Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Síðustu fylgiskannanir í Bandaríkj-
unum benda til þess að Hillary Clin-
ton sé mun líklegri til að sigra í for-
setakosningunum á þriðjudaginn
kemur en Donald Trump eigi samt
raunhæfa möguleika á að fara með
sigur af hólmi. Auðkýfingurinn hefur
sótt í sig veðrið í lykilríkjum, sem
gætu ráðið úrslitum í kosningunum,
og fylgi forsetaefnanna er nú hníf-
jafnt í tveimur af mikilvægustu ríkj-
unum, Flórída og Norður-Karólínu.
Donald Trump er talinn þurfa að
sigra í báðum ríkjanna til að eiga
möguleika á að fá meirihluta kjör-
mannanna sem kjósa forsetann
formlega. Aftur á móti gæti Clinton
tapað í báðum ríkjunum en samt
fengið nógu marga kjörmenn, eða
270, til að hreppa forsetaembættið.
Kannanir fréttaveitunnar Reuters
og rannsóknafyrirtækisins Ipsos
benda til þess að líkurnar á því að
Hillary Clinton verði næsti forseti
Bandaríkjanna hafi minnkað úr 95%
í 90%. Eins og staðan var í fylgis-
mælingunni á miðvikudaginn var
taldist Clinton vera nokkuð örugg
um að fá a.m.k. 257 kjörmenn og
Trump 236. Líklegt þótti að Clinton
fengi alls um 300 kjörmenn.
Kannanir Reuters og Ipsos ná til
15.000 manns í öllum ríkjum Banda-
ríkjanna. Þær benda til þess að fylgi
Trumps hafi aukist í 24 ríkjum en
minnkað í ellefu síðastliðna viku.
Stuðningurinn við Clinton jókst í
þrettán ríkjum en minnkaði í 22.
Forskot hennar í öllum ríkjunum
mældist um sex prósentustig þegar
aðeins var miðað við þá sem þykja
líklegir til að kjósa.
Blökkumenn geta skipt sköpum
Sigurlíkur Hillary Clinton minnka
verulega ef kjörsókn blökkumanna
minnkar til muna miðað við síðustu
kosningar þegar Barack Obama var
endurkjörinn forseti. Minnki kjör-
sókn þeirra t.a.m. um 15 prósentu-
stig er talið að sigurlíkur Clinton
minnki í um 72%. Aukist kjörsókn
hvítra karlmanna, helsta kjósenda-
hóps Trumps, um 5 prósentustig og
minnki kjörsókn blökkumanna um
10 stig gæti Trump reynst jafnlík-
legur til að sigra og Hillary Clinton.
Það er að segja ef kjörsókn kjós-
enda sem eiga ættir að rekja til
Rómönsku Ameríku eykst ekki veru-
lega. Um 60% líklegra kjósenda í
þessum hópi styðja Hillary Clinton
og aukist kjörsókn hans um 10 pró-
sentustig myndi það bæta að miklu
leyti upp 10 prósentustiga minni
kjörsókn blökkumanna, ef marka má
kannanir Reuters og Ipsos.
Þarf að sigra í 5-6 lykilríkjum
Fréttaskýrandi CNN-sjónvarps-
ins, Eric Bradner, telur að til að eiga
möguleika á að verða forseti þurfi
Donald Trump að sigra í fjórum
lykilríkjanna sem baráttan stendur
um. Þau eru Flórída (29 kjörmenn),
Ohio (18), Norður-Karólína (15) og
Iowa (6). Takist honum það dugir
það honum þó ekki því að hann væri
þá kominn með 260 kjörmenn, að
meðtöldum ríkjum sem hafa verið
vígi repúblikana í forsetakosningum.
Fái hann þessa 260 kjörmenn dug-
ir honum að sigra í einu af fjórum
lykilríkjanna, Pennsylvaníu (20 kjör-
menn), Wisconsin (10), Virginíu (13)
og Michigan (16).
Sigri Clinton í öllum ríkjunum
fjórum myndi Trump þurfa að sigra í
tveimur af þremur minni ríkjum:
Nevada (6), New Hampshire (4) og
Nýju-Mexíkó (5).
Bradner telur að ef kjörsókn
blökkumanna minnkar verulega auki
það sigurlíkur Donalds Trump í fjór-
um lykilríkjanna: Flórída, Norður-
Karólínu, Georgíu og Michigan.
Samtals eru þau með 76 kjörmenn.
Demókratar hafa því lagt mikla
áherslu á að tryggja að sem flestir
blökkumenn neyti atkvæðisréttar
síns í kosningunum. Barack Obama
hefur látið mikið að sér kveða í kosn-
ingabaráttunni síðustu daga og
nokkrir þekktir tónlistarmenn úr
röðum blökkumanna hafa einnig lagt
Clinton lið til að reyna að auka kjör-
sóknina.
Að mati Bradners gæti Trump
einnig notið góðs af því í Arizona,
Flórída, Nevada, Colorado og Nýju-
Mexíkó ef kjörsókn kjósenda af róm-
ansk-amerískum uppruna verður
ekki eins mikil og gert hefur verið
ráð fyrir. Ákveði margir kjósendur
að kjósa frjálshyggjumanninn Gary
Johnson frekar en Clinton gæti það
orðið til þess að Trump sigraði í
þremur ríkjum: Nevada, New
Hampshire og Colorado.
Stuðningsmenn Donalds Trump
hafa dregið niðurstöður skoðana-
kannana í efa og sagt að þær séu
ekki marktækar vegna þess að
margir kjósendur séu tregir til að
viðurkenna í símakönnunum að þeir
styðji auðkýfinginn umdeilda en
kjósi hann þegar þeir verða einir í
kjörklefunum. Reynist þetta rétt
gæti Trump sigrað í ríkjum á borð
við Wisconsin, Michigan og Penn-
sylvaníu þar sem Clinton er talin
hafa verið með forskot.
Auk blökkumanna naut Barack
Obama mikils stuðnings meðal
ungra kjósenda og aðstoð hans í
kosningabaráttunni gæti hjálpað
Clinton að tryggja sér atkvæði
þeirra. Bernie Sanders, keppinautur
Clinton í forkosningum demókrata,
var vinsælli en hún meðal unga fólks-
ins og hann kom fram á kosninga-
fundi með henni í Norður-Karólínu í
fyrradag. Hann hrósaði henni fyrir
að lofa því að beita sér fyrir hækkun
lágmarkslauna og draga úr ójöfnuði.
Biðlað til kvenna
Stuðningsmenn Hillary Clinton
vona að mikill stuðningur við hana
meðal kvenna ráði úrslitum í kosn-
ingunum. Munurinn á fylgi forseta-
efnanna virðist þó vera lítill meðal
hvítra kvenna, ef marka má nýja
skoðanakönnun CBS-sjónvarpsins,
þótt Trump hafi verið gagnrýndur
fyrir niðrandi ummæli um konur.
Þriðja eiginkona auðkýfingsins,
Melania, tók þátt í kosningabarátt-
unni í fyrradag og flutti þá fyrstu
ræðu sína frá flokksþingi repúblik-
ana í júlí. Hún er fyrrverandi fyrir-
sæta, fædd í Slóveníu og vinni
Trump baráttuna um Hvíta húsið
verður það í fyrsta skipti í tvær aldir
sem kona fædd utan Bandaríkjanna
verður forsetafrú landsins. Í ræð-
unni talaði Melania um hvernig það
væri að vera innflytjandi og móðir í
Bandaríkjunum og sagði að eigin-
maður sinn myndi stuðla að réttlátu
samfélagi, bæta líf þeirra sem minna
mættu sín, barna og foreldra þeirra.
Hún hét því einnig að berjast gegn
einelti á netinu verði hún næsta for-
setafrú Bandaríkjanna og sagði að
andrúmsloftið í samfélaginu ein-
kenndist af of mikill grimmd og
hörku.
Melania Trump flutti ræðuna í
Pennsylvaníu og fari eiginmaður
hennar með sigur af hólmi þar gæti
það reynst stórt skref að Hvíta hús-
inu. Hillary Clinton er með þriggja
prósentustiga forskot í Pennsylvaníu
og leggur mikla áherslu á að halda
því. Hún hyggst ljúka kosningabar-
áttu sinni í Fíladelfíu, stærstu borg
ríkisins, á mánudaginn kemur. Með
henni á kosningafundinum verða
meðal annars eiginmaður hennar,
Bill, Obama forseti og eiginkona
hans, Michelle, ein af öflugustu
stuðningsmönnum Hillary í baráttu
hennar fyrir því að verða fyrst
kvenna kjörin forseti Bandaríkj-
anna.
Trump talinn eiga möguleika
Mestar líkur taldar á að Hillary Clinton verði forseti Bandaríkjanna, fyrst kvenna Donald Trump
gæti sigrað ef kjörsókn hvítra karlmanna eykst en minnkar til muna meðal blökkumanna í lykilríkjum
Heimildir: RealClearPolitics/270towin.com
Barist um kjörmenn lykilríkja
Fjórtán ríki eru talin geta ráðið úrslitum í baráttu Hillary Clinton og Donalds Trump um Hvíta húsið. Til að sigra
þarf annað forsetaefnanna að fá a.m.k. 270 af kjörmönnunum sem kjósa næsta forseta Bandaríkjanna formlega.
1980 1983 1988 1992 2008 20121996
Ronald REAGAN George
BUSH
(Rep.)
Sigurvegarar
Ár, flokkur
(Dem.)
Bill CLINTON
2000 2004
GeorgeW. BUSH Barack OBAMA
*Byggist á meðal-
fylgi í könnunum,
270towin.com
Nevada (NV)
Fjöldi
kjörmanna
ríkisins
4
New Hampshire (NH)Michigan (MI)
16
Ohio (OH)
18
Georgía (GA)
16
Norður-Karólína (NK)
15
Virginía (VA)
13
Pennsylvanía (PA)
20
Flórída (FL)
29
Wisconsin (WI)
10
Iowa (IA)
6
Trumpmeð
forskot
Clinton með
forskot
Lítill
fylgismunur
Skýringar
Niðurstaða síðustu forsetakosninga í Bandaríkjunum
Sigurvegarar í ríkjunum 14 í síðustu níu kosningum
Staðan í lykilríkjunum
skv. síðustu könnunum*
NV
IA
OH
NH
FL
NK
GA
VA
PA
MI
MO
WI
AZ
CO
6
Arizona (AZ)
11
Colorado (CO)
9
Missouri (MO)
10
Mjótt á mununum
» Meðalforskot Hillary Clinton
í síðustu skoðanakönnunum í
Bandaríkjunum mældist 2,6
prósentustig í gær, ef marka
má vefinn RealClearPolitics.
» Meðalfylgi Hillary Clinton
var 45,3% og Donalds Trump
42,7%. 4,1% styður frjáls-
hyggjumanninn Gary Johnson
og 2,1% Jill Stein, forsetaefni
Græna flokksins, samkvæmt
útreikningum stjórnmála-
vefjarins.
Í stjórnarskrá Kentucky í Banda-
ríkjunum er ákvæði sem bannar
„fávitum og vitskertu fólki“ að
greiða atkvæði í kosningum en
bannið gildir ekki nema dómari
hafi úrskurðað að viðkomandi mað-
ur sé ekki hæfur til að kjósa.
Þetta kemur fram í umfjöllun
fréttavefjar breska ríkisútvarpsins
um ýmis furðuleg lög sem gilda enn
í sumum ríkjum Bandaríkjanna í
tengslum við kosningar. Orðin „fá-
vitar“ og „vitskert fólk“ voru notuð
í stjórnarskrám Ohio, Nýju-Mexíkó
og Mississippi og mun þá hafa verið
átt við fólk með andlega fötlun.
„Fávitum“ er einnig bannað að
kjósa í Mississippi en ekki nema
dómstóll úrskurði að viðkomandi sé
óhæfur til að kjósa. Í alríkislögum
er hins vegar ákvæði um að ekki sé
hægt að meina fólki að kjósa á
þeirri forsendu að það sé óhæft til
þess, nema í mjög fáum undantekn-
ingartilvikum.
Í Tennessee er embættismönnum
ríkisins bannað með lögum að taka
þátt í einvígjum. Heyi þeir einvígi
eða taki þátt í slagsmálum varðar
það sekt eða embættissviptingu,
samkvæmt lögunum.
Í Bandaríkjunum eru ekki lengur
nein lagaákvæði sem banna sölu
áfengis á kjördegi. Í nokkrum ríkj-
um gilda þó enn reglugerðir um
slíkt bann í sumum borgum og
sýslum. Til að mynda er sala áfeng-
is bönnuð í átján bæjarfélögum og
sjö sýslum í Indiana. Að sögn
fréttavefjar BBC hefði George
Washington, fyrsti forseti Banda-
ríkjanna 1789-1797, ekki verið hrif-
inn af slíku banni. Þegar hann bauð
sig fram í þingkosningum í Virg-
iníu árið 1758 hafi hann notað allan
kosningasjóð sinn, 50 dali, í áfengi.
Hann hafi keypt um 600 lítra af
áfengi til að auka kjörsóknina og
vinna kjósendur á sitt band.
Í Bandaríkjunum eru lög um að-
skilnað ríkis og kirkju en í sumum
ríkjum er reynt að fara í kringum
þau með ákvæði um að frambjóð-
endur þurfi að trúa á Guð eða
„viðurkenna tilvist æðri veru“. Slík
lagaákvæði eru í Texas, Tennessee,
Suður-Karólínu, Norður-Karólínu,
Mississippi, Maryland og Arkansas,
að sögn BBC.
Þótt sum lagaákvæðanna virðist
vera löngu úrelt samrýmast önnur
geimöldinni. George W. Bush, þá-
verandi ríkisstjóri Texas, undirrit-
aði lög árið 1997 til að gera geim-
förum kleift að greiða atkvæði með
tölvupósti í kosningum. Bandaríski
geimfarinn Kate Rubin kaus í
geimnum áður en hún sneri til jarð-
ar á sunnudaginn var og geimfar-
inn Shane Kimbrough hyggst kjósa
í Alþjóðageimstöðinni. bogi@mbl.is
„Fávitum“ er
bannað að kjósa
AFP
Geimkjósandi Bandaríski geimfarinn Shane Kimbrough hyggst notfæra
sér lög sem sett voru í Texas og gera honum kleift að kjósa í geimnum.
Ýmis furðuleg lög í gildi vestanhafs