Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Side 27
Vikublað 24.–26. febrúar 2015 Sport 27
Ekkert rafmagn og kaldar sturtur
n Framtíð Parma í uppnámi n Stórveldi í kringum aldamótin n „Sorgarsaga“ segir fyrirliðinn
F
ramtíð ítalska knattspyrnu
félagsins Parma er í uppnámi
og gæti farið svo að þetta
sögufræga lið yrði gjaldþrota
áður en langt um líður.
Félagið hefur ekki getað greitt laun
síðan í fyrrasumar og um helgina
var heimaleik liðsins gegn Udinese
frestað um óákveðinn tíma þar sem
ekki voru til peningar til að borga
fyrir gæslu á leiknum. „Síðan 15.
nóvember hefur enginn talað um
fótbolta í búningsklefanum. Ég hef
aldrei orðið vitni að annarri eins
sorgarsögu í ítalska boltanum,“ sagði
fyrirliði liðsins, Alessandro Lucarelli,
við ítalska fjölmiðla um helgina.
Parmalat upphafið og endirinn
Parma skartaði einu besta liði
Evrópu rétt fyrir síðustu aldamót.
Liðið komst þrisvar í bikarúrslit á
Ítalíu á árunum 1999 til 2002 og
varð Evrópumeistari félagsliða vorið
1999 eftir 3–0 sigur á Marseille í úr
slitaleik. Þessa velgengni mátti að
stóru leyti þakka góðu eignarhaldi
en ítalska mjólkur og matvælafyr
irtækið Parmalat keypti félagið árið
1991. Árið áður hafði félagið kom
ist upp í Adeildina eftir 67 ára dvöl
í neðri deildum Ítalíu. Eins og að
framan greinir náði félagið góðum
árangri fljótlega eftir kaup Parmalat á
félaginu og varð Parma til að mynda
bikarmeistari árið 1992. Árið 2003
fór að halla undan fæti hjá félaginu
þegar hneykslismál reið yfir móður
félag þess, Parmalat. Parmalat hafði
árið 1997 hafið innreið sína á mark
aði víða í Evrópu og keypt fjölmörg
fyrirtæki. Þessi kaup voru fjármögn
uð með lánum og jókst skuldastaða
félagsins verulega. Forsvarsmenn
Parmalat reyndu að fegra bókhaldið
með öllum tiltækum ráðum sem
gerði það að verkum að fjárfestar
töpuðu háum fjárhæðum. Svo fór að
Parmalat óskaði eftir gjaldþrotameð
ferð á aðfangadag 2003 og þar með
má segja að fjárhagsvandræði Parma
hafi byrjað fyrir alvöru. Fall Parmalat
þýddi að Parma fór í gjaldþrotameð
ferð í júní 2004 og í kjölfarið missti
félagið flugið í ítölsku deildinni. Vor
ið 2005 endaði Parma í 10. sæti en
komst aftur í Evrópukeppni vorið
2006 eftir að hneykslismál reið yfir
deildina. Liðið hafði endað í 10. sæti
en færðist upp um þrjú sæti, í það 7.,
eftir að stig voru dregin af Fiorentina,
Lazio, Milan og Juventus sem var fellt
niður um deild.
Sparkað úr Evrópukeppni
Vorið 2007 endaði Parma í 12. sæti
en í janúarmánuði það ár var fé
lagið loks keypt eftir að hafa ver
ið þrjú ár í gjaldþrotameðferð. Nýr
eigandi, Tommaso Ghirardi, keypti
félagið fyrir tæplega þrjár milljón
ir evra en strax frá fyrsta degi var
ljóst að hann hafði ekki í hyggju að
fjárfesta í nýjum leikmönnum fyrir
fúlgur fjár. Tímabilið 2007/2008 var
martröð, liðið lék skelfilega og fór
svo að Parma féll úr Adeildinni eft
ir 18 ára dvöl þar. Liðið komst að vísu
strax aftur upp úr Bdeildinni og virt
ist ákveðinn stöðugleiki vera að nást
þegar liðið náði sjötta sætinu í A
deildinni í fyrra. Fjárhagsvandræði
og skattaskuld gerðu það þó að verk
um að liðið fékk ekki þátttökurétt í
Evrópudeildinni í ár
og þurfti að byrja með eitt stig í mín
us í ítölsku deildinni. Það jók enn
á vandræði Parma sem hefði feng
ið talsverða fjármuni fyrir þátttök
una í Evrópukeppni og varð til þess
að Ghirardi seldi meirihluta sinn í
félaginu þann 19. desember til al
banska kaupsýslumannsins Rezart
Taci. Í kjölfarið var nýr forseti skipað
ur, Ermir Kodra, en hann var 29 ára
þegar hann tók við. Það var svo fyrr í
þessum mánuði sem Taci seldi félag
ið aftur, nú til Giampietro Manenti,
og var söluverðið ein evra, eða það
sama og Taci greiddi.
Spurningum ósvarað
Það er alls óvíst hvað tekur við hjá
Parma en Alessandro Lucarelli, fyr
irliði liðsins, lét hafa eftir sér um
helgina að leikmenn gætu farið fram
á gjaldþrotaskipti yfir félaginu vegna
vangoldinna launa. Fari svo að fé
lagið verði tekið til gjaldþrotaskipta
gæti nýr, fjársterkur eigandi kom
ið að félaginu og byrjað með félagið
í Bdeildinni þar sem liðið mun að
öllum líkindum leika á næstu leik
tíð. Lucarelli segist ekki bara kenna
eigendum félagsins um hvern
ig fór heldur einnig forsvarsmönn
um ítalska knattspyrnusambands
ins. „Af hverju var ekki haft betra
eftirlit með félaginu? Af hverju var
hægt að selja félagið tvisvar á tveim
ur mánuðum fyrir eina evru? Við
höfum verið eins konar tilrauna
dýr en viljum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að þetta endurtaki
sig ekki.“ n
Kaldar sturtur
Hernan Crespo þjálfar unglingalið Parma
Hernan Crespo er að öðrum ólöstuðum einn besti leikmaðurinn
í sögu Parma en þessi argentínski markahrókur lék með liðinu
á árunum 1996–2000 og 2010–2012. Í dag stýrir hann unglingaliði
Parma sem ekki hefur farið varhluta af fjárhagsvandræðum félagsins. „Það er mjög erfitt
að verða vitni að þessu,“ segir Crespo sem varð dýrasti leikmaður heims árið 2000 þegar
Lazio keypti hann frá Parma. „Við höfum þurft að fara í kaldar sturtur eftir æfingar vegna
þess að það er ekkert rafmagn á æfingasvæðinu,“ segir Crespo sem telur að veikindi
margra leikmanna megi rekja til þessa. Þá séu ræstingar af skornum skammti enda ekki
hægt að greiða ræstingafólki laun. „Við erum á fallandi fæti. Við viljum halda áfram því
við elskum allir félagið, en það er sárt að verða vitni að þessu,“ segir Crespo. Unglingalið
Parma á útileik gegn Sampdoria um næstu helgi og hafa forsvarsmenn Sampdoria
boðist til að greiða ferðakostnað Parma svo leikurinn geti farið fram.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Ótrúlegt lið Parma-
liðið var óárennilegt
tímabilið 1998/1999.
Efri röð frá vinstri:
Nestor Sensini, Lilian
Thuram, Gianluigi Buf-
fon, Alain Boghossian,
Luigi Sartor og Juan
Sebastian Verón.
Neðri röð frá vinstri:
Enrico Chiesea, Fabio
Cannavaro, Diego
Fuser, Hernan Crespo
og Mario Stanic.
„Það er mjög
erfitt að verða
vitni að þessu.
Fyrirliðinn Alessandro Lucarelli segir
að nú sé nóg komið og mögulega verði
farið fram á gjaldþrotaskipti yfir félaginu.
Leikmenn hafa ekki fengið greitt síðan í
fyrrasumar.