Þetta var miklu meira póst-
pönk, nýbylgjurokk eða gúanórokk.
En pönk er orð sem flestir skilja.
Það hefði enginn mætt ef þetta héti
Nýbylgjusafn Íslands! Hvorki Ís-
lendingar né útlendingar hefðu fatt-
að það en pönk er orð sem allir
kveikja á. Auðvitað var samt pönk í
Fræbbblunum þegar þeir voru að
byrja og svo sem í fullt af öðrum
hljómsveitum.“
Gunni segir Pönksafnið standa að
stórkostlegri kassettuútgáfu.
„Pönksafnið er auðvitað með
safnaverslun, þar sem verða bolir
og fleira glingur þegar fram í sækir,
en djásnið er tvær safn-kassettur
sem koma nú út. Önnur nefnist Soð-
ið pönksafn og er með stúdíóupp-
tökum, efni sem hefur komið út áð-
ur á plötum, 22 lög með 22
hljómsveitum. Sumt hefur verið
endurútgefið en margt af þessu hef-
ur ekki fyrr komið út á stafrænu
formi; þótt kassettan sé ekki staf-
ræn þá fá kaupendur líka niðurhals-
slóð. Hin kassettan nefnist Hrátt
pönksafn og á henni eru 24 lög með
jafn mörgum hljómsveitum sem
hafa aldrei komið út áður. Það eru
tónleikaupptökur, demó og slíkt og
mikil fjársjóðskista sem þar opnast.
Þetta eru upptökur alveg frá 1978,
meðal annars fyrsta skipti sem
pönk var spilað á Íslandi, Halló og
heilasletturnar á Kjarvalsstöðum í
ágúst ’78. Svo er þarna eðalefni með
Fræbbblunum, Utangarðsmönnum,
Þeysurum, Purrki Pillnikk, Jonee
Jonee og minna þekktum böndum
eins og Haug, Allsherjarfríkum frá
Ísafirði, Nast úr Kópavoginum.
Meira segja óútgefið lag með
Þursaflokknum. Þeir bjuggu það til
fyrir sándtrakkið í Jóni Oddi og
Jóni Bjarna, lagið er í pönkuðum
anda og heyrist aðeins út úr ung-
lingaherberginu. Ari Eldjárn er
mikill Þursaaðdáandi og gróf þetta
upp, ég mixaði lagið á korteri og
Þursarnir samþykktu útgáfuna.“
Eins og grænt slím
Fyrirvarinn fyrir opnun safnsins
var ekki langur, aðeins eru tveir
mánuðir síðan sú ákvörðun var tek-
in að opna það á Iceland Airwaves.
„Þetta er dálítið íslenski hugs-
unarhátturinn, að rumpa hlutum af
og vinna í akkorði í maníukasti við
að klára eitthvað,“ segir Dr. Gunni.
– Þetta er nú ekki stórt húsnæði.
Dugir það?
„Þetta er stærsta safn landsins í
minnsta rými landsins! Það er unnið
með rýmið og mikil nánd –
pönknánd.“
– Er það ekki hávær yfirlýsing að
fá frægasta pönkara sögunnar,
John Lydon, til að opna safnið?
„Jú jú, það er stórkostlegt. Mað-
ur hefði haldið að slíkir kappar
væru með þéttskipaða dagbók mörg
ár fram í tímann. En hann mætir
með vini sínum að kynnast landi og
þjóð.“
– Finnst ykkur þið vera að pakka
pönkinu saman í eitt skipti fyrir öll?
„Þetta er gert til að hafa gaman
af auk þess sem við hyllum þetta
tímabil. Af þessu spruttu Sykurmol-
arnir, fyrsta fræga hljómsveit Ís-
lands fyrir utan Mezzoforte, og síð-
an Björk og Sigur Rós og allt hitt
sem rúllar í kjölfarið. Þetta er hyll-
ing og skemmtun. En fólk er ennþá
að spila allskonar pönk, hér og er-
lendis. Músík er bara eitthvað sem
veltur áfram eins og grænt slím.
Það er alltaf gaman fyrir unga
krakka sem hafa ekki heyrt allt að
kynnast svona góðu stöffi.“
„Þetta er stærsta safn landsins
í minnsta rými landsins“
Fyrrverandi söngvari Sex Pistols, John Lydon, opnar Pönksafn Íslands í Bankastræti í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pönksafnið Tveir aðstandenda Pönksafns Íslands, Guðfinnur Sölvi Karlsson og Axel Hallkell Jóhannesson, fyrir framan húsakynni safnsins í Bankastræt-
inu. „Þetta er hylling og skemmtun,“ segir Dr. Gunni um safnið sem gefur út kasettur með áður óútgefnum upptökum íslenskra pönk og póst-pönk sveita.