Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Blaðsíða 6
Vikublað 24.–26. febrúar 20156 Fréttir
Þýski leiðsögumaðurinn Kerstin Langenberger fannst heill á húfi í skála norðan Mýrdalsjökuls
É
g biðst bara innilega fyrir-
gefningar á þessu,“ segir þýski
leiðsögumaðurinn Kerstin
Langenberger, sem björgunar-
sveitir á Suðurlandi fundu
heila á húfi í skála í Hvanngili, sem
er á Laugaveginum norðan Mýrdals-
jökuls, snemma í gærmorgun eftir
langa og stranga leit.
Langenberger ætlaði á göngu-
skíðum hringinn í kringum Mýr-
dalsjökul, samanlagt um áttatíu
kílómetra leið. Hún lagði af stað á
þriðjudaginn frá Hrífunesi í Vík og
átti förinni að ljúka níu til tólf dög-
um síðar í Fljótshlíð.
„Ég valdi þessa leið því þar eru
skálar með 15 til 20 kílómetra milli-
bili. Ég var með tjald með mér en ég
vissi að það yrði skítaveður. Það var
alltaf planið að ef veðrið yrði of slæmt
þá leitaði ég skjóls í skálum,“ segir
Langenberger, sem þekkir leiðina vel
eftir að hafa starfað í nokkur ár sem
skálavörður á Laugaveginum á veg-
um Ferðafélags Íslands. Hún hefur
farið í ferðir sem þessar einu sinni á
ári, bæði á Íslandi og Svalbarða, og er
því þaulvanur göngugarpur.
Undrandi að sjá
björgunarsveitina
Þýski ferðalangurinn var undrandi
þegar björgunarsveitirnar mættu á
vettvang, enda hafði neyðarsendir-
inn sem hún hafði meðferðis bilað
án þess að hún gerði sér grein fyrir
því. Upplýsingar sem hún hélt að
hún hefði sent vinkonu sinni í tölvu-
pósti úr tækinu um að hún væri heil
á húfi skiluðu sér ekki. Í skálanum
hafði hún komið sér vel fyrir, hafði
það ágætt og var með nægar vistir.
„Ég vissi ekki að leit hefði hafist og
var þess vegna svolítið hissa þegar
björgunarsveitarmenn komu og
sögðu að ég væri komin í leitirnar.
Mér þykir leitt að þessi tækni brást
og að fólk hafi stofnað sér í hættu
mín vegna,“ segir hún. „Það er rosa-
lega gott að sjá hvað íslenska björg-
unarkerfið virkar vel. Ég vil þakka
öllum sem tóku þátt í leitinni.“
Vildi halda áfram för sinni
Hún segist alls ekki hafa verið hrædd
og í raun vildi hún fá að halda áfram
för sinni. „Það hafði gengið mjög vel
hjá mér. Ég vissi að þessa veðurs var
að vænta um helgina og þess vegna
fór ég í Hvanngilsskála og ákvað að
bíða það af mér. Það var ekki hægt að
vera í tjaldi. Þetta var hrikalegt veð-
ur,“ segir Langenberger sem dvaldi í
skálanum í þrjá daga. Hún var með
farsíma á sér, auk þess sem talstöð
var í skálanum, en hún notaði hvor-
ugt tækið vegna þess að hún hélt að
enginn væri að leita að henni. Þegar
talstöðvar eru ekki í notkun í skál-
um er slökkt á þeim og þess vegna
var ekki hægt að kalla í stöðina til að
athuga hvort hún væri þar stödd.
„Ég þekki svona veður“
Langenberger segist vera mjög þakk-
lát fyrir aðstoð björgunarsveitanna.
„Það komu yfir eitt hundrað manns
að leitinni og ég er þeim mjög þakk-
lát. Ég biðst innilega afsökunar á
þessu.“ Spurð hvort þetta sé versta
veður sem hún hafi lent í segir hún:
„Ég var skálavörður í Landmanna-
laugum veturinn 2008. Ég þekki
svona veður. Ég veit að það er brjálað
að vera úti í tjaldi í svona veðri. Ekk-
ert tjald myndi þola það.“
Stundaði nám á Hvanneyri
Langenberger, sem 32 ára, starf-
aði sem vinnukona á nokkrum
sveitabæjum hér á landi, lengst af
í Austur- Landeyjum: „Fólkið þar
hafði afar miklar áhyggjur af mér
og mér þykir það leitt.“ Eftir dvölina
í Austur-Landeyjum fór hún í nám
á Hvanneyri og fékk síðan starf sem
skálavörður hjá Ferðafélagi Íslands.
Hún býr ekki lengur á Íslandi en hef-
ur komið hingað síðustu ár í heim-
sókn. Undanfarið hefur hún starfað
sem leiðsögumaður, bæði á Sval-
barða og á suðurheimskautssvæð-
inu. En hvað ætli sé fram undan hjá
henni eftir „ævintýrið“ við Mýrdals-
jökul? „Ég á tvær vikur eftir á Íslandi
þannig að ég sé bara til. Ég fer alla
vega ekki í eyðimörkina aftur. Ég fer
ekki heldur með þetta bilaða tæki og
ekki í svona brjáluðu veðri. Næst tek
ég gervihnattasíma með mér. Það er
vitlaust að treysta á þetta eina tæki.
Ég veit það núna.“
Velta aldrei verðinu fyrir sér
Magnús Örn Hákonarson hjá
Slysavarnafé-
laginu Lands-
björg segir
aðstæðurnar
á Laugaveg-
inum hafa
verið veru-
lega slæmar
og með því
erfiðara sem
hægt er að
lenda í, en
snjóbílar
voru notaðir
við leitina.
„Það tók tíu
tíma að kom-
ast vegalengd
sem menn fara venjulega á klukku-
tíma að sumarlagi. Það sýnir hversu
erfitt þetta var.“
Er ekki mikill kostnaður sem
fylgir svona umfangsmikilli leit?
„Það eitt að fara af stað með björg-
unartæki er dýrt en við veltum
kostnaðinum í svona tilvikum aldrei
fyrir okkur,“ segir Magnús Örn sem
hefði kosið að Langenberger hefði
reitt sig á fleiri en eitt fjarskiptatæki.
„Það eru mörg tæki til og það þarf að
hafa gagnvirkari leið til að tryggja að
svona lagað geti ekki gerst.“
Alvöru nagli
Nú ætlaði Langenberger að ferðast
um áttatíu kílómetra á gönguskíð-
um í kringum Mýrdalsjökul. Er þetta
ekki sannkölluð ofurkona? „Þetta er
alvöru nagli. Ég er búinn að þekkja
hana í mörg ár og veit hvað hún hef-
ur gert. Það er ekkert fyrir meðaljón
að elta hana.“ n
SPOT sendir
staðsetningar
í tölvupósti
Tækið bilaði á leiðinni
Langenberger hafði með sér tæki sem kallast
SPOT. „Þetta er pínulítið tæki. Maður ýtir á
takka, annað hvort á OK og þá eru sendar
staðsetningar og sagt að allt sé í lagi, eða
neyðartakka sem sendir staðsetningar og
biður um hjálp,“ segir hún. „Það voru sendar
upplýsingar í tölvupóst sem vinkona mín á og
við ákváðum að ef ekkert bærist í tvo daga
myndi leit fara af stað,“ bætir hún við.
„Svo gaf ég frá mér tvisvar á dag þessi
OK-skilaboð og þegar veðrið var orðið mjög
vont sendi ég þrjú á dag. Um miðja ferð hætti
það að senda skilaboð en ég fékk samt þau
skilaboð að tölvupósturinn hefði verið send-
ur og þess vegna hélt ég að allt væri í lagi.“
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram
að tækið er ekki flokkað sem neyðarsendir.
Það lætur ekki vita ef boð berast ekki.
Ljósblikk og litur þess sýnir að þrýst hefur
hnappinn. Notandi getur því hæglega staðið í
þeirri trú að tækið virki.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Fyrir framan Mælifell Langenberger tók mynd af sér með Mælifell í baksýn meðan á
ferðalaginu stóð síðastliðinn föstudag.
„Ég vissi ekki að leit
hefði hafist og var
þess vegna svolítið hissa
þegar björgunarsveitar-
menn komu og sögðu að
ég væri komin í leitirnar.
Alvöru nAgli
sem meðAljóninn eltir ekki
Ein með
norðurljós-
unum Þýski
ferðalangur-
inn horfir á
norðurljósin
skömmu áður
en óveðrið
skellur á.
Heil á húfi Kerstin Langenberger hjá
bækistöðvum Hjálparsveitar skáta í Kópa-
vogi í gær en þangað var henni ekið í snjóbíl
frá Suðurlandi. Mynd SigtryggUr Ari