Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
✝ SigurbergurArnbjörnsson
fæddist á Sauð-
árkróki 28. október
1960. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítala í Foss-
vogi 24. október
2016.
Foreldrar hans
eru Arnbjörn Sig-
urbergsson, f. 21.
febrúar 1936, og
Arnbjörg María Sveinsdóttir, f.
25. október 1942. Systkini Sigur-
bergs eru Haraldur Sveinn, f.
19. júlí 1962. Jóhanna Val-
gerður, f. 6. apríl 1965, og
Bjarki Þór, f. 10. maí 1968. Fyrr-
verandi sambýliskona Sig-
urbergs er Sigríður Þóra
Traustadóttir, f. 28. júní 1972.
Synir Sigurbergs og Sigríðar
eru Jón Óli, f. 14 nóvember 2000,
og Árni Björn, f. 8.
janúar 2002.
Hann var mikill
hestamaður og með
eindæmum laginn
við þá. Stærstum
hluta ævi sinnar
eyddi Sigurbergur í
vinnu í frystihúsinu
og við síldarsöltun
bæði hjá KASK,
Stemmu og síðar
Skinney-Þinganesi.
Hann vann við siglingar á Jök-
ulsárlóninu þegar það var að
byrja. Hann vann um tíma við
akstur með ferðamenn en varð
að hætta sökum heilsubrests.
Hans rútína sl. ár var að koma til
Reykjavíkur frá Hornafirði
þrisvar í viku í blóðskilju.
Útför Sigurbergs fer fram frá
Hafnarkirkju í dag, 5. nóvember
2016, klukkan 14.
Sigurbergur var fæddur á
Sauðárkróki þann 28. október
1960, daginn eftir brúðkaup
foreldra sinna, en sleit barns-
skónum að Svínafelli í Nesjum
Hornafirði til 12 ára aldurs er
fjölskyldan flutti í Árnanes í
Valdahús og bjó þar unglings-
árin eða þar til foreldrarnir
fluttu með börnin í nýbyggt
hús að Hæðargarði 14 í Nesj-
um. Eftir að hann flutti úr for-
eldrahúsum bjó hann ýmist á
Höfn eða í Nesjum með örfáum
undantekningum allt eftir
hvernig stóð á vertíð í það og
það skiptið, en síðustu árin eft-
ir að heilsunni fór að hraka bjó
hann hjá móður sinni að Tjörn
2 á Mýrum.
Æskuárin hjá Sigurbergi
voru honum viðburðarík og lífið
lék við hvern sinn fingur. Það
varð snemma ljóst hvert hugur
hans stefndi og dugnaðurinn
var honum meðfæddur, honum
var það ekki eðlislægt að liggja
inni í bæ og lesa ef hægt var að
vera úti og sinna skepnum og
áttu hestar þar sinn uppáhalds-
sess. Er hann var kominn á
skólaaldur og ekki orðinn læs
var honum lofað að hann skyldi
fá að eiga hest ef hann tæki sig
á í lestrinum og er okkur sagt
að það hafi ekki tekið hann
nema örfáa daga að verða flug-
læs. Þessi frásögn lýsir Sig-
urbergi vel, hestinn fékk hann
að launum og átti alltaf hesta
eftir það.
Það lýsir Sigurbergi vel
hversu umhugað honum var
um fjölskylduna, að um það bil
sem flutt var í nýja húsið í
Hæðargarði komu upp veikindi
hjá föður okkar í nokkra mán-
uði og taldi Sigurbergur það
ekki eftir sér að gerast fyr-
irvinnan og sjá fyrir fólkinu
sínu á meðan veikindin stóðu
yfir. Þannig var Sigurbergur,
alltaf tilbúinn að hjálpa og
mátti ekkert aumt sjá, þannig
munum við hann alla tíð.
Stærstum hluta ævi sinnar
eyddi Sigurbergur í vinnu í
frystihúsinu og við síldarsöltun
bæði hjá KASK, Stemmu og
síðar Skinney-Þinganesi.
Á vertíðum var Sigurbergur
í essinu sínu og erum við viss
um að margir sem dvöldu á
verbúð á þeim árum muna
hann vel og eignaðist hann
fjölda vina og kunningja alls
staðar að af landinu. Verbúð-
arstemningin sem einkennt
hafði vinnustaðinn svo mjög
hvarf hægt og hljótt og við
tóku aðrir tímar. Honum
bauðst starf á Jökulsárlóni þeg-
ar sú starfsemi var að fara af
stað hjá góðu fólki sem reynd-
ist honum afar vel í gegnum líf-
ið. Þar undi hann hag sínum
best af öllum þeim störfum sem
hann sinnti um ævina, á því
leikur enginn vafi. Hann elsk-
aði að sinna túristunum og
sýna þeim landið og jökulinn
sinn, hann var afskaplega stolt-
ur af þessu tímabili og þreyttist
aldrei á að dásama það. Sig-
urbergur kynntist fyrrverandi
sambýliskonu sinni, Sigríði
Traustadóttur frá Hauganesi, á
þessum tíma og eignaðist með
henni tvo gullfallega drengi
sem eru Jón Óli, 16 ára, og
Árni Björn, 14 ára, missir
þeirra er mikill og er óhætt að
segja að þessir drengir áttu
hug pabba síns allan. Síðustu
ár Sigurbergs voru honum erf-
ið. Hugurinn var frjór en ráðin
fá og efnin minni til að láta
draumana rætast. Hann reyndi
að gera gott úr því eins og hans
var von og vísa. Ljósið í myrkr-
inu voru drengirnir hans og
naut hann samvista við þá eins
mikið og aðstæður leyfðu.
Hann þreyttist aldrei á að
segja manni frá því hvað strák-
arnir væru að aðhafast og ljóm-
aði allur þegar hann talaði um
þá, hann var ekki mikið fyrir
það að vera að vorkenna sjálf-
um sér þótt hann hefði ríka
ástæðu til.
Við kveðjum þig, elsku bróð-
ir, með söknuði. Drottinn varð-
veiti þig, Beggi minn.
Sveinn, Jóhanna og Bjarki.
Meira: mbl.is/minningar
Sigurbergur
Arnbjörnsson
Mig langar til að
skrifa nokkur
minningarorð um
yndislega ömmu
mína, Áslaugu Th.
Elíasdóttur, sem
hefði orðið 100 ára
í dag, 5. nóvember
2016. Hún lést 1.
september 1989.
Áslaug var dótt-
ir Kristjónu Lárus-
dóttur, f. 1896, d.
1924, og Elíasar Ingjaldar
Bjarnasonar, f. 1888, d. 1952.
Hún ólst upp á Vaðli á Barða-
strönd en átti einnig ættir að
rekja til Ísafjarðar og Snæfells-
Áslaug Th.
Elíasdóttir
ness. Hún giftist
manni sínum, Guð-
mundi Kolbeins-
syni, f. 27.3. 1899,
d. 10.1. 1987, 27.
september 1947, og
gekk hann syni
hennar, Jóhanni
Leví, f. 3. júní
1943, í föðurstað.
Auk Jóhanns ólu
þau upp tvær
fósturdætur, Guð-
laugu S. Kjartansdóttur, f. 1.5.
1956, og mig, sonardóttur sína,
f. 5.9. 1961.
Hún bjó fyrst með Guðmundi
á Framnesvegi en síðar fluttust
þau í Þingholtsstræti 26. 1968
fluttu þau með börnin að
Hjaltabakka 18 sem þá var ný-
legt hverfi í Breiðholtinu.
Áslaug starfaði við ýmis
störf, þar á meðal hjá Kexverk-
smiðjunni Esju, Miðbæjarskól-
anum, kaffiteríu Háskóla Ís-
lands og Hressingarskálanum.
Mjög gestkvæmt var hjá
okkur og allir alltaf velkomnir.
Hún var vinamörg og öllum
þótti gott að koma til Laugu,
eins og hún var kölluð. Það var
yndislegt að alast upp á Bakk-
anum, það var barnmargt
hverfi og mikið líf og fjör. Ás-
laug var mjög gamansöm og
músíkölsk, hún hafði næmt tón-
eyra og kunni að meta góða
tónlist. Hún gat sjálf spilað á
einfalda nikku og greip jafnvel
í munnhörpu. Hún var létt
stelpa að vestan og stökk yfir
girðingar þegar hún var ung en
hún fæddist með beinkröm svo
hún var farin að bogna í baki
með aldrinum.
Áslaug var hreint út sagt
frábær manneskja í alla staði
og góð við alla, jafnt háa sem
lága. Hún byrjaði að kenna mér
að þekkja stafina tveggja ára
gamalli og var ég farin að
stauta upp úr barnabókunum
þriggja ára, svo góður kennari
var hún. Hún hafði gaman af að
ferðast og fór vestur á Barða-
strönd og víðar, bæði með Guð-
mundi, manninum sínum, og
skyldmennum sínum.
Við vorum alltaf vel tilhöfð
hjá henni og hún kappkostaði
að okkur öllum liði vel. Hún
vildi allt fyrir alla gera og var
yndisleg móðir og amma. Hún
hafði svo fallega rithönd að eft-
ir var tekið, sem lýsti henni vel
því hún var vönduð og falleg
kona, innst sem yst.
Ég elskaði hana og dáði og
sakna hennar sárt. Minning
hennar lifir í hjarta okkar ætt-
ingjanna og vinanna.
Sigrún
Jóhannsdóttir.
Aldarminning
Elsku amma.
Til þín.
Eins og marglit blóm á engi
óendanleikans
er kærleikur hugsana minna
til þín.
Þú sem ert látinn,
farinn á braut hins óþekkta
sem okkur eftirlifendum er hulið.
Dýrmætar minningar líða hjá,
Magnúsína
Sigurðardóttir
✝ Magnúsína Sig-urðardóttir
fæddist 19. desem-
ber 1929. Hún and-
aðist 25. september
2016. Útför hennar
fór fram 7. október
2016.
árin okkar saman.
Brosið þitt og faðmur
þinn hlýr
þú bara þú.
En hér er ekkert sem
sýnist
í gjörningarþoku og
sárustu sorgum.
En þar sem þú ert
er ég hjá þér
í huga mínum og
sinni.
Óskirnar fljúga víða
um alheims himna.
Í ljóðinu mínu meðferðis er
kærleikur von og trú.
(S. Ósk Óskarsdóttir)
Með saknaðarkveðju,
Jóhann Steinar Helgason
og fjölskylda.
Við fregnir af
andláti Auðar vökn-
uðu minningar um
æskuna í Laugar-
nesinu.
Við vinkonurnar vorum tíðir
gestir á Otrateigi 2. Þar bjó
Björk ásamt systkinum sínum,
jafnvel mökum þeirra, börnum,
Auði og Guðjóni heitnum sem
lést langt um aldur fram. Húsið
var stórt og kjallarinn var dul-
arfullur. Stiginn brattur, fullur
af allskyns dollum, sópum, hinu
og þessu sem til þurfti á stóru
heimili.
Niðri í kjallara var svo forða-
búr mikið þar sem stóðu á hill-
um sultukrukkur, niðursuðudós-
Auður
Þórðardóttir
✝ Auður Þórð-ardóttir fæddist
19. júní 1925. Hún
lést 11. október
2016.
Útför Auðar var
gerð 21. október
2016.
ir, Royal-búðinga-
pakkar, kex og
fleira. Einnig var
þar að finna
stærstu frystikistu
í heiminum.
Auður var
nefnilega hagsýn
og mikil búkona
sem passaði upp á
að alltaf væri nóg
til að bíta og
brenna. Já, það
var ekkert skafið af því á Otra-
teigi.
Þar komst ég t.d. að því að til
væri hræringur, að maður gæti
sjálfur marinerað síld, hvað
Lundi væri, að það væri gott að
setja kakómalt ofan á ristað
brauð með smjöri. Að það væri
sniðugt að geyma litlar teygjur
til að festa sellófan yfir skálar
með afgöngum. Auður bakaði
líka heimsins besta hafrakex og
þá dugði ekkert minna en fleiri
kíló af hveiti, eldhúsborðið und-
irlagt af útflöttu deigi og Auður
vígaleg með kökukeflið í hönd-
um.
Ég man eftir rúllum í hárinu
á henni, glettnislegu brosi á
vörum og roða í vöngum við
undirbúning undir dansball, að
hún notaði bara Nivea krem á
húðina, sagði að það væri best,
að allir hlutir voru á sínum stað
og heimilið alla tíð glansandi
hreint.
Þær voru ófáar næturnar
sem við vinkonurnar gistum hjá
Björk. Ég sjálf var heimalning-
ur hússins og ef Auði hefur ein-
hvern tíma fundist ég vera orð-
in of heimakær á Otrateignum,
lét hún það allavega aldrei í ljós
við mig. Ég var og verð henni
alla tíð þakklát fyrir umburð-
arlyndið gagnvart okkur vin-
konunum, sem vorum æði
óstýrilátar oft á tíðum, og sér-
staklega gagnvart mér sem
gerði mig heimakomna á heimili
hennar.
Auði var umhugað um fólkið
sitt og ég held að hún hafi lagt
mikinn metnað í að koma þeim
systkinum til manns eins og
sagt var. Ekkert er mikilvæg-
ara í þessu lífi en fjölskyldan
manns, að vita að allir séu ör-
yggir, glaðir, elskaðir og verð-
metnir. Að manns nánustu lifi í
sátt og samlyndi, styðji og elski
hvert annað, að þeir sem maður
hefur gefið lífið, njóti þess, virði
það og verðmæti þess.
Þar held ég að Auður hafi
ekki verið nein undantekning og
sýndi hún það best með þeirri
eljusemi, hófsemi og hæglæti
sem einkenndi hana alla tíð.
Ég hef verið svo heppinn að
eiga Björk fyrir vinkonu í 44 ár
og hef því fylgt henni og fjöl-
skyldunni í langan tíma. Sama
gildir um Jónu Pálínu sem alltaf
er stoð og stytta Bjarkar í fjar-
veru okkar hinna, Kristínu og
Helgu sem ásamt mér, erum
búsettar í Danmörku og því
miður fjarri kærri vinkonu á
erfiðri stundu en vissulega með
hugann og hjartað hjá elsku
Björk okkar og börnum, sem
við sendum samúðarkveðjur við
fráfall móður og ömmu.
Systkinum Bjarkar, mökum
þeirra, börnum og barnabörn-
um sendum við samúðarkveðju
og hlýhug.
Fyrir hönd Kristínar Hilm-
arsdóttur og fjölskyldu, Helgu
Eiríksdóttur og fjölskyldu, Jónu
Pálínu Grímsdóttur og fjöl-
skyldu,
Valrún Valgeirsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
RAGNHEIÐAR PÁLSDÓTTUR
frá Hlíð, Gnúpverjahreppi.
.
Páll Valdimarsson, Björk Pálsdóttir,
Ragnhildur Valdimarsdóttir, Kári Jónasson,
Valdimar Valdimarsson, Guðrún Halldórsdóttir,
Kristín Valdimarsdóttir, Hörður Guðmundsson,
Guðrún Jónsdóttir.
Við sendum okkar bestu þakkir fyrir hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar systur
okkar, mágkonu og frænku,
ÞORBJARGAR BERGSTEINSDÓTTUR
frá Ási,
(Tobbu),
sem lést mánudaginn 3. október.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Sjúkrahússins á Seyðisfirði
og Dyngju á Egilsstöðum fyrir einstaka umönnun. Guð veri með
ykkur öllum.
.
Þorbjörn Bergsteinsson,
Jón Bergsteinsson, Birna Stefánsdóttir,
Ásta Magnúsdóttir,
systkinabörn og fjölskyldur.
Við þökkum þeim sem minnst hafa
GUÐRÚNAR ANTONSDÓTTUR,
Lyngholti, Skarðshreppi,
og sýnt okkur vináttu og hlýhug við andlát
hennar. Einnig þökkum við starfsfólki
deildar 5 á Dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki gott atlæti við hana síðustu árin.
.
Svavar Hjörleifsson
og fjölskyldurnar frá Lyngholti.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar
ástkæra
GUÐMUNDAR ÞÓRÐARSONAR
frá Miðhrauni.
Starfsfólk Brákarhlíðar fær sérstakar þakkir
fyrir umönnun og nærgætni.
.
Anna Sesselja Þórðardóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar