Morgunblaðið - 02.11.2016, Side 36
Tíminn í landslaginu er yfirskrift
fyrirlesturs sem Jón Proppé heldur í
Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag
milli kl. 12 og 13. Í fyrirlestrinum
ræðir Jón tilurð og for-
sendur sýningar sinn-
ar í Listasafni Árnes-
inga árið 2013 þar
sem verk Arngunnar
Ýrar Gylfadóttur
voru sett í sam-
hengi við
verk Ásgríms
Jónssonar.
Jón Proppé ræðir
tímann í landslaginu
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. 11 ára svipti sig lífi eftir einelti
2. Fann strax mun á 17:7
3. Þrír óska eftir umboði
4. Laun Loga hækkuðu um hálfa …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Unglist, listahátíð ungs fólks, er
haldin í 25. sinn í ár. Markmið Ung-
listar, sem hefst á morgun og stend-
ur til 12. nóvember, er að skapa vett-
vang þar sem ungu fólki gefst
tækifæri til að koma list sinni á fram-
færi og að vekja athygli á hinum fjöl-
breytilega menningarheimi ungs
fólks í samfélaginu. Á Unglist verður
m.a. slegið á klassíska strengi, spun-
inn teygður og þrammað á tískupöll-
um. Fyrstu viðburðir verða í tengslum
við Airwaves í Hinu húsinu í Pósthús-
stræti dagana 3.-5. nóvember.
Unglist í 25. sinn
Kvikmyndasafn
Íslands efnir til
hátíðarsýningar í
Háskólabíói í
kvöld kl. 18 í til-
efni þess að 110
ár eru liðin frá því
að reglubundnar
kvikmyndasýn-
ingar hófust á Ís-
landi. Sýnd verður 110 ára gömul
stuttmynd um för íslenskra alþingis-
manna til Kaupmannahafnar 1906 og
kvikmyndin Morðsaga eftir Reyni
Oddsson frá 1977, sem þykir marka
upphaf nútímabíómyndagerðar á Ís-
landi. Allir eru velkomnir.
Hátíðarsýning á
Morðsögu í dag
Á fimmtudag Austan og norðaustan 10-15 m/s, en hægari suð-
vestantil. Rigning víða um land, sums staðar slydda inn til lands.
Á föstudag Norðaustanátt, 8-13 m/s og dálítil él fyrir norðan og
austan, en annars léttskýjað.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Þurrt að mestu á norðaustanverðu landinu.
Dregur úr vindi og úrkomu suðvestantil í kvöld. Hiti 0 til 8 stig.
VEÐUR
„Tékkarnir hafa marga
hörkugóða leikmenn. Þeir
eru afar ákafir keppnis-
menn sem er nokkuð sem
við getum eflaust nýtt okk-
ur með því að standa vel
klárir á því sem þeir gera,“
sagði Arnór Atlason, leik-
stjórnandi íslenska lands-
liðsins í handknattleik, við
Morgunblaðið en Íslend-
ingar etja kappi við Tékka í
undankeppni EM í Laugar-
dalshöll í kvöld. »3
Tékkar ákafir
keppnismenn
Willum Þór Þórsson stýrir KR-liðinu
næstu tvö árin í það minnsta, það var
staðfest á fréttamanna-
fundi í höfuðstöðvum
félagsins í Frosta-
skjóli í gær. Willum
sneri gengi liðsins
við í sumar eftir að
Bjarni Guðjónsson
var rekinn og und-
ir hans
stjórn náði
KR Evr-
ópusæti.
»1
Willum Þór verður
áfram í Frostaskjólinu
Manchester City vann mikilvægan og
frækinn sigur á Barcelona í gær, 3:1, í
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
Fjögur lið tryggðu sér sæti í 16 liða úr-
slitum keppninnar, þó að enn séu tvær
umferðir eftir. Arsenal og PSG fara
áfram úr A-riðli en Arsenal hefur þar
með komist í 16 liða úrslitin fjórtán ár
í röð. Atlético Madrid og Bayern Münc-
hen fara áfram úr D-riðli. »3
Fjórtánda árið í röð hjá
Arsenal-mönnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mikill körfuboltaáhugi er í Borgarnesi og hann
jókst til muna þegar kvennalið Skallagríms
tryggði sér þátttökurétt í efstu deild á síðasta
keppnistímabili, um 40 árum eftir að kvennadeild-
in var endurvakin. „Ég
sleppi helst ekki leik og
það var ótrúleg tilfinning,
þegar stelpurnar komust
aftur upp í úrvalsdeild,“
segir Ingibjörg Hargrave,
fyrrverandi leikmaður.
Skallagrímur varð Ís-
landsmeistari kvenna í
körfubolta 1964, um fimm
árum eftir að æfingar hóf-
ust. Ingibjörg var í meist-
araliðinu. Hún segir að
fyrstu árin hafi einkum verið um innbyrðis leiki
við Snæfell í Stykkishólmi að ræða, en síðan hafi
verið ákveðið að taka þátt í Íslandsmótinu.
Fyrirmæli að sunnan
„Eitt það eftirminnilegasta er að við urðum að
fara í læknisskoðun til að fá leyfi til þess að keppa
og fengum leyfisbréf því til staðfestingar,“ segir
Ingibjörg. „Þetta voru örugglega fyrirmæli að
sunnan en við reyndumst hæfar til keppni.“
Eftir að Guðmundur Sigurðsson var ráðinn
kennari í Borgarnesi byrjuðu konur þar í körfu-
bolta. Bandaríski herinn hafði skilið eftir körfur á
staðnum og voru þær settar upp í leikfimissal
skólans. „Guðmundur var faðir boltans hjá okkur
og við nutum þess,“ segir Ingibjörg. Hún bætir
við að þær hafi ekkert verið í langskotum og skor-
ið ekki hátt, þær hafi unnið Björk í Hafnarfirði
18:9 og ÍR 23:22. „En mótherjarnir voru ekki
glaðir, að missa titilinn í hendurnar á einhverjum
sveitajúllum utan af landi.“
Ingibjörg er ekki viss um að allir hafi gert sér
grein fyrir mikilvægi þess að kvennaliðið hafi í
raun verið að ríða á vaðið í kvennaíþróttum á
landsvísu. „Þetta var skemmtilegt og minningin
yljar,“ segir hún og bendir á að 1973 hafi þrjár
stúlkur úr Borgarnesi verið valdar í landsliðið,
María Erla Geirsdóttir, Hulda Karitas Harðar-
dóttir og Þóra Ragnarsdóttir.
Fastagestir á heimaleikjum Skallagríms eiga
sín sæti og Ingibjörg situr alltaf á sama stað. „Ein
vinkona mín treystir sér ekki á leikina, segist ekki
þola svona mikla spennu, en þegar bæði liðin eru í
úrvalsdeild er nóg að gera allan veturinn, það er
alltaf leikur. Þetta er mjög gott fyrir samfélagið,
samstaðan eykst og það er svo gott á dimmum
vetrardögum að geta verið á leik og notið þess.“
Flott amma
Ingibjörg vill ekki gera upp á milli karla- og
kvennaliðsins, „en hjartað slær meira með
kvennaliðinu“. Hún rifjar upp að eitt sinn hafi
spennan í karladeildinni verið meiri en góðu hófi
gegnir og hún hafi ákveðið að taka þriggja ára
barnabarn með sér á leik. „Spennan var svo mikil
að amman gleymdi sér, ég mundi ekki eftir því að
ég var með barn með mér fyrr en einhver kom
með strákinn til mín. Þá hrökk ég við og tengda-
sonurinn sagði að líklega fengi sá stutti ekki að
fara með mér aftur á leiki.“
En barnabörnin eiga sinn Íslandsmeistara.
„Einu sinni vorum við þessar gömlu kallaðar út á
gólf fyrir leik og beðnar um að skjóta á körfu,“
segir Ingibjörg. „Ég var viss um að ég myndi ekki
drífa og barnabörnin óttuðust það líka en svo fór
að ég skoraði og þá hrópaði eitt barnabarnið: „Sjá
ömmu! Hún er svo flott!“
„Sveitajúllur“ þurftu leyfisbréf
Skallagrímur í Borg-
arnesi ruddi brautina
fyrir konur úti á landi
Morgunblaðið/Theódór K. Þórðarson
Stuðningur Ingibjörg Hargrave situr alltaf á sama stað og hvetur karla- og kvennalið Skallagríms.
Meistarar 1964 Guðmundur Sigurðsson, Erla Guðmundsdóttir, Ásdís Kristjánsdóttir, Ingibjörg Har-
grave, Ólöf Finnbogadóttir, Sigrún Kristjánsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Karlsdóttir.