Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 11
Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Fréttir 11 Heiðarleiki borgar sig ekki í Handónýtu kerfi n Fékk ekki undanþágu hjá LÍN vegna launa sambýlismanns n Frétti af synjun í innheimtubréfi frá Motus út frá því hvað ég ein var með í laun, það var ekki tekið tillit til hans tekna þegar ég fékk námslánið en samt á hann að sjá um að borga það?“ Kveðst hún hafa fengið þau svör að stjórn LÍN hafi ákveðið þetta tekjuþak síðasta haust en bendir á að engar upplýsingar sé að finna um hvernig þessi tala sé fundin, við hvað sé miðað. „Það er ekki tekið tillit til þess að fólk eigi börn eða annarra aðstæðna. Ég bjóst ekki við að þurfa að borga þetta og hef ekki efni á því. Ég spurði því hvað væri til ráða og fékk þau svör að nema ég væri í verulegum greiðsluerfiðleikum með staðfestingu frá umboðsmanni skuldara, lán í frystingu í minnst fjóra mánuði og fleira þá þyrfti ég að gjöra svo vel og borga þetta. Ég varð bara orðlaus.“ Anna Katrín kveðst hafa leitað af sér allan grun, hún hafi ekki fengið póst um synjunina þó að starfsmaður sjóðsins fullyrði að hann hefði hún átt að fá. Refsað fyrir eljusemi Anna Katrín segir að sambýlismað­ ur hennar og barnsfaðir hafi verið í fullu starfi síðastliðin tvö ár með námi. „Einfaldlega vegna þess að námslánin duga ekki til að halda uppi tveimur börnum og heimili. Hann hefur unnið fullt starf og verið í 2 til 3 áföngum í skóla með vinnu. En af því að hann var svo tekjuhár fyrsta árið sitt þá missti hann öll réttindi til að fá námslán, og missti líka réttindi til að fá námslán fyr­ ir skólagjöldunum sem eru 200 þúsund á önn. Það er þá peningur sem við þurfum að greiða úr vasa svo hann hafi efni á að klára skól­ ann, sem er mikilvægt atriði auðvit­ að. Hann fær því engin skólagjöld, ekki námslán en við þurfum að nota launin hans til að greiða það auk minna námslána. Svo byrjar hann að greiða af sínum námslánum nú í haust.“ Það er því ekki bara Anna Katrín sem líður fyrir það að sambýlismað­ urinn neyðist til að vinna fullt starf með skóla, heldur líka hann sjálfur. Borgar sig að svindla Það er því verið að refsa ykkur fyrir að reyna að framfleyta ykkur með námi? „Það er okkar upplifun. Við erum að reyna að feta okkur áfram í líf­ inu, taka skynsamlegar ákvarðanir og vera heiðarleg. En maður hefði það talsvert betra ef maður væri það ekki. Við höfum verið skráð í sam­ búð frá því áður en við eignuðumst börn, en ef ég væri skráð einstæð myndi ég fá frest á námslánin mín, ég myndi fá miklu hærri námslán og mikið hærri barnabætur.“ Óttast að þurfa að hætta í námi Aðspurð hver þeirra næstu skref verða segir Anna Katrín að nú sé framtíð þeirra í mikilli óvissu. Undanfarin ár hafi verið mikil bar­ átta og lítið hafi mátt út af bregða um hver mánaðamót. „Núna lítur út fyrir að ég geti ekki haldið áfram í skólanum á næstu önn til að klára námið. Við höfum ekki efni á að greiða skólagjöldin hans, þannig að hann getur ekki klárað námið sitt. Þetta er því far­ ið að líta illa út allt saman. Maður er bara virkilega sár og reiður. Kerfið er svo hrikalega gallað að það er ein­ hvern veginn útilokað fyrir námsfólk að komast áfram. Þetta er tímabil­ ið þar sem á ekki að vera svona mik­ il óvissa. Það á að styðja fólk sem er að mennta sig, er með börn og er að ganga í gegnum þetta erfiða tímabil í lífinu þar sem maður er að gera allt í einu. Það á að vera meiri stuðningur í kerfinu, betra öryggisnet fyrir ungt fjölskyldufólk. Þetta varðar réttindi barnanna. Ég sé á fólkinu sem er að deila skrifum mínum á Facebook um þetta að fleiri eru að lenda í ná­ kvæmlega þessu.“ Aðspurð hvaða ráð þau hafi kveðst Anna ekki vita það. „Við erum enn í sjokki og enn að átta okkur. Eini möguleikinn sem við höfum er að leita til fjölskyldunnar og það er ekki sjálfgefið að hafa að­ gang að hjálp frá fjölskyldunni.“ n Miðað við lágmarkslauna- taxta og árslaun öryrkja DV leitaði svara hjá LÍN DV sendi Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra LÍN, fyrir­ spurn vegna málsins. Spurt var um tekjuþakið hjá sambýlisfólki, við hvað væri miðað þegar sú upphæð væri fundin og hvort eðlilegt gæti talist að tekjur maka verði til þess að nær tekjulaus námsmaður fái synj­ un á úrræðum sjóðsins. Hrafnhildur segir að LÍN hafi á undanförnum árum haft ákveðið tekjuviðmið sem miðað er við við mat á undanþágum. Á síðasta ári hafi það verið 3,3 milljónir fyrir einstakling en 6,6 milljónir fyrir sambýlis­ fólk/hjón. „Við ákvörðun á tekjuviðmiði er tekið mið af því að greiðanda reikn­ ist ekki tekjutengd afborgun en jafnframt er tekið mið af lágmarkslauna­ taxta BHM og meðal árslaunum öryrkja. Frá og með árinu 2013 var mið­ að við að samanlagðar tekjur hjóna væru undir 6,6 m.kr. Rökin eru þau að hér er um ívilnandi ákvæði að ræða þ.e. þegar veitt er undanþága frá námslánum en aðrar röksemdir gilda um veitingu námslána. Vinnu­ reglur LÍN hvað varðar undanþágur á endurgreiðslum námslána koma fram í úthlutunarreglum sjóðsins sbr. gr. 7.5.“ DV spurði einnig hvort ekki væri óheppilegt ef misfarist hefði að láta Önnu Katrínu vita að henni hefði verið synjað um þetta úrræði í tæka tíð áður en innheimtubréf bærist frá Motus. Hrafnhildur bendir aðeins á að í verk­ lagsreglum LÍN fær greiðandi senda innheimtuviðvörun 15 dögum eftir gjald­ daga þar sem fram kemur að sé greiðsla ekki innt af hendi sé hún send til Motus í milliinn­ heimtu, sem er 27 dögum eftir gjalddaga. „Rétt er að taka fram að beiðni um undanþágu frestar ekki innheimtuferli,“ segir Hrafnhildur í skriflegu svari og vís­ ar svo í staðlað svar sem umsækjendur fá í framhaldi af umsókn þar sem þetta kemur fram. „ Maður er bara virkilega sár og reiður Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Sefac stólpalyftur è Fáanlegar 5,5 7,5 og 8,2 tonn è 7,5 er með þráðlausum samskiptum milli pósta è Íslenskur texti í skjá è Dekkjastærð: 962 til 1154 mm è Mesta hæð: 1820 mm è Hraði upp óhlaðinn 1090 mm/mín è Hraði upp hlaðinn 7,5 T. 790 mm/mín è Ryk og vatnsvarinn samkv. IP54 è Þyngd á stólpa 430 kg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.