Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2015, Page 38
Vikublað 24.–26. febrúar 201538 Fólk
Próteinsjeik
eyðlagði lakkið
Miklar og heitar umræður sköp-
uðust eftir Kastljósþátt í síðustu
viku þar sem fjallað var um að
fæðubótarefni væru óþörf. Nokkr-
ir einstaklingar úr líkamsræktar-
bransanum hafa stigið fram og
sagt umfjöllunina hafa verið illa
unna og villandi. Marta Mar-
ía Jónasdóttir, umsjónarmað-
ur Smartlands á mbl.is, tók hins
vegar hinn pólinn í hæðina á
Facebook-síðu sinni.
„Vegna umræðunnar um fæðu-
bótarefni langar mig að deila því
með ykkur að fyrir nokkrum árum
missti ég próteinsjeik yfir bílinn
minn með þeim afleiðingum að
lakkið eyðilagðist. Síðan þá hef ég
látið allt duft eiga sig og get stað-
fest að það hefur ekki með nokkru
móti komið niður á líkamlegum
styrk,“ skrifaði Marta María sem
hefur stundað lyftingar af krafti
síðustu misseri.
„Munum slá í gegn“
Hildur og Erna mynda hljómsveitina Fylgjurnar
V
ið höfðum talað um að
stofna hljómsveit í langan
tíma og loksins núna þegar
við erum báðar nýorðn-
ar mæður ákváðum við að
slá til og demba okkur í þetta. Það-
an mætti segja að nafnið sé kom-
ið,“ segir Hildur Hermannsdóttir,
önnur meðlima hljómsveitarinnar
Morkakas, eða Fylgjurnar. Hildur
og Erna Einarsdóttir skipa sveitina
en vinkonurnar hafa þekkst
í tæp 20 ár. „Við höfum
alltaf átt mikla samleið
frá listrænu sjón-
arhorni en núna
búum við báðar í
Ósló og hittumst
óvænt í garðin-
um þar sem Erna
nefndi við mig
hvort við ætt-
um ekki að stofna
þessa hljómsveit.
Og það var engin
spurning.“
Bannað börnum
Alfreð Örn, sonur Ernu, verður eins
árs í mars en Guðbjörg María, eða
Maya, dóttir Hildar, verður tveggja
ára í sumar. „Alfreð sá okkur í
gervinu og starði bara á okkur, alveg
steinhissa. Ég sýndi Mayu vídeóið
og hún fór að hágráta. Hún varð
virkilega hrædd. Ég lít á það sem
hrós. Það er frábært að fá svona
öfgakennd viðbrögð en ég held
samt að myndbandið ætti að vera
bannað börnum undir tólf ára eft-
ir að hafa séð hana svona skelfingu
lostna.“
Svala listaþörfinni
Fylgjurnar voru stofnaðar í septem-
ber 2014. „Við höfum samið nokkur
lög og æfum reglulega. Megin-
markmiðið er að hafa gaman og
svo er stefnan tekin á að gefa út sjö
tommu vínylplötu með vorinu,“
segir Hildur og bætir við að tón-
list þeirra sé svokallað tölvupönk.
„Við öskrum, görgum og gerum alla
tóna og takta í tölvu. Við gerum
allt sjálfar, semjum lögin
og textana og gerðum
myndbandið, allt frá
tökum, förðun og
búningahönnun.
Svo klipptum
við það sjálf-
ar en við erum
báðar útskrif-
aðar sem graf-
ískir hönnuð-
ir úr Listaháskóla
Íslands. Við erum
báðar með svakalegan
sköpunarkraft og þess
vegna er þetta svo mikil snilld.
Við náum að svala listaþörfinni
með þessu,“ segir Hildur sem ætlar
sér stóra hluti með Fylgjunum í
framtíðinni.
Klikkað og öðruvísi
„Við höfum fengið bæði góð og slæm
viðbrögð. Fólki finnst þetta hresst,
klikkað, öðruvísi, slæmt og gott. Það
er fínt að fá svona misjöfn viðbrögð.
Er það sem slær í gegn ekki alltaf
umdeilt? Okkur finnst að fólk mætti
vera mjög spennt fyrir þessari hljóm-
sveit og endilega fylgjast með The
Morkakas í framtíðinni. Við erum á
Facebook og
við munum
slá í gegn.“ n
„Hún varð
virkilega
hrædd
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Listamenn Erna
og Hildur hafa átt
samleið í list sinni
síðustu árin.
Fylgjurnar Hildur og Erna ákváðu í
fæðingarorlofinu að stofna hljómsveitina.
Mynd JóI KJartanS
Ætla sér stóra hluti Nafnið á hljómsveitinni kom þegar þær
Hildur og Erna fóru í fæðingarorlof.
Kaffipása Stelpurnar sáu um allt
sjálfar. Þar á meðal gervi og búninga.Vilja vera umdeildar Fylgjurnar hafa fengið alls konar viðbrögð.
Gerir það
gott í L.A.
Tónlistarmaðurinn Eddie House
úr hljómsveitinni Steed Lords
er einnig að gera það gott sem
plötusnúður í Los Angeles. Eddie,
sem heitir réttu nafnið Eðvarð
Egilsson, vinnur svo líka fyrir sér
sem fyrirsæta úti í borg englanna
en þar hefur hann verið á skrá hjá
alþjóðlegu módelskrifstofunni
Next Management.
Eddie hefur til að mynda
setið fyrir á myndum fyrir
gallabuxnarisann Levi's og skó-
fyrirtækið Converse og birst á
myndum í tímaritum á borð við
Man of the Hour.
Eddie er kærasti leikkonunnar
Tatíönu Ósk Hallgrímsdóttur sem
einnig er á skrá hjá Next.
Unnsteinn
þakklátur
Unnsteinn Manuel Stefánsson
var mjög hrærður þegar þáttur-
inn Hæpið, sem hann stjórnaði
ásamt Katrínu Ásmundsdóttur,
var valinn besti lífsstílsþátturinn á
Edduhátíðinni. Íslensku tónlistar-
verðlaunin voru afhent á föstu-
daginn. Stuðið þar tók sinn toll og
hann sagði á Facebook: „Fagnaði
aðeins of ákaft á Tónlistarverð-
laununum, þannig að ég gleymdi
að gera þakkarræðu fyrir Edduna.“
Í kjölfarið taldi Unnsteinn upp þá
sem hann vildi koma þökkum til
og sagði svo: „Og takk allra mest,
Ágústa mín, sem veit minnst
af því, Hæpið hefði orðið alveg
hræðilegt án þín.“ En þar á hann
vissulega við kærustu sína, Ágústu
Sveinsdóttur.