Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Side 24
Vikublað 24.–26. febrúar 201524 Neytendur
Kaffirisar hæKKa verð
n Myljandi hagnaður hjá Kaffitári n Eigendur fengu 30 milljónir í arð n Gætu keypt 57 þúsund cappuccino n Síhækkandi kaffiverð og erfiðar aðstæður þýða hærra verð
Í
slensku kaffirisarnir tveir, Kaffitár
og Te og kaffi, hafa hækkað verð
sitt um á bilinu 10–15 prósent síð-
an DV gerði ítarlega verðkönnun
á vinsælum kaffidrykkjum í maí í
fyrra. Hækkunin er bæði vel umfram
verðlag og umfram virðisaukaskatts-
hækkunina um áramótin sem nam
3,7 prósentum.
Bæði fyrirtækin hækkuðu verð
sumarið 2014 og segja forsvarsmenn
kaffihúsakeðjanna að verðhækkan-
irnar hafi verið uppsafnaðar auk þess
sem ytri þættir á borð við heimsmark-
aðsverð og uppskerubrest hafi vegið
þungt. Kaffibransinn á Íslandi er erf-
iður rekstur en Kaffitár skilaði ríflega
86 milljóna króna hagnaði samkvæmt
síðasta ársreikningi. Reksturinn er
heldur þyngri hjá Te og kaffi sem þó
skilaði nokkurra milljóna hagnaði.
Eitt er þó ljóst, burtséð frá ástæð-
um, að kaffibollinn hefur sjaldan eða
aldrei verið eins dýr.
DV gerði ítarlega verðkönnun á
18 kaffihúsum í Reykjavík í lok maí
í fyrra þar sem skoðað var verð á
þremur vinsælum drykkjum. Ein-
földum latte, cappuccino og amer-
icano. Nokkrum vikum eftir að verð-
könnunin birtist á opnu í DV í byrjun
júní hækkuðu hins vegar mörg kaffi-
húsanna verð og þeirra á meðal
Kaffitár og Te og kaffi. Þó að tíma-
setningin gæti gefið til kynna að þar
væri á ferðinni túristahækkun fyr-
ir sumarið þá segja forsvarsmenn
kaffirisanna tveggja að aðrir þættir
hafi þar spilað inn í.
Ekki hækkað í tvö ár
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kaffihúsa hjá Te og
kaffi, bendir meðal annars á að upp-
skerubrestur í Suður-Ameríku í fyrra
hafi leitt til hækkunar á heimsmark-
aðsverði. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu þá hefur verð á þessum
þremur kaffidrykkjum fyrirtækisins
hækkað um á bilinu 12–15 pró-
sent síðastliðna átta mánuði.
„Hann [uppskerubrestur-
inn] hefur auðvitað einhver
áhrif en eftir að könnunin
sem miðað er við birt-
ist hækkuðum við
verð hjá okkur í júní.
Við höfðum þá ekki
hækkað verð í tvö
ár þá og var margt
uppsafnað. Bæði
hráefnisverð og
ýmislegt sem hafði
hækkað. Sú hækkun
kom í júní en fram að
því höfðum við haldið
aftur af okkur með
hækkanir. Svo kom þessi
aukalega hækkun núna
um áramótin. Við ætluð-
um okkur auðvitað ekk-
ert að hækka þá en þá
komu inn þessar virðis-
aukaskattshækkanir.“
Halldór segir að hrá-
varan kaffi hafi hækk-
að gríðarlega á síðasta
ári og þá hafi dollarinn
ekki verið að gera þeim
neina greiða. „Þetta
eru margir þættir en
við munum reyna að
halda að okkur hönd-
um í verðhækkunum
núna eins lengi og við getum og höf-
um alltaf gert það.“
Dýrt kaffi – beint frá bónda
Það er svipað hljóðið í forsvarsmönn-
um Kaffitárs þegar skýringa á verð-
hækkuninni milli kannana er leitað
þar á bæ. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu þá hafa verð á drykkjun-
um þremur hækkað um 10–12 pró-
sent á þessu átta mánaða tímabili.
Sólrún Björk Guðmundsdóttir,
markaðs- og rekstrarstjóri Kaffitárs,
bendir á að í júlí í fyrra hafi orðið
verðhækkun sem nam 5–8 prósent-
um.
„Ástæðan fyrir þessari verð-
breytingu var hærri rekstrarkostn-
aður, launakostnaður og hrá-
efniskostnaður. Svo breyttist um
áramótin virðisaukaskatturinn og þá
hækkaði verðið til neytenda.“
Sólrún bendir á að árið 2014 hafi
Kaffitár keypt 87 prósent af öllu sínu
kaffi án krókaleiða, beint frá bónda.
„Þegar við kaupum beint frá bónda
fylgir verðið heimsmarkaðsverði.
Svo fær bóndinn alltaf óskert sölu-
andvirði í sinn
vasa. Þetta hlut-
fall af kaffi keyptu
beint frá bónda hef-
ur aldrei verið hærra
þannig að við erum
að kaupa rosalega dýrt
kaffi, sem hefur hækk-
að. Okkur er ekkert vel
við að hækka og ger-
um það ekki nema við
virkilega þurfum þess
og reynum þá að vera
eins hógvær í því og við
getum.“
En í ljósi síhækkandi hrávöru-
verðs, gengissveiflna og annarra
þátta, hvernig er að reka kaffihúsa-
keðju á Íslandi við þessar aðstæður?
Halldór og Sólrún eru sammála um
að það sé þungur rekstur.
„Þetta er ekki auðvelt en hefur í
sjálfu sér gengið vel hjá okkur. Við
höfum verið með góða vöruþróun
í drykkjum sem hefur skilað sér í
auknum viðskiptum en að vinna
með hrávöru sem hækkar svona í
verði er mjög erfitt,“ segir Halldór hjá
Te og kaffi. Sólrún hjá Kaffitári tek-
ur undir orð hans. „Það er auðvitað
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Svona hefur verðið þróast
á völdum kaffihúsum
frá síðustu könnun DV
Prikið
Latte: Verð í lok maí:
400 kr. Verð nú: 400 kr.
Hækkun: 0%
Cappuccino: Verð í lok
maí: 390 kr. Verð nú:
400 kr. Hækkun: 2,5%
Americano: Verð í lok
maí: 400 kr. Verð nú:
400 kr. Hækkun: 0%
Súfistinn
Latté: Verð í lok maí: 570 kr. Verð nú: 580 kr. Hækkun: 1,7%
Cappuccino: Verð í lok maí: 560 kr. Verð nú: 530 kr. Lækkun: 5,6%
Americano: Verð í lok maí: 500 kr. Verð nú: 520 kr. Hækkun: 4%
Kaffifélagið
Latte: Verð í lok maí: 450 kr. Verð
nú: 450 kr. Hækkun: 0%
Cappuccino: Verð í lok maí: 450 kr.
Verð nú: 450 kr. Hækkun: 0%
Americano: Verð í lok maí: 400 kr.
Verð nú: 400 kr. Hækkun: 0%
Laundromat
Latte: Verð í lok maí: 480 kr. Verð nú: 540 kr. Hækkun: 12,5%
Cappuccino: Verð í lok maí: 480 kr. Verð nú: 540 kr. Hækkun: 12,5%
Americano: Verð í lok maí: 440 kr. Verð nú: 440 kr. Hækkun: 0%
3. júní 2014