Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016 ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hellu Langþráður draumur og baráttumál sveit- arstjórna og íbúa í gamla Rangárvallahreppi og sveitarfélaginu Rangárþingi ytra virðist vera að rætast. Hafin er hönnun brúar yfir Þverá sunnan við Odda á Rangárvöllum. Veittar hafa verið 50 milljónir króna til verks- ins, sem nýtast við að steypa undirstöður brú- arinnar. Sveitarstjórnin hefur samþykkt að koma að vegagerð að brúnni og kirkjuráð hef- ur samþykkt að vegurinn liggi í gegnum land Oddastaðar. Lögreglustjórinn á Suðurlandi telur þetta vera æskilega flóttaleið af svæðinu sunnan Þverár ef til flóða kemur eftir nátt- úruhamfarir og hringvegurinn ásamt fleiri leiðum lokast.    Ljósleiðaravæðing sveitarfélagsins, þ.e.a.s. á öll heimili, fyrirtæki og sumarhús í dreifbýli, er nú í fullum gangi. Styrkur fékkst til verksins, 118 milljónir króna, sveitarfélagið greiðir um 130 milljónir og notendur greiða tengigjald. Flest heimili, um 300 talsins, og sumarhús, yfir 100, verða með í verkefninu, en fastur kostnaður heimila og lögbýla er 250 þúsund kr., en eigendur sumarhúsa greiða kostnaðarverð, sem getur verið æði misjafnt eftir staðsetningu. Reiknað er með að fyrstu tengingar verði virkar í lok nóvember.    Byggingarframkvæmdir eru nokkrar í Rangárþingi ytra, samkvæmt upplýsingum frá byggingarfulltrúa eru um það bil 15 íbúð- arhús í byggingu, bæði á Hellu og í dreifbýl- inu, fyrir utan sumarhús, útihús og annað, svo sem viðbyggingu við Dvalar- og hjúkr- unarheimilið Lund, sem styttist í að verði tek- in í notkun. Yfir 40 lóðir eru tilbúnar til úthlut- unar utan Hellu og rúmar 30 lóðir á Hellu.    Stracta hótel er að byggja nýja álmu sunnan við hótelið með 28 herbergjum með baði. Hluti þeirrar álmu verður nýttur fyrir gistiaðstöðu starfsmanna. Þetta er fyrsti áfangi að hugsanlegri stækkun í 210 her- bergja fjölda, en núna er hótelið 134 herbergi að stærð. Þess má geta að ný bílaleiga hefur hafið starfsemi, Stracta Car Rental, og hefur hún bækistöðvar bæði á Hellu og í Keflavík, nærri flugvellinum.    Ferðamenn virðast staldra æ lengur við á hótelum sunnanlands, enda stutt í margs kon- ar afþreyingu og náttúruperlur á svæðinu. Dæmi eru um að erlendir hópar gisti í heila viku í einu og fari dagsferðir út frá t.d. Hellu. Þeir koma þá beint frá Keflavík í hótelgist- ingu. Flybus South er ný þjónusta hjá Kynn- isferðum, þar sem boðið er upp á beinar ferðir til og frá Hveragerði, Selfossi, Hellu og Hvols- velli til Keflavíkurflugvallar.    Áður hefur verið greint frá hugmyndum um uppbyggingu fyrir ferðamenn á þjónustu- miðstöð sunnan vegar á móts við sláturhús Reykjagarðs. Það verkefni er enn í pípunum. Unnið er að öðru verkefni á Hellu, sem hefur hlotið vinnuheitið „Sveitin og vegurinn“. Þar er reiknað með að sameina nokkrar lóðir sunnan vegar rétt austan við hringtorgið á Rangárbökkum.    Arkitektastofan Arkís sér um hönnun verksins og undirbúning, en helsta driffjöður fjárfesta er Olís. Ekki er reiknað með að þetta verði venjuleg þjónustumiðstöð, heldur á þetta að verða nokkurs konar hvíldarstaður fyrir ferðamenn, með ýmiskonar afþreyingu sem umhverfið og heimamenn geta komið að, svo sem fjölbreytilegum göngustígum sem tengja saman nestis- og grillrjóður, úti- leiksvæði, dýragerði fyrir hesta, kindur, geit- ur, hænur, hunda og kanínur. Þannig á úti- svæðið að höfða til breiðs hóps viðskiptavina. Áætlað er að koma fyrir gömlum tækjum úr íslenskri sveit til dæmis, traktorum og hey- vinnuvélum. Jafnframt verði boðið upp á þjón- ustu með aðferðafræðina „Beint frá býli“ að leiðarljósi.    Undirskriftalistar liggja nú frammi á nokkrum stöðum í héraðinu varðandi heilsu- gæslumál í Rangárþingi, þar sem virðist ítrek- að skorið niður í þjónustu við íbúa og ferða- menn. Skorað er á Þóri Kolbeinsson yfirlækni að halda áfram starfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og jafnframt skorað á stjórn HSU að sjá til þess að þrjár 100% stöður lækna verði í Rangárvallasýslu á 2 heilsugæslu- stöðvum á Hellu og Hvolsvelli. Jafnframt er þess krafist að þjónustan verði bætt eftir hefðbundinn afgreiðslutíma, en eins og staðan er núna þá er hún engin í Rangárvallasýslu, einungis á Selfossi.    „Frá fé til flíkur“ er sýning sem sett var upp að Brúarlundi í Landsveit nú í haust við virkilega góðan orðstír. Það er hópur kvenna sem stendur að sýningunni en sá hópur kallar sig Spunasystur. Þær leggja áherslu á að vinna úr ull frá grunni. Nú er síðasta tækifæri til að sjá þessa sýningu þar sem síðasta sýningarhelgin er nú um helgina og tilvalið að skella sér í bíltúr í Landsveitina. Opið verður frá kl. 10-16 laugardag og sunnudag. Frítt er inn – ullarvörur, kaffi og kökur til sölu. Byrjað að hanna nýja yfir Þverá við Odda Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Ljósleiðari Hluti af búnaðinum sem grafinn er í jörðu við ljósleiðaravæðingu Rangárþings ytra. TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Pappir v borðar v pokar v bönd skreytingarefni v teygjur v kort pakkaskraut v sellófan www.danco.is Heildsöludreifing Karl Ásgeir Sigurgeirsson Hvammstanga Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- ráðherra boðaði til fundar í Miðfirði í lok október. Þar með var hrundið af stað verkefni sem kallast Búskapar- skógrækt í Húnaþingi vestra. Er þetta átak til eins árs, sem fel- ur m.a. í sér ný skógræktarverkefni, með það að markmiði að bæta bú- setuskilyrði, fjölga tækifærum fyrir bændur, auka skógarþekju og brúa bil milli skógræktar og hefðbundins landbúnaðar. Þetta verkefni tengist einnig skrefum íslensks landbúnaðar í átt til kolefnishlutleysis. Áhersla verður einkum á eftirtalin atriði: Skjólbeltakerfi fyrir ræktun, s.s. hvers konar jarðrækt. Skjóllundi fyrir búfé, t.d. haust- beit, sauðburðarhólf og önnur beit- arhólf. Beitarskóga í tiltölulega stórum afgirtum beitarstýrðum hólfum. Landgræðsluskóga á illa eða ógrónu landi. Skjólskóga með fjölbreyttum trjá- gróðri þar sem tekist er á við stað- bundin vindakerfi. Akurskógrækt á landi sem ekki nýtist til matvælaframleiðslu að svo stöddu. Fjölnytjaskóga með einhver af ofangreindum markmiðum sem og timburnytjar. Fyrst var farið að Brekkulæk, þar sem hjónin Friðrik Jóhannsson og Henrike Wappler hafa náð góðum árangri, einkum með ræktun lerkis. Skoðað var ræktunarsvæðið og bragðað á lerkisveppum, en síðan haldið að Melstað, þar sem sam- komulag um verkefnið var undir- ritað. Tengiliður ráðuneytisins er Björn Helgi Barkarson, en umsjón- armenn Sæmundur Þorvaldsson og Johan Holst, svæðisstjóri Skóg- ræktarinnar í Húnavatnssýslum. Skógræktin mun vinna með bændum á svæðinu að þessu verk- efni, veita þeim ráðgjöf, fara yfir þá kosti sem verða í boði varðandi ofan- greinda flokka skógræktar og hvernig þeir geta stutt við annan landbúnað og bætt skilyrði til bú- setu. Leitað verði eftir viðhorfi bænda á svæðinu til núverandi stuðningskerfis í skógrækt og hvort og þá hverju þyrfti að breyta svo þeir sjái sér hag í þátttöku í því. Þá verður leitað eftir samstarfi við hagsmunasamtök bænda. Veittar verða í verkefnið alls 7 milljónir á árinu 2017 í stuðning við skógrækt á þessu svæði með beinum fram- lögum. Búskaparskógrækt í Húnaþingi vestra  Brúar bil milli skógræktar og hefðbundins landbúnaðar Skógur Skógræktarsvæðið í Brekkulæk skoðað áður en skrifað var undir. Ljósmynd/Aldís Olga Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.