Morgunblaðið - 05.11.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
Sigling
Vestur-Karíbahaf | 10.– 21. mars
Verð frá: 389.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í ytri klefa með glugga.
Verð án Vildarpunkta: 399.900 kr.
Fararstjóri er Lilja Jónsdóttir.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Flogið með Icelandair
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ekki er óalgengt fyrir okkur Íslendinga að sjá
erlenda ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur spóka
sig um í hvaða veðri sem er. Þessir ferðamenn
voru einbeittir á svip við val sitt á íslenskum
póstkortum þegar ljósmyndara Morgunblaðsins
bar að garði. Líklegt er að þeir hafi tekið sér frí
frá Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni sem nú
stendur yfir og farið í búðir í miðbænum. Sam-
kvæmt spá Veðurstofunnar á að viðra ágætlega í
höfuðborginni um helgina, hægviðri og lítils
háttar væta. Ágætt veður ætti því að vera fyrir
ferðalanga.
Póstkort með Íslandsmyndum eftirsótt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldi erlendra ferðamanna í miðbænum vegna Airwaves
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Frá því að formaður Sjálfstæðis-
flokksins tók við umboði til stjórnar-
myndunar frá forseta Íslands á
þriðjudag hefur hann átt fundi með
forsvarsmönnum allra flokka á Al-
þingi auk þingflokks síns. Form-
legar viðræður um myndun nýrrar
ríkisstjórnar eru þó ekki hafnar.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við forsvarsmenn þeirra
stjórnmálaflokka sem líklegast má
telja að geti gengið inn í ríkis-
stjórnarsamstarf og höfðu þeir
sömu sögu að segja; menn eru að
tala saman á óformlegum nótum og
engin stór tíðindi liggja fyrir enn
sem komið er.
„Menn eru alveg að tala saman.
Við heyrum í ákveðnum aðilum og
þeir heyra í okkur en menn halda
spilunum þétt að sér,“ sagði einn
þeirra. Telur sá einnig ljóst að vilji
sé til að vanda vel til verka og að
næsta ríkisstjórn muni byggjast á
trausti á milli manna.
Annar var heldur svartsýnn á
framhald viðræðna og sagði „lítið
að frétta“. Efaðist sá hinn sami
einnig um að formanni Sjálfstæðis-
flokksins myndi takast að mynda
næstu ríkisstjórn. „Ég held það
verði stjórnarkreppa – þetta er
ekki að fara að takast,“ sagði hann.
Ekkert í gangi – allir í biðstöðu
Sá þriðji sagðist hafa fengið
skilaboð frá formanni Sjálfstæðis-
flokksins þess efnis að „ekkert væri
að ske“ og að hann myndi taka sér
tíma fram yfir helgi til að ákveða
næstu skref í stjórnarmyndun.
Fulltrúi fjórða stjórnmálaflokks-
ins sagðist bara hafa upplýst sitt
fólk um það samtal sem átti sér stað
í ráðherrabústaðnum á fimmtudag.
„Annars hefur ekkert gerst.“
Loks sagðist sá síðasti ekki hafa
talað við neinn – að undanskildum
stórum hópi fjölmiðlamanna.
Halda spilunum þétt að sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umboðið Bjarni Benediktsson ræð-
ir við fjölmiðlamenn á Bessastöðum.
Formenn flokka
eru að ræða saman á
óformlegum nótum
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Uppi varð fótur og fit í höfuð-
stöðvum Eimskips í fyrrakvöld þeg-
ar uppgötvaðist að skrifstofustarfs-
maður erlendis hafði á fimmtudag
ýtt á rangan takka og greitt reikn-
inga úti um allan heim sem ekki voru
komnir á gjalddaga.
Ólafur William Hand, upplýsinga-
fulltrúi Eimskips, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að um nýjan
starfsmann hefði verið að ræða.
„Vegna mistaka í uppsetningu á að-
gangi starfsmannsins á tölvunni
greiddi hún eitthvað af reikningum
sem ekki áttu að greiðast fyrir en
eftir um 20 daga. Þannig að ef um
einhvern skaða er að ræða fyrir fé-
lagið er hann sá að við greiddum
reikninga 20 dögum of snemma,“
sagði Ólafur.
Hann segir að um tíu milljónir
króna hafi verið ofgreiddar, sem sé
ekki stór upphæð þegar horft sé á
veltu Eimskips. Vissulega hafi tími
farið í það í fyrradag og fyrrihluta
dags í gær að leiðrétta mistökin en
skaði félagsins sé enginn.
Ólafur segir að strax í fyrradag
hafi þessara óeðlilegu fjölgreiðslna
orðið vart, vegna þess að eftirlitið
með greiðslukerfinu væri mjög gott.
„Við erum að greiða um allan heim
margar milljónir króna á dag. Einni
fjölgreiðslu er rennt í gegnum bank-
ana einu sinni á dag og um leið og
þetta uppgötvaðist var farið að at-
huga hvort verið væri að greiða ein-
hverjum sem átti ekki að greiða. Í
einhverjum tilvikum fengust fjár-
munir millifærðir strax, og í öðrum
tilvikum komu fjármunirnir aftur til
baka í dag [í gær],“ sagði Ólafur.
Eimskip
ofgreiddi
reikninga
Mistök rakin til
nýs starfsmanns
Morgunblaðið/Rósa Braga
Eimskip Viðskiptavinir fengu
óvæntan glaðning í vikunni.
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Leikurinn Starborne, sem fyrirtækið
Solid Clouds framleiðir um þessar
mundir, er stærsti tölvuleikur sem
búinn hefur verið til hér á landi frá
því Eve Online frá CCP varð til.
Fyrirtækið var stofnað í árslok
2013 og eru nokkrir fyrrverandi
starfsmenn CCP í hópi stofnenda.
Leikurinn er nú í stórri alþjóðlegri
prófun og komu meðal annarra
nokkrir erlendir spilarar sérstaklega
til landsins til að hitta starfsmenn
fyrirtækisins og innlenda spilara til
skrafs og ráðagerða.
Eftir miklu að slægjast
„Þetta er stór herkænskuleikur. Á
hverjum leikjaþjóni er gert ráð fyrir
að 5.000-20.000 spilarar spili saman
og byggi upp herveldi sín með efna-
hagskerfi og herafla og myndi banda-
lög. Svo verða margir leikjaþjónar í
gangi, þannig að heildarfjöldi spilara
getur skipt hundruðum þúsunda,“
segir Stefán Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Solid Clouds. „Hver
leikur tekur sex mánuði.“
Stefán segir markaðinn sem leikn-
um er stefnt inn á vera stóran og því
eftir miklu að slægjast.
„Þessi markaður sem við stefnum á
velti nærri einum milljarði Banda-
ríkjadala á síðasta ári.“
Alls vinna nú 10 manns hjá fyrir-
tækinu og á meðal þeirra margir sem
gerkunnugir eru tölvuleikjaheim-
inum og hafa langa reynslu á því
sviði. „Við höfum safnað nærri 170
milljónum í hlutafé auk þess sem tek-
ist hefur að afla ýmissa styrkja. Við
munum gefa leikinn út á næsta ári.
Þessi prófun sem nú stendur yfir er
sú fjórða í röðinni og sem liður í henni
eru um 200 manns um allan heim að
spila leikinn á hverjum degi.“
Blómlegur markaður
Stefán segir tölvuleikjamarkaðinn
blómlegan hér á landi.
„Það er gríðarleg gerjun í þessari
starfsemi og fjöldi fyrirtækja sprett-
ur hér upp. Búið er að efla Tækniþró-
unarsjóð, en hann er líflína margra
hérlendra tæknifyrirtækja. Auk þess
er búið að bæta lagaumhverfi ný-
sköpunarfyrirtækja þótt lengra megi
ganga.“
Stefna á milljarðs dala markað
Íslenska leikjafyrirtækið Solid Clouds undirbýr útgáfu eins stærsta tölvuleiks
sem gerður hefur verið hérlendis Starfsemi tölvuleikjafyrirtækja er blómleg
Morgunblaðið/Golli
Solid Clouds Erlendir spilarar kampakátir á kynningarkvöldi í gær.