Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 62
58 Fólk Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Lakkað smeLLuparket • 30 ára ábyrgð Parket & gólf • Ármúla 32, 108 Reykjavík • S: 5681888 • parketoggolf.is Verð: 9.060 kr. m² Nú á tilboðsverði: 6.342 kr. m² Hágæða PlankaParket - eik Sauvage einstakt tilboð -30% afsláttur ATH TAkmArkAð mAgn Parket og gólf Allir eiga sín leyndarmál n Harpa Arnardóttir fer með eitt aðalhlutverka í kvikmyndinni Blóðberg n Skrýtið að kveðja persónuna É g á meira að segja eftir að sjá hana. Ég var bara að koma frá París,“ segir leikkonan Harpa Arnardóttir sem fer með eitt aðalhlutverka í kvikmyndinni Blóðberg sem frumsýnd verð- ur í kvikmyndahúsum, í dag, föstu- dag. Myndin var hins vegar forsýnd á páskadag á Stöð 2 og hefur fengið nokkuð góða dóma. Harpa er því að vonum spennt að sjá Blóðberg loksins á hvíta tjaldinu, en tökum á myndinni lauk í janúar. Hún segist þó vera búin að fá góð viðbrögð við sínum leik. „Það er nú líka alltaf þannig. Fólk er ekkert að hringja í mann og segja að eitthvað hafi verið hörmulegt,“ seg- ir Harpa hlæjandi. „Fólk þakkar mér bara fyrir ef það er ánægt,“ bætir hún við. Þekkti hlutverkið vel Myndin á sér töluvert langan að- draganda og hlutverkið sem Harpa fer með var henni ekki ókunnugt þegar tökur hófust í ágúst síðastliðn- um. Handrit myndarinnar er byggt á leikritinu Dubbel Dusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson, sem leikhópurinn Vesturport frumsýndi hjá Leikfélagi Akureyrar árið 2008. Þar fór Harpa með sama hlutverkið. „Sýningin var afar vel sótt. Við vorum með fjór- ar til sex sýningar um helgar. Þetta var mikið ævintýri. Við keyrðum á milli og kynntumst öll vel, hópurinn. Þetta var skemmtilegt vinnutímabil.“ Dubbel Dusch var fyrsta leikritið sem Björn Hlynur skrifaði og leikstýrði og er Blóðberg hans fyrsta kvikmynd, en hún hefur strax vakið athygli utan landsteinanna. „Við þekkjum þessar persónur því nokkuð vel eftir að hafa verið með þeim sviði í tvö ár. En við sýndum líka í leikhúsi Hermóðar og Háðvarar í Hafnarfirði á sínum tíma.“ Aðspurð hvort það sé þó ekki ólíkt að leika á sviði og í bíómynd, þrátt fyrir að um sé að ræða sömu persónuna, svarar Harpa játandi: „Þetta er auðvitað ólíkt en byggir á sama grunni. En þetta er alltaf örlítið öðruvísi nálgun.“ Allir hafa eitthvað að fela Blóðberg fjallar um hefðbundna ís- lenska fjölskyldu sem virðist nokk- uð fullkomin á yfirborðinu. Fjöl- skyldufaðirinn bjargar samlöndum sínum með því að skrifa sjálfshjálpar- bækur á meðan móðirin, sem Harpa leikur, bjargar fólki sem hjúkrunar- fræðingur á spítala. Hvorugt þeirra hjóna hefur hins vegar kjark til að bjarga sjálfu sér og þau lifa og hrær- ast í heimi leyndarmála, sem einn daginn þarf að takast á við. Meðal annars kemur í ljós að ný kærasta sonar þeirra reynist vera dóttir fjöl- skylduföðurins, og parið því hálf- systkini. Harpa segir það hafa komið í ljós, bæði þegar hópurinn vann við leik- sýninguna á sínum tíma og við kvik- myndina, að nánast allar fjölskyld- ur eigi einhver leyndarmál. Kannski ekki jafn stór og þau sem fjallað er um í kvikmyndinni, en það er alltaf eitt- hvað sem fólk vill síður að líti dags- ins ljós. „Það var mikið spjallað og það kom í ljós að svipaðar sögur leynast í hverri einustu fjölskyldu, með einum eða öðrum hætti. Allir hafa sína sögu að segja með einhverjum hætti. En ég hef ekki reynt akkúrat þetta sjálf,“ seg- ir Harpa hlæjandi þegar blaðamað- ur reynir að veiða upp úr henni fjöl- skylduleyndarmál. „Þetta fylgir líka sögu mannkyns – rangfeðruð börn – það hefur viðgengist frá örófi alda.“ Skrýtið að kveðja Harpa viðurkennir að það hafi ver- ið skrýtið að kveðja persónuna sína þegar tökum á Blóðberg lauk. „Það var mjög sérstakt síðasta töku- daginn, eftir að hafa þekkt þessa persónu svona lengi, að leika síð- ustu senuna.“ Þá segir Harpa það hafa verið gaman að fá að leika í vet- ur, samhliða þeim tveimur verkum sem hún var að leikstýra; Karitas í Þjóðleikhúsinu og Dúkkuheimil- inu í Borgarleikhúsinu. Henni finnst skemmtilegast að blanda þessu saman, leikaranum í sjálfri sér og leikstjóranum. n Við tökur Björn Hlynur leikstjóri ásamt Hörpu og Hilmari Jónssyni, sem fer með hlut- verk fjölskyldu- föðurins. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is „Fólk er ekkert að hringja í mann og segja að eitthvað hafi verið hörmulegt. S jónvarpsserían Poldark hefur hlotið einróma lof hjá áhorf- endum jafnt sem gagnrýnend- um. Poldark er sannkallað búningadrama, en sagan, sem fjallar vitaskuld um ástir og örlög, á sér stað á átjándu öld í Cornwall í Englandi. Íslenska leikkonan Heiða Rún Sig- urðardóttir leikur í þáttunum á móti Aidan Turner, sem hefur fest sig í sessi sem hjartaknúsari og alhliða kyntákn með leik sínum í þáttun- um. Eftir frumsýningu þáttanna hef- ur hann meðal annars verið orðaður við hlutverk James Bond – sem hlýt- ur að vera einhvers konar hástig karl- mennsku í kvikmyndum. Heiða greindi frá því, í DV í viðtali fyrir skömmu, að tekin yrði ákvörðun um framhald á þáttunum þegar við- tökur við þeim fyrstu kæmu í ljós – þær hafa svo sannarlega verið góðar því allt að því átta milljónum Breta hafa horft á hvern þátt í fyrstu serí- unni. BBC hefur því samið við fram- leiðendur og leikara um að gera aðra seríu um hinn lokkaprúða Poldark og konurnar sem elska hann. n Heiða Rún semur við BBC
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.