Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Blaðsíða 3
Vikublað 24.–26. febrúar 2015 Fréttir 3
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
„Hann rændi æsku minni“
n Var beitt ofbeldi af hálfu fyrrverandi stjúpföður n Vill að saga sín verði hvatning fyrir aðra
É
g mun aldrei tala við hann aft-
ur en ég er búin að fyrirgefa
honum þó svo að ég hafi ekki
sagt það beint við hann,“ segir
Ingibjörg Ýr Smáradóttir, tvítug
kona af Suðurnesjunum, sem nýver-
ið opnaði sig með Facebook-færslu
þar sem hún sagði frá heimilisofbeldi
sem hún bjó við frá tíu ára aldri.
Færslan vakti töluverða athygli en
þar sagði Ingibjörg Ýr frá því hvernig líf
hennar breyttist þegar hún var aðeins
tíu ára. Þá byrjaði fyrrverandi stjúp-
faðir hennar að beita hana líkam legu
og andlegu ofbeldi. „Það byrjaði þegar
ég var 10 ára gömul og því lauk þegar
ég pakkaði í töskur og flutti út 16 ára,“
segir Ingibjörg Ýr en hún vill að sagan
hennar verði öðrum hvatning til að
stíga fram og stöðva ofbeldið.
Fyrrverandi stjúpfaðir Ingibjargar
Ýrar flutti inn á heimilið þegar hún
var að verða níu ára gömul og ekki
leið á löngu þar til andlega ofbeldið
hófst.
Ljótar og erfiðar minningar
„Hann byrjaði á því að brjóta mig al-
gjörlega niður og líkamlega ofbeldið
hófst út frá því. Það byrjaði þegar ekk-
ert var eftir af sjálfstraustinu og ég var
byrjuð að hata sjálfa mig. Þetta var
svo mikið ofbeldi að ég gæti aldrei
nokkurn tímann sagt frá öllu sem
hann gerði mér,“ segir Ingibjörg Ýr
og bætir við að það taki á að rifja upp
þennan tíma í lífi hennar.
„Hann tuskaði mig alltaf til,
klemmdi höndina á mér með hurðinni
á ísskápnum, dró mig um á hárinu og
henti mér í stiga. Þú verður bara að
afsaka það en ég get ekki farið dýpra
í það. Ég treysti mér ekki í það og vill
ekki opinbera allt sem fór fram. Þetta
eru allt slæmar minningar sem ég vil
helst ekki vera að grafa mikið upp.“
Ingibjörg Ýr segir að með þessu
hafi stjúpfaðir hennar rænt af
henni æskuárunum. Hún hafi lifað í
hræðslu og verið komin í vítahring af
kvíða: „Ég fékk ekki að vera saklaust
og áhyggjulaust barn eins og flestir fá
að vera. Hann sá til þess og eftir allt
andlega ofbeldið fór ég að trúa því að
ég ætti þetta skilið.“
En hverjar voru ástæðurnar sem
þér voru gefnar fyrir ofbeldinu?
„Hann sagði að ég hafi verið svo
erfið og þess vegna hafi hann verið
svona reiður alltaf. Þá sagði hann
líka að þetta hafi verið erfiðir tímar í
samfélaginu og benti þá á kreppuna
og sagði hana hafa leitt til þessarar
reiði. Þetta voru ástæðurnar sem mér
voru gefnar en ég tek samt lítið mark
á þeim.“
Það sem situr eftir er þunglyndi,
félagsfælni og kvíði – raskanir sem
hafa mikil áhrif á líf Ingibjargar Ýrar
og eru sumar þeirra raktar beint til
fortíðar hennar.
Flutti út eftir bræðiskast
stjúppabba
„Já, þessir hlutir hafa enn áhrif á mig
í dag. Ofbeldið sem ég lifði við hefur
til dæmis enn áhrif á mig og hefur
hingað til stjórnað lífi mínu að mörgu
leyti,“ segir Ingibjörg Ýr og tekur
dæmi: „Í kvíðaköstunum, sem ég fæ
reglulega, rifjast upp sársaukinn sem
ég upplifði þegar hann lagði hendur á
mig eða braut mig niður með orðum.“
Sextán ára gömul ákvað Ingibjörg
Ýr að láta ekki bjóða sér þetta lengur.
Hún pakkaði fötunum sínum niður í
tösku og flutti til föður síns þar sem
hann bjó í Sandgerði ásamt eigin-
konu sinni.
„Hann tók aftan í hnakkann á
mér og greip í hárið. Síðan dró hann
mig eftir gólfinu og henti mér í stig-
ann heima. Ég var marin á síðunni
og á hnjánum eftir þetta. Ég hljóp
inn til mín og læsti hurðinni, hringdi
í stjúpmóður mína, pakkaði í töskur
og fór út,“ segir Ingibjörg Ýr en systk-
ini hennar urðu eftir. Ingibjörg Ýr á
tvö systkini, eina systur sem er einu
ári yngri en hún og síðan einn lítinn
bróður sem er mun yngri en hún.
Ingibjörg Ýr segir að bróðir henn-
ar hafi sem betur fer ekki orðið fyrir
neinu ofbeldi, hvorki líkamlegu né
andlegu, en að yngri systir hennar
hafi fengið að finna fyrir andlega of-
beldinu: „Hún stendur sig eins og
hetja að vinna úr því.“
En tók enginn eftir því að hlutirnir
væru ekki í lagi heima hjá þér?
„Nei, það vissi enginn neitt.
Ég lærði að setja upp grímu, nógu
góða svo að engan grunaði neitt að
minnsta kosti.“
Móðir hennar tók þá ákvörðun
í fyrrasumar að fara frá manninum
sem um ræðir og segir Ingibjörg að
fjölskyldunni líði vel í dag nú þegar
þau hafa skilið við þennan tíma.
Viðurkenndi ofbeldið
„Í dag stoppar þetta. Í dag fær þessi
maður ekki að hafa áhrif á mig leng-
ur. Ég ætla ekki að skammast mín fyr-
ir þetta lengur. Það er hann sem á að
skammast sín. Það var brotið á mér
og ég á ekki að skammast mín fyr-
ir það og ég vil hvetja fólk sem er eða
var í minni aðstöðu að gera sér grein
fyrir því að maður á þetta aldrei skil-
ið,“ segir Ingibjörg Ýr og bætir við: „Ég
get bara ekki sagt það nógu oft en það
á enginn þetta skilið. Aldrei.“
Ingibjörg Ýr segir að stjúpmóðir
sín, faðir sinn og kærastinn hafi verið
hennar stoð og stytta í gegnum þetta
allt saman: „Stjúpmóðir mín miðlaði
mér áfram til frábærs og yndislegs
sálfræðings sem heitir Pálína Erna
Ásgeirsdóttir en hún hjálpaði mér
mikið. Ég mæli eindregið með henni.“
Ingibjörg Ýr vill að það komi fram
að fyrrverandi stjúpfaðir hennar hafi
viðurkennt að það sem hann gerði
var rangt: „Ég er að vinna í mínum
málum og það er fyrrverandi stjúp-
faðir minn að gera líka. Hann hefur
viðurkennt að það sem hann gerði var
rangt og samkvæmt honum er hann á
batavegi.“
Ingibjörg Ýr segir að fyrirgefningin
sé sterk: „Maður á að fyrirgefa, þótt
manneskjan eigi ekki endilega fyrir-
gefningu skilið, til að maður öðlist
frið sjálfur.“ n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Þarna var ofbeldið byrjað Ingibjörg Ýr er 12 ára á þessari mynd en þá hafði hún verið
beitt ofbeldi í tvö ár af hálfu stjúpföður síns. Mynd Úr einkAsAFni
stoð og stytta Hér er Ingibjörg Ýr ásamt kærasta sínum, Gunnari Sigfússyni, en hún segir
hann, föður sinn og stjúpmóður hafa verið sín stoð og stytta. Mynd Úr einkAsAFni
ingibjörg Ýr „Ég fékk ekki að vera saklaust og áhyggjulaust barn eins og flestir fá að
vera. Hann sá til þess og eftir allt andlega ofbeldið þá fór ég að trúa því að ég ætti þetta
skilið.“Mynd Úr einkAsAFni „Hann tók aftan
í hnakkann á mér
og greip í hárið. Síðan
dró hann mig eftir gólf-
inu og henti mér í stigann
heima.