Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
✝ Þórir HaukurEinarsson
fæddist í Bráðræði
á Skagaströnd 5.
júní 1929. Hann lést
á Hólmavík 21.
október 2016.
Foreldrar hans
voru Louis Einar
Pétursson, f. á
Rannveigarstöðum
í Álftafirði 1. des-
ember 1902, d. 2.
nóvember 1960, og Hólmfríður
Hjartardóttir, f. á Skagaströnd
31. desember 1909, d. 15. desem-
ber 1991. Þau slitu samvistum
1935. Stjúpfaðir Þóris Hauks frá
1937 var Pálmi Sigurðsson frá
Steiná í Svartárdal, f. 22. febrúar
1914, d. 21. apríl 1992. Alsystur
Þóris:
Ragna Petra Sigríður Einars-
dóttir Jensen, f. 1931, Hallfríður
Alda Einarsdóttir, f. 1933, d.
1978, Ásta Hjördís Einarsdóttir,
f. 1934. Systkini sammæðra: Ingi-
björg Perla Pálmadóttir, f. 1937,
Guðrún Björk Pálmadóttir, f.
Þórir Haukur og Lilja Sigrún
eignuðust fimm börn:
Hólmfríður Þórisdóttir, f. 1961,
maki Pétur Örn Pétursson, f.
1949.
Börn þeirra Aðalbjörg Eir, f.
1987, Lilja Hlín, f. 1989, Þórir
Pétur, f. 1997. Börn Péturs
Nanna Þorbjörg, f. 1970, Guð-
mundur Rúnar, f. 1978. Þóra Þór-
isdóttir, f. 1962, maki Sigurður
Magnússon, f. 1966. Börn þeirra
Sigrún Birta, f. 1984, Guðbjörg
Lára, f 1990, Kolbeinn Lárus, f.
1991, Þangbrandur Húmi, f. 1996.
Guðbjörg Þórisdóttir, f. 1963,
maki Ágúst Þór Eiríksson, f.
1957. Börn þeirra Haukur Þór, f.
1987, Eiríkur Þór, f. 1988, Davíð
Hringur, f. 1997, Tirsa Sól, f.
1999, Ásta Þórisdóttir, f. 1967,
maki Svanur Kristjánsson, f.
1965. Börn Ástu Silja, f. 1992,
Bára Örk, f. 2001. Börn Svans
Daniel Gudjon Vosatka-
Kristjansson, f. 1990. Meagan
Ailsa Dwyer, f. 1995. Einar Hauk-
ur Þórisson, f. 1980, maki Krist-
jana Pálsdóttir, f. 1977. Börn
þeirra Þórir Haukur, f. 2010,
Hanna Rún, f. 2012, og Páll Ingi,
f. 2016.
Útför hans fer fram frá
Drangsneskapellu í dag, 5. nóv-
ember 2016, og hefst athöfnin kl.
14.
1942, d. 1943, Gunn-
ar Birkir Sigurgeir
Pálmason, f. 1944,
Sigurður Þráinn
Pálmason, f. 1948,
Súsanna Klemens-
ína Pálmadóttir, f.
1953, d. 2004. Systk-
ini samfeðra: Jón
Bragi Einarsson, f.
1936, Anna Ein-
arsdóttir, f. 1943,
Pétur Helgi Ein-
arsson, f. 1946, Ragnar Jóhanns-
son, f. 1946.
Þórir Haukur kvæntist 12.
febrúar 1961 Lilju Sigrúnu Jóns-
dóttur, f. 4. nóvember 1939. For-
eldrar hennar voru Jón Bjarni
Ólafsson, f. 1. júlí 1903, d. 29. maí
1987, og Guðrún Jóna Bjarney
Guðjónsdóttir, f. 25. júlí 1900, d.
18. október 1967.
Fósturforeldrar Lilju Sigrún-
ar voru Jón Kristinn Ingimundur
Jóhannesson, f. 3. mars 1895, d.
8. apríl 1973, og Guðbjörg Bjarn-
veig Jóhannesdóttir, f. 28. októ-
ber 1887, d. 22. mars 1962.
Elsku pabbi og afi. Við þökk-
um þér fyrir árin sem við höf-
um átt með þér. Við munum
sakna þess að heyra í þér hljóð-
ið og segja þér undan og ofan af
því sem við erum að fást við í
daglega lífinu. Alltaf sýndir þú
viðfangsefnum okkar áhuga og
spurðir um hagi barnanna. Þú
varst okkur öllum jákvæð fyr-
irmynd, þú kenndir okkur að
með áhuga og staðfestu væru
okkur allir vegir færir. Við
munum spila rommý þér til
heiðurs og minnast þín um leið
með bros á vör, þykjast vera
með eintóma hunda og romma
svo öllum að óvörum. Við mun-
um halda minningu þinni á lofti,
því þú ert og munt verða stór
hluti af lífi okkur allra.
Farðu í friði vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Mortens)
Við sendum saknaðarkveðju
til þín, Fiskinesbóndi, í sum-
arlandið og vitum að þú hefur
það gott.
Einar Haukur, Kristjana,
Þórir Haukur, Hanna Rún
og Páll Ingi.
Mig langar að kveðja Þóri
Hauk Einarsson með nokkrum
orðum.
Þórir Haukur flutti á
Drangsnes árið 1971 og tók að
sér skólastjórn og kennslu við
barnaskólann á Drangsnesi og
fórst það honum vel úr hendi.
Árið 1974 var leitað til hans að
taka einnig við stjórn sveitarfé-
lagsins og var hann oddviti í
átta ár. Á þeim árum var mikið
um að vera í sveitarfélaginu,
vatnsveituframkvæmdir, byggð
voru tvö íbúðarhús á vegum
hreppsins, hafnarframkvæmdir
í Kokkálsvík og margt fleira
sem heyrði undir oddvita,
ásamt öllu bókhaldi sveitarfé-
lagsins.
Þórir lagði mikla vinnu í
þessa hluti og vann af mikilli
nákvæmni. Ekki hafði hann
tölvu til að létta sér verkið, en
mun hafa fengið eina slíka en
ekki tekið hana í notkun þar
sem hann sætti sig ágætlega við
hlutina eins og þeir voru. Eftir
átta ár í sveitarstjórn þótti hon-
um komið gott og baðst undan
endurkjöri og ætlaði að minnka
við sig vinnu. En það stóð ekki
lengi, því að fjórum árum liðn-
um var leitað til hans aftur og
hann beðinn að gefa aftur kost
á sér til starfa í sveitarstjórn
sem oddviti og sjá um allt bók-
hald, sem hann og gerði. Þetta
sýndi vel að menn treystu hon-
um fyrir þessum veigamiklu
störfum, og hve hann var til í að
leggja mikið á sig fyrir sam-
félagið sem hann bjó í.
Þórir hafði gaman af smíðum
og ýmsu brasi og reisti hann
sér hesthús á Fiskinesi rétt fyr-
ir innan Drangsnes, þó hann
hefði ekki komist á spjöld sög-
unar fyrir hestamennsku. Alla-
vega breytti hann hesthúsinu í
íbúðarhús, sem hann flutti í
þegar hann hætti kennslu og
hafði ekki lengur íbúðina sem
fylgdi starfi skólastjóra. Þórir
var vel ritfær og lét skoðanir
sínar í ljós á síðum dagblað-
anna, en hann var stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins og
blandaði sér gjarnan í lands-
málin.
Þórir var gamansamur og
tók oft til máls í samkvæmum
og gerði gjarnan grín að sjálf-
um sér. Tók þátt í ýmsum
uppákomum, bæði í skólanum
og á þorrablótum ásamt konu
sinni Sigrúnu og lögðu þau ým-
islegt gott til og ekki skemmdi
fyrir leikmyndin og gervin sem
Sigrún átti vafalaust stóran
hlut í.
Ég fékk einungis að njóta
kennsluhæfileika Þóris Hauks
óbeint, en hann kenndi konu
minni, Guðbjörgu Hauksdóttur,
og síðar elstu börnum okkar og
líkaði þeim afar vel hans leið-
sögn.
Að lokum vil ég þakka Þóri
Hauki samfylgdina og hans
störf í okkar þágu.
Sigrúnu og fjölskyldu votta
ég mína innilegustu samúð.
Óskar Albert Torfason,
Drangsnesi.
Þórir Haukur
Einarsson
✝ Heiðrún Krist-jánsdóttir
fæddist í Skálavík
í Reykjafjarð-
arhreppi, N-Ísa-
fjarðarsýslu, hinn
27. júní 1942. Hún
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Ísafirði 25. októ-
ber 2016. Foreldr-
ar hennar voru
Ásdís Sigrún
Finnbogadóttir, f. 6.4. 1921, d.
3.7. 1994, og Þórarinn Kristján
Benediktsson, f. 20.4. 1919, d.
21.3. 1991. Fósturfaðir Heið-
rúnar var Jón Jakobsson, f.
11.10. 1913, d. 12.7. 1986. Ás-
dís og Jón bjuggu lengst af í
Hörgshlíð í Mjóafirði við Djúp.
Systkini Heiðrúnar sam-
mæðra eru: Kristjana Dag-
björt, f. 6.10. 1945, Jakob Þor-
geir, f. 1.8. 1949, Margrét
Þórdís, f. 3.7. 1954, og Finn-
bogi Sigurður, f. 26.10. 1956.
Fóstursystur hennar eru:
Gerður, f. 17.7. 1941, og Magn-
ea, f. 29.1. 1960, d. 28.10. 2005.
gift Hermanni Sigurlaugi
Gunnarssyni, f. 23.1. 1961, syn-
ir þeirra eru: a) Haukur Árni,
f. 20.6. 1982, kvæntur Örnu
Grétarsdóttur, f. 4.6. 1984,
börn þeirra eru: Ernir Már, f.
31.8. 2008, Margrét Rán, f.
11.8. 2011, og óskírð, f. 29.10.
2016. b) Rúnar Jón, f. 30.6.
1987, í sambúð með Bryndísi
Eyjólfsdóttur, f. 2.9. 1989, son-
ur þeirra er Kári, f. 15.9. 2016,
dóttir Rúnars Jóns og Völu
Karenar Viðarsdóttur, f. 11.8.
1988, er Ásdís Björk, f. 23.3.
2010.
Fyrstu ár Heiðrúnar voru í
Skálavík og Miðhúsum en hún
flutti svo með foreldrum sínum
í Hörgshlíð árið 1953. Heiðrún
var bóndi af lífi og sál. Hún
tók hún mikinn þátt í bústörf-
um foreldra sinna og átti
snemma sinn eigin fjárstofn.
Heiðrún og Kristján bjuggu
fyrst með foreldrum hennar í
Hörgshlíð en fluttu svo í
Hveravík á Reykjanesi en það-
an að Hvítanesi í Skötufirði.
Árið 1969 keyptu þau jörðina
Svansvík í Ísafirði og fluttu
þangað. Þar bjuggu þau til
æviloka.
Heiðrún verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju í dag, 5.
nóvember 2016, og hefst at-
höfnin kl. 14.
Systkini hennar
samfeðra eru: Ein-
ar Ísfeld, f. 25.7.
1946, d. 12.3.
1987, Rafn f. 6.2.
1948, og Margrét,
f. 6.12. 1953.
Heiðrún giftist
1.1. 1962 Kristjáni
Karli Péturssyni,
f. 15.3. 1931, d.
7.11. 2008. For-
eldrar hans voru:
Pétur Finnbogason, f. 2.5.
1894, d. 22.4. 1990, og Stef-
anía Jensdóttir, f. 5.8. 1893, d.
22.4. 1972. Þau bjuggu lengst
af á Hjöllum í Skötufirði við
Djúp.
Börn Heiðrúnar og Krist-
jáns eru: 1) Jóhanna Rannveig,
f. 6.8. 1960, sonur hennar er
Kristján Rafn, f. 21.11. 2002.
2) Pétur Stefán, f. 14.4. 1962, í
sambúð með Rakel Þór-
isdóttur, f. 16.11. 1971, börn
hennar eru: Pétur, f. 28.3.
1993, Lena f. 15.6. 1994, og
Elma, f. 16.5. 2002. 3) Þor-
gerður Helga, f. 9.11. 1964,
Heiðrún í Svansvík hefur
kvatt þetta líf. Stórt skarð hef-
ur verið höggvið í knérunn
Djúpmanna. Þótt Rúna frænka
væri ekki mikil á velli, var hún
engu að síður stór persónuleiki.
Þegar ég var krakki dreymdi
mig um að verða stór eins og
Rúna. Líkamlega tókst mér það
og gott betur, en á mörgum
sviðum var hún stærri en sam-
ferðafólkið. Við vorum systra-
dætur og mæður okkar afar
nánar, enda aldar upp saman
fjarri foreldrahúsum. Rúna var
aðeins þrjátíu og eins árs, þeg-
ar hún veiktist og lamaðist upp
frá því hægra megin og missti
málið að mestu leyti. Ég var í
Reykjavík, þegar hún kom suð-
ur á Landspítalann og um
páskana var hún hjá móður-
systur okkar. Mig sker ennþá í
hjartað, þegar ég minnist þessa
tíma.
Þessi heimakæra kona, sem
var heimili, börnum og búi allt,
var svo umkomulaus og sterk í
senn. Hún var sannkölluð hetja,
sem hélt ótrauð áfram búskap,
með aðstoð Kristjáns, sem
gerði allt, sem í hans valdi stóð
fyrir hana. Meira að segja að
sinna bústörfum. Það var oft
hlegið innilega og hann ekki
síst, þegar var verið að ragast í
fé og Kristján kom dragandi á
eða lamb og Rúna sagði Nei!
Hún var svo fjárglögg að með
eindæmum þótti og ærnar voru
hennar stóra áhugamál.
Þegar Rúna var ung stúlka
og átti heima í Hörgshlíð, kom
hún sér upp fjárstofni og
byggði sér fjárhús á Tang-
astekknum. Hún hafði afskap-
lega gaman af mislitu fé og ef
fæddist fallega flekkótt hrút-
lamb, var hún ekki sein á sér
að gelda lambið, enda átti hún
lengi nokkra sauði, sem voru
yfirleitt mislitir. Þá var hún
ekki síður liðtæk í smala-
mennskum og á Gáska sínum
var henni ekkert ómögulegt.
Rúna var einstaklega glaðlynd
og ljúf. Mér er í minni hve
gaman var er hún kom í heim-
sókn í Miðhús, svo kát og glöð
og góð við litlu frænkur sínar
ekki síður en við móðursyst-
urina og alla aðra. Hún átti
ekki annað til.
Þóra Hansdóttir.
Heiðrún
Kristjánsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Kirkjubóli, Bjarnardal,
lést á Skjóli 30. október.
Minningarathöfn fer fram frá Laugarnes-
kirkju mánudaginn 7. nóvember klukkan 13.
Jarðsett verður laugardaginn 12. nóvember klukkan 14 í Holti í
Öndundarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Skjóls.
.
Sigurleifur Ágústsson, Þórhildur Sverrisdóttir,
Guðmundur I. Sigurleifsson, Fríða Rakel Linnet,
Benedikt Sigurleifsson, Rebekka S. Stefánsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
DANÍEL STEFÁNSSON
barþjónn, starfsmaður TBR,
lést á heimili sínu, Þverási 18, þann 28.
október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 10. nóvember klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Karitas.
.
Karen Kristjánsdóttir,
Drífa Daníelsdóttir, Kristinn Skúlason,
Mjöll Daníelsdóttir, Guðmundur Viðarsson,
Kristján Daníelsson, Sigríður Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN ÓSKARSSON,
fyrrverandi eftirlitsmaður,
lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 30.
október. Útförin fer fram frá Seltjarnar-
neskirkju miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 15.
.
Katrín Marteinsdóttir,
Lilja Jónsdóttir, Ragnar Daníel Stefánsson,
Marteinn Jónsson, Þórunn Björg Ásmundardóttir,
Kristján Jónsson, Kristín Ólöf Jansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SJÖFN HAFDÍS JÓHANNESDÓTTIR,
lést mánudaginn 31. október. Útförin fer
fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 10.
nóvember klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélagið
Göngum saman.
.
Jón Árni Rúnarsson, Hulda Jakobsdóttir,
Jóhannes Rúnarsson, Lilja Bjarnþórsdóttir,
Rannveig Rúnarsdóttir, Kári Tryggvason,
Sigurður Rúnarsson, Elín Hallsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
BRUNO GUTTENBERG
lést friðsamlega 21. október eftir stutt og
mikil veikindi.
.
Eva-Maria Entreß,
Heinrich-Schacht-Straße 58,
22880 Wedel, Þýskaland,
Johannes Örn,
vinir og vandamenn,
teymið í Island Erlebnisreisen.