Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Blaðsíða 22
Vikublað 24.–26. febrúar 201522 Umræða
Umsjón: Henry Þór BaldurssonEnginn rígur lengur
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
U
m okkar fámenna og áður
hamingjusama samfélag
í trúnni á ofurmennsku
íslensks sálar- og at-
vinnulífs fer núna, að falli
loknu, ekki vofa kommúnisma og
byltingar heldur hefndar. Ástæðan
fyrir þessu er sú að nokkrir frægir
og dáðir karlar úr bankageiran-
um hafa nú verið fundnir sekir og
dæmdir fyrir svo mikla pretti að
þeirra bíður fangelsi.
Áður hlutu karlarnir
sæmdarheitið útrásarvíkingar og
litið á þá sem tákn fyrir bestu eig-
inleika þjóðarinnar frá landnáms-
öld. Þeir voru hugdjarfir, ljóngáf-
aðir, skjótir að hugsa og fljótir til
athafna. Að sjálfsögðu var ætlun
þeirra ættuð úr Íslendingasögun-
um, að sigra heiminn. Þeir gerðu
það í eigin draumheimi og þjóðar-
innar sem reynir núna að hressa
sig með hefndarhug í garð svikar-
anna og vonar að hlutirnir snúist
við: Útlendir túristavíkingar komi til
náttúruperlulandsins og leyfi sagna-
hetjum að hella auði úr koppum.
Þannig hugsar þjóð sem á enga
markverða leiðtoga. Hún er sek
og veit af sekt sinni og þeirri ein-
feldni sem sprettur af talhlýðni og
húsbóndahollustu frá fyrstu tíð. Á
þessari „stund dómanna“ ættum
við öðru fremur að leiða hugann
að því að hinir seku voru ekkert
einsdæmi heldur framvarðasveit á
löngu tímabili. Fólk trúði að stund-
in væri runnin upp með alheim-
svæðingu fjármagns og mark-
aðar og af trúnni fæddust mestu
útrásartímar þjóðarinnar.
Utanríkisráðherrann sagði
mönnum að Ísland væri að komast
í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
með ótvíræðum stuðningi. Íslensk-
ir aðilar voru í óða önn að kaupa
helstu tákn Kaupmannahafnar,
hótel og verslunarmiðstöðvar. Fyrr-
um nýlendan var að gera nýlendu-
veldið að nýlendu sinni. Strákar
frá Fréttablaðinu voru að umbylta
danskri blaðaútgáfu og stefndu á
evrópsk blaðamið. Íslenskir ráð-
herrar voru um víða veröld að gera
samninga um virkjanir á hitasvæð-
um frumstæðra þjóða. Forsetinn
setti óspart ofan í heimskulegar
skoðanir æðstu stjórnmálamanna,
einkum á Bretlandi, og sagði þeim
til syndanna. Einnig var staðhæft
að forveri hans mundi brátt taka
við einni helstu ábyrgðarstöðu hjá
Sameinuðu þjóðunum en kona frá
Írlandi varð hlutskarpari. Þá hófu
íslenskar bókmenntir einnig útrás
og fengu frábært lof. Meira að segja
íslenska glæpasagan lagði und-
ir sig Frakkland og gerði Rififi að
engu. Íslensk lyfjafyrirtæki með
bækistöðvar í Búlgaríu keyptu upp
erlend og DeCode var að einangra
geðveikisbakteríuna og lofaði að
losa fólk innan skamms við liðagigt.
Íslenskar popphljómsveitir gerðu
hvarvetna lukku með trommuslætti.
Þannig mætti lengi telja afrek sem
voru ekki bara hugarfóstur okkar
heldur sanna dæmin að fyrrum ís-
lenskir kartöflubændur gátu leikið
á breska lávarða sem höfðu fjármál
heimsins í hendi sér um aldur áður
en forsætisráðherra þeirra í kven-
líki hóf markaðstrúboðið sem allra
meina bót. Íslenska þjóðin tók þátt
í því og varð sú hamingjusamasta í
heimi og hvarvetna lokið lofsorði á
menntun hennar, fegurð kvenna og
kunnáttu í ensku. Háskóli Íslands
varð næstum á meðal bestu háskóla
jarðarinnar.
Væri því ekki ástæða til að hrópa
húrra fyrir afrekum dæmdu karl-
anna sem tókst að leika á heiminn
sem lá flatur fyrir íslenskum þjóðar-
anda á okkar mestu hamingjutíð? n
„Á þessari „stund
dómanna“ ættum
við öðru fremur að leiða
hugann að því að hin-
ir seku voru ekkert eins-
dæmi heldur framvarða-
sveit á löngu tímabili.
Guðbergur Bergsson
rithöfundur
Til umhugsunar
Hefndarhugur
Hún var með
sérútbúna græju
sem bilaði … ekki
beint hægt að gagnrýna
hana þar sem hún fékk boð
um að boð væru send … hún
virðist hafa verið betur búin
en flestir sem fara í göngu
á þessu svæði og valdi leið
með fjölmörgum skálum,
hún ætti frekar að fá hrós
fyrir en nokkuð annað,“
segja þeir Oddur Andri
og Siggi, en líkt og DV
hefur greint frá var það
Kerstin Langenberger frá Þýska-
landi sem björgunarsveitir á
Suðurlandi leituðu að um helgina.
Kerstin ætlaði að ganga í kringum
Mýrdalsjökul og var vel búin en tæki
sem hún hafði og sendi reglulega
staðsetningu hennar bilaði og sendi
engar upplýsingar.
23
„Samkvæmt
mannréttinda-
sáttmálanum
og barnasáttmála SÞ
hafa börn líka rétt á því
að búa við mannúðlegar
aðstæður og heilsu. Með því
að bólusetja ekki ertu að
setja heilsu barna þinna og
annarra í hættu,“
segir Óðinn Kári Karlsson í
líflegri umræðu um bólusetn-
ingar á dv.is
13
„Er mikið af
vöntunarmönn-
um á framfæri
hins opinbera í gegnum
matvælastofnun? Hvernig
dettur mönnum í hug að
keyra á mannorðsmorð og
rústa fjölskyldufyrirtæki
með einu sýni. Sýni sem
þeir rannsökuðu svo mikið
að það er horfið. Burtséð
frá sekt eða sakleysi þá
hljóta flestir að geta verið
sammála því að þetta er
lélegur málatilbúnaður.
Það verður auðvitað enginn
af embættismannagerinu
þarna látinn svara fyrir
þetta. Ef málið fer eins í
Hæstarétti geri ég ráð fyrir
allsvakalegri skaðabóta-
kröfu frá Gæðakokkum og
tel hana eðlilega. Enga trú
hef ég á að einhver emb-
ættissimpansi verði látinn
svara fyrir þetta rugl,“
segir Ólafur Ragnarsson og vill
að Gæðakokkar fái uppreist æru
vegna kjötlausu nautabökunnar.
9
„Tími til kominn,“
segir Fanný Gunnars-
dóttir, sem er ósammála
Finnboga Vikari og vill
að Goldfinger verði lokað. Hún
tekur í sama streng og Vinstri
græn í Kópavogi og vill vita
hvernig hægt er að koma í veg fyrir að
nektarstaðir verði reknir í Kópavogi.
4