Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Síða 21
Umræða 21Vikublað 24.–26. febrúar 2015
Ég biðst bara innilega
fyrirgefningar á þessu
Ekki skrýtið að maður
staldri við
Það er eitt mesta afrek í
sögu læknavísindanna
Kerstin Langenberger var leitað af björgunarsveitum í ofsaveðri. – DV Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur um fjögur manndrápsmál í Hafnarfirði. – DVHaraldur Briem sóttvarnarlæknir um útrýmingu bólusóttar. – DV
Sátt við hverja?
N
ýjasta útspil sjávarútvegs-
ráðherra, að hann treysti sér
ekki til að leggja fram nýtt
fiskveiðstjórnunarfrumvarp
sökum ósamkomulags á
milli stjórnarflokkanna, hefur vakið
mikla athygli þjóðarinnar og kristall-
ast þar sá mikli ágreiningur sem rík-
ir um eignarhald og ráðstöfunarrétt
á þessari sameiginlegu sjávarauðlind
landsmanna.
Þegar byrjað er að ræða um kvóta-
kerfið svokallaða lokast oftar en ekki
eyru þeirra sem ekki hafa beina hags-
muni af sjávarútvegi og mörgum þyk-
ir málið flókið og illskiljanlegt. Erfitt
reynist að keppa við þá miklu áróð-
ursmaskínu sem samtök í sjávarútvegi
setja jafnan í gang þegar þeim þykir
sínum hagsmunum ógnað og gleym-
ist seint sú herferð og heimsenda-
spá sem lýst var yfir af LÍÚ á síðasta
kjörtímabili þegar reynt var að bylta
kvótakerfinu.
Dóttir mín ráðlagði mér að nálg-
ast umræðuna um sjávarútvegsmál á
sem auðskiljanlegastan hátt svo ungt
fólk gerði sér betur grein fyrir því út á
hvað það gengi að breyta kvótakerf-
inu. Meginatriðin eru að tryggja at-
vinnurétt og afnot komandi kynslóða
af sjávarauðlindinni með sjálfbærum
hætti og að arðurinn skili sér til
þjóðarinnar.
Nýting fiskimiðanna
Ágreiningur innan stjórnarflokkanna
virðist fyrst og fremst snúast um það
hver eigi að fara með eignarhald á
nýtingu fiskimiðanna – útgerðirnar
eða ríkið fyrir hönd þjóðarinnar. Þau
drög að nýju fiskveiðistjórnunar-
frumvarpi sem kynnt voru fyrir okkur
í stjórnarandstöðunni í haust gengu
út á það að gerðir yrðu samningar
til 23 ára með óbreyttu hlutfalli til
byggðaráðstafana, ekkert var þar tek-
ið á meiri möguleikum til nýliðunar
með öflugum leigupotti ríkisins né
byggðafestu aflaheimilda svo eitt-
hvað sé nefnt. Í rauninni var verið að
njörva núverandi kerfi niður óbreytt
um aldur og ævi og nýrri ríkisstjórn
í raun gert ókleift að gera breytingar
á kvótakerfinu þótt hún fengi til þess
nægan þingstyrk í næstu kosningum.
Þess vegna hef ég sagt það að ég gráti
það ekki að ríkisstjórninni hafi ekki
tekist að ná samstöðu um að leggja
þetta óláns frumvarp fram og stjórn-
arandstaðan hefur mér vitanlega ekki
fengið nein tækifæri til að hafa áhrif á
efni þess.
Stjórnarliðar hafa látið að því
liggja að það sé vegna andstöðu
stjórnarandstöðunnar sem hætt hafi
verið við að leggja frumvarpið fram á
þessu vorþingi. Þetta lýsir best vand-
ræðaganginum á stjórnarheimilinu
þessa dagana þegar hvert málið á
fætur öðru er í uppnámi.
Umræðan um veiðigjöld og
breytingar á fiskveiðistjórnunarkerf-
inu eru tvö aðskilin mál að mínu
mati.
Það má með sanni segja að það
þarf að nálgast það verkefni að ná
auðlindarentu út úr sjávarútvegi með
jafnræði í huga og með sem gagnsæj-
ustum og skilvirkustum hætti.
Þau veiðigjöld sem urðu að lög-
um árið 2010 hafa ekki náð tilgangi
sínum sem skyldi þar sem ekki hefur
tekist að fá þær upplýsingar sem til
þurfti til að álagning yrði rétt.
Mismunandi álagning
Ég tel rétt að skoða mismunandi
álagningu eftir útgerðarflokkum, ein-
hvers konar þrepaskipta álagningu,
þar sem brugðist væri við erfiðleik-
um minni útgerða við að standa undir
þeim veiðigjöldum sem þær búa við í
dag. En í mínum huga er það knýjandi
réttlætismál að breyta sjálfu fiskveiði-
stjórnunarkerfinu áður en krafan um
eignarrétt útgerðarinnar verður enn
háværari í valdablokkum landsins,
bæði í fjármálageiranum og hjá stór-
útgerðinni.
Afleiðingum hagræðingar í
sjávar útvegi má skipta í þrjá
flokka á landsvísu
1. Þau byggðarlög sem hagnast hafa
á samþjöppun í greininni og njóta
í núinu mikilla tekna og stöðugrar
atvinnu.
2. Þau sjávarpláss þar sem eru minni
sjávarútvegs- og fjölskyldufyrirtæki og
þar sem ekkert má út af bera svo allt
fari ekki á hliðina og atvinnuöryggið
fari í uppnám.
3. Hinar svokölluðu „brothættu
byggðir“ sem Byggðastofnun hefur
verið að vinna með. Þeirra á meðal
eru mörg minni sjávarpláss sem eru
í gífurlegum vanda eftir að fiskveiði-
heimildirnar hafa verið fluttar á brott
og lífsbjörgin í raun tekin frá öllum
íbúum þessara staða. Þar býr fólk ekki
við búsetuöryggi lengur og byggðar-
lagið hefur verið gjaldfellt á einu bretti.
Ég treysti ekki núverandi ríkis-
stjórn fyrir ásættanlegum breyting-
um á fiskveiðistjórnunarkerfinu en ég
geri mér líka fulla grein fyrir því að ef
nást eiga fram breytingar á núverandi
kerfi verða allir að slá eitthvað af sín-
um ítrustu kröfum, annars festist nú-
verandi kerfi bara enn frekar í sessi.
Sáttin á ekki bara að ná til hags-
munaaðila í sjávarútvegi heldur líka
til fólksins í landinu með tryggara
atvinnuöryggi og í eflingu byggða
ásamt rétti komandi kynslóða til at-
vinnufrelsis og að skýrt eignarréttará-
kvæði á sjávarauðlindinni verði sett í
stjórnarskrá. n
Lilja Rafney Magnúsdóttir
alþingismaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs
Kjallari
„Þess vegna hef
ég sagt það að ég
gráti það ekki að ríkis-
stjórninni hafi ekki tekist
að ná samstöðu um að
leggja þetta óláns frum-
varp fram.
MyNd StefáN KARLSSoN
Mest lesið
á DV.is
1 Keppendur Biggest Los-er þurftu að greiða 56
þúsund fyrir vodkaflöskuna
Fimm keppendur í Biggest Loser þurftu
að greiða 56 þúsund krónur fyrir eina
Vodkaflösku á Lavabar skömmu eftir
að keppninni lauk á síðasta ári. Hrönn
Harðardóttir, einn af keppendunum sem
komst hvað lengst í keppninni, birtir
harðorðan póst í Facebook-hópnum
„markaðsnördar“ þar sem hún gagnrýnir
skemmtistaðinn harðlega.
Lesið: 40.820
2 Bekkjarfélagar mættu ekki í afmæli hjá ein-
hverfum strák Enginn virtist ætla
að mæta í afmælið hjá Glenn Buratti,
sex ára einhverfum strák í Flórída, þrátt
fyrir að öllum bekkjarfélögum hans hafi
verið boðið. Eftir að móðir drengsins
sagði frá afmælinu á Facebook tóku
lögreglu- og slökkviliðsmenn sig til og
mættu í afmælið hjá Glenn.
Lesið:22.499
3 Ruddist fram úr röngum manni á lestarstöð
Matt Buckland, mannauðsstjóri Forward
Partners í London, varð fyrir því á dögun-
um á leið til vinnu sinnar, að karlmaður
stjakaði við honum og ruddist fram úr
þegar hann staldraði við stundarkorn til
að hleypa konu nokkurri leiðar sinnar.
Þegar Buckland gerði athugasemd við
framferði mannsins, sneri kauði sér við
og kallaði ókvæðisorðum að honum.
Nokkrum tímum síðar mætti sami
maður til hans í atvinnuviðtal.
Lesið: 20.316
4 Framkvæmdastjórar Íslandspósts keyra um á
glæsikerrum þrátt fyrir hund-
rað milljóna tap Íslandspóstur
greiddi samtals 29,5 milljónir króna fyrir
fimm jeppa og einn fólksbíl sem forstjóri
og framkvæmdastjórar ríkisfyrir-
tækisins hafa til umráða samkvæmt
ráðningarsamningum. Kostnaður við
rekstur bifreiðanna nam alls 8,8 milljón-
um króna í fyrra þegar fyrirtækið lagði
áfram áherslu á aðhald í rekstri eftir 119
milljóna króna tap 2013.
Lesið: 20.485
5 Marta María setur íbúðina á sölu Fjölmiðla-
konan Marta María Jónasdóttir hefur
sett íbúðina sína við Njálsgötu á sölu.
Lesið: 20.005
S
íðustu vikur hafa bólu-
setningar barna verið mik-
ið til umræðu eftir að móð-
ir skrifaði pistil um hvernig
hún þurfti að bíða í von og
óvon til að komast að því hvort son-
ur hennar hefði smitast af misling-
um, hann var það ungur að hann
hafði ekki fengið bólusetninguna
sem hefði þurft í þessu tilfelli. Þar
velti hún því upp hvort að þeir sem
fara í bólusetningu og láta bólu-
setja börn sín væru að vernda þá
sem kjósa að sleppa bólusetningum.
Og þarna þurfti hún að bíða heima,
bíða eftir því hvort sonur hennar
færi að sýna einkenni mislinga sem
í versta falli gætu leitt til dauða. Á
vefsíðu landlæknis segir: „Öllu jafna
eru mislingar mildur sjúkdómur hjá
börnum en allt að 10% þeirra sem
sýkjast fá alvarlega fylgikvilla svo
sem heilabólgu eða lungnabólgu.“
Og þrátt fyrir allt þá veitir bólusetn-
ing aðeins 95% vörn, er það ekki
betra en 0%?
Boðið að kostnaðarlausu
Í lögum hérlendis segir að börnum
með lögheimili hér á landi skuli
vera boðin bólusetning gegn tiltekn-
um smitsjúkdómum foreldrum að
kostnaðarlausu. Í svari heilbrigð-
isráðherra við fyrirspurn um bólu-
setningar barna sem lagt var fram í
vikunni segir m.a. að þátttaka í bólu-
setningum hérlendis sé almennt
góð. Árið 2005 var búinn til bólu-
setningargrunnur og sýnir hann að
ekki er merkjanlegur munur milli
ára á fjölda barna sem fær bólusetn-
ingar. Þá kemur einnig fram í svar-
inu að þátttaka í bólusetningum er
frá 88% upp í 96% við hinum ýmsu
smitsjúkdómum eins og mislingum,
hettusótt og rauðum hundum. Þá
eru einnig bólusetningar við HPV-
sýkingu, barnaveiki, stífkrampa, kíg-
hósta, Hib-heilahimnubólgu, löm-
unarveiki o.fl. innan þessara marka.
Nafnalisti
Með bólusetningu er mögulegt að
útrýma sjúkdómum þó meginmark-
miðið sé auðvitað að koma í veg fyr-
ir þá og hættulegar afleiðingar þeirra
sem og hindra farsóttir. Bólusetning
verndar ekki bara börnin sem hana
fá, heldur kemur líka í veg fyrir
smit milli barna. Það er sárasjaldan
ástæða til að bólusetja ekki barn.
Vegna tilkomu bólusetningar-
grunns getur sóttvarnarlæknir sent
nafnalista yfir þá sem ekki hafa ver-
ið bólusettir til heilsugæslu, haft upp
á þeim og boðið bólusetningu. Þá er
einnig hægt að leiðrétta skráningu
ef svo ber við. Ísland er einstaklega
vel statt í þessum málum miðað við
önnur Norðurlönd og mikilvægt er
að halda því við, þar sem tilfellum
smitsjúkdóma sem hægt er að bólu-
setja við fækkar á móti. Þær upp-
lýsingar sem ég hef koma frá land-
lækni og heilbrigðisráðuneytinu,
en að mínu viti eru 5% líkur á að
vera berskjaldaður fyrir alvarlegum
smitsjúkdómi betra en að hafa enga
vörn. n
Berskjaldaður eða bólusetning
Jóhanna María Sigmundsdóttir
alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn
Kjallari
MyNd BRAGi ÞóR JóSefSSoN
„Það er sárasjald-
an ástæða til að
bólusetja ekki barn.