Morgunblaðið - 05.11.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
5. nóvember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 110.58 111.1 110.84
Sterlingspund 138.03 138.71 138.37
Kanadadalur 82.44 82.92 82.68
Dönsk króna 16.479 16.575 16.527
Norsk króna 13.504 13.584 13.544
Sænsk króna 12.332 12.404 12.368
Svissn. franki 113.52 114.16 113.84
Japanskt jen 1.0732 1.0794 1.0763
SDR 153.06 153.98 153.52
Evra 122.64 123.32 122.98
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 153.3971
Hrávöruverð
Gull 1301.7 ($/únsa)
Ál 1726.0 ($/tonn) LME
Hráolía 47.15 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Jóhannes Rúnar
Jóhannsson hefur
ákveðið að segja sig
úr stjórn eignar-
haldsfélagsins
Kaupþings. Félagið
var stofnað í kjölfar
nauðasamnings
slitabús Kaupþings
í desember síðast-
liðnum.
Jóhannes var
skipaður í skilanefnd Kaupþings í októ-
ber 2008 og í slitastjórn þegar skila-
nefnd var lögð niður í janúar 2012. Eftir
að nauðasamningur við kröfuhafa var
staðfestur í desember sat Jóhannes í
bráðabirgðastjórn Kaupþings fram til
mars 2016 og frá þeim tíma í stjórn fé-
lagsins. Jóhannes segir sig úr stjórninni
frá og með 3. nóvember næstkomandi.
Jóhannes Rúnar segir
sig úr stjórn Kaupþings
Jóhannes Rúnar
Jóhannsson
STUTT
BAKSVIÐ
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Skuldastaða fyrirtækja í sjávarútvegi
heldur áfram að batna en síðustu ár
hafa einkennst af niðurgreiðslu skulda
og aukinni hagræðingu innan geirans,
að mati Jónasar Gests Jónassonar,
sviðstjóra ráð-
gjafarsviðs Delo-
itte á Íslandi, en
hann fór yfir
rekstur greinar-
innar árið 2015
samkvæmt gagna-
grunni Deloitte
fyrir sjávarútveg-
inn á Sjávarút-
vegsdeginum í
vikunni. Grunnur-
inn inniheldur
91% rekstrarupplýsinga sjávarút-
vegsfyrirtækja á síðastliðnu ári.
Samkvæmt grunninum hafa skuldir
sjávarútvegsfyrirtækjanna lækkað
um 161 milljarð frá því að þær náðu
hámarki árið 2008, en þá námu þær
494 milljörðum króna og höfðu hækk-
að úr 279 milljörðum í kjölfar efna-
hagshrunsins 2008. En mikið af skuld-
unum var í erlendri mynt, segir Jónas
í samtali við Morgunblaðið.
Hærri veiðigjöld á næsta ári
„Framlegð sjávarútvegsins
(EBITDA) árið 2015 var almennt
betri en árið 2014 hjá greininni í heild
sinni, þrátt fyrir minnkandi síld- og
makrílveiði. Skýrist þetta meðal ann-
ars af auknum veiðum á loðnu og verð-
mætaaukningu á þorski og rækju. Að
óbreyttu mun þetta skila sér í hærri
veiðigjöldum á næsta fiskveiðiári.“
Veiðigjöldin sem voru lögð á fyrir
fiskveiðiárið 2016/2017 eru í kringum 5
milljarðar króna en þau miðast við af-
komu ársins 2014, að sögn Jónasar.
„Veiðigjöldin sem lögð verða á á næsta
fiskveiðiári, sem hefst 1. september
2017, munu hækka töluvert vegna
góðrar afkomu ársins 2015. Menn
fengu einnig ákveðinn afslátt af veiði-
gjöldum á þessu ári, sem nemur um
einum milljarði króna, en þetta verður
síðasta árið sem þessi afsláttur er
veittur samkvæmt núgildandi lögum.
Þetta mun einnig leiða til hækkunar á
veiðigjöldum,“ segir Jónas.
Bein opinber gjöld hækkað
En þetta eru ekki einu framlögin
sem sjávarútvegurinn greiðir til sam-
félagsins en bein opinber gjöld geirans
hafa aukist umtalsvert frá árinu 2008,
er þau námu 5 milljörðum króna að því
er fram kemur í gagnagrunni Deloitte.
„Varðandi beinu opinberu gjöldin sem
sjávarútvegurinn greiðir, þá sjáum við
að undanfarin ár hafa þau verið milli
21-25 milljarðar árlega,“ segir Jónas
að lokum.
Skuldir sjávarútvegs minnkað
um 161 milljarð á sjö árum
Gagnagrunnur Deloitte
» Hlutfall skulda sjávarútvegs-
fyrirtækja á móti framlegð
lækkaði úr 9,6 árið 2008 í 4,7
árið 2015.
» Tekjur árið 2015 voru 275
milljarðar og framlegð 71 millj-
arður króna.
» Grunnurinn heldur utan um
91% af rekstrarupplýsingum
greinarinnar fyrir árið 2015.
Hlutfall skulda á móti framlegð hefur lækkað um tæpan helming frá árinu 2008
Skuldastaða sjávarútvegsfyrirtækja
2008 2010
Skuldir Skuldir/EBITDA (hægri ás)
2012 20142009 2011 2013 2015
500
400
300
200
100
0
12
10
8
6
4
2
0
H
ei
m
ild
:G
ag
na
gr
un
nu
rD
el
oi
tt
e
m
a.
kr
.
445
494
440
419
389
341
363
333
Jónas Gestur
Jónasson
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Hönnun fyrir lífið
Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015
Góð hönnun á ekki aðeins við um útlit hlutar, heldur einnig upplifun
notandans á honum. Nýju innbyggðu eldhústækin fráMiele eru
hönnuðmeð þessa hugmyndafræði í huga. Tækin passa öll
fullkomlega saman hvað varðar útlit, áferð og virkni.
Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í eldhústækin og innréttinguna
og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði.
Hönnun og ráðgjöf á staðnum.
best
brands
IIIJlillr 11
● Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um
2,9 milljarða króna í október, samkvæmt
bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands
gaf út í gær. Það sem af er árinu er vöru-
skiptajöfnuður Íslands við útlönd nei-
kvæður um 82,6 milljarða króna.
Í október nam fob-verðmæti vöru-
útflutnings 49,3 milljörðum króna og fob-
verðmæti innflutnings 46,4 milljörðum
króna. Minna var flutt inn af hrávörum og
rekstrarvörum milli mánaða en fob-
verðmæti þeirra nam 11,9 milljörðum í
október samaborið við 14,3 milljarða í
september. Meira var flutt út af sjávar-
afurðum í október en fob-verðmæti þeirra
nam 23,1 milljarði samanborið við 19,9
milljarða sem flutt var út fyrir í september.
Vöruskiptajöfnuðurinn
jákvæður í október
Hagvöxtur verður 4,8% á þessu ári
og 4,4% á því næsta, samkvæmt
nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Ís-
lands. Neysla og fjárfesting, sem
hafa verið í örum vexti frá 2014,
standa að baki hagvexti á þessum
tveimur árum. Vöxtur neyslu, fjár-
festingar og ferðaþjónustu er nú
talinn verða meiri en Hagstofan
hafði áður spáð.
Í þjóðhagsspánni er áætlað að
einkaneyslu aukist um 7,1% á þessu
ári en sambærilegur vöxtur hefur
ekki sést í nærfellt áratug. Bif-
reiðakaup, ferðalög, raftæki og
húsgögn eru á meðal þess sem vega
þyngst í vexti einkaneyslu, að því er
fram kemur hjá Hagstofunni, en
síðasta árið hefur neysla á áfengi
t.a.m. einnig aukist myndarlega.
Einkaneysla í hlutfalli við ráð-
stöfunartekjur lækkar samt sem
áður, þar ráðstöfunartekjur hafa
hækkað enn meira en einkaneysla
vegna raunhækkunar launa og
mikillar aukningar atvinnu. Það
þýðir að sparnaður er að aukast og
telur Hagstofan að svigrúm geti
verið fyrir frekari neysluaukningu.
Bent er á að á fyrri hluta ársins
hafi atvinnuvegafjárfesting aukist
um 37,3% og var stór hluti aukning-
arinnar vegna fjárfestingar í
tengslum við ferðaþjónustu, m.a.
hótelum, rútum og flugvélum. Þá
séu fjárfestingar í stóriðju og orku-
geiranum einnig komnar á skrið.
Hagstofan spáir 27,5% aukningu
atvinnuvegafjárfestingar í ár og
7,4% á næsta ári, þar sem sam-
dráttur fjárfestinga í skipum og
flugvélum dregur úr vexti.
Á árinu 2018 spáir Hagstofan að
hagvöxtur verði 3%, og árin 2019 til
2022 er spáð 2,6-2,9% hagvexti.
sn@mbl.is
Mesti vöxtur einkaneyslu í um áratug
Ráðstöfunartekjur vaxa þó hraðar en
einkaneyslan samkvæmt þjóðhagsspá
Morgunblaðið/Heiddi
Vöxtur Neysla á áfengi hefur aukist
myndarlega samkvæmt Hagstofu.