Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 44
40 Lífsstíll Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta FRÁBÆRIR OFNAR FRÁ TURBOCHEF Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 i3 TM i5 TM Hraðinn og þægindin koma ekki niður á gæðum matarins! SŏtaTM i1 TM Ofnarnir frá Turbochef eru einfaldir í notkun, taka lítið pláss og rafmagnsnotkun er í lágmarki. Þeir elda 10–12 sinnum jótar en hefðbundnir ofnar og þurfa ekki sérstaka loftræstingu Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir utfyrirkassann@gmail.com Kunni ekki til verka Ebba Guðný þurfti að læra sjónvarps- þáttagerð frá grunni áður en hún byrjaði að taka upp þættina sína. Mynd STyrMir Kári „Hvað er það versta sem getur gerst?“ n Ebba Guðný hefur þurft að takast á við ýmsar áskoranir n Var mjög stressuð í upptökum S jónvarpskokkurinn og rit­ höfundurinn Ebba Guðný Guðmundsdóttir leitast eftir því að fara sínar eig­ in leiðir hvort sem það er í starfi eða persónulegu lífi sínu. Hún hefur eldað sig inn í hjörtu landsmanna og miðlað þekkingu sinni á mannamáli sem marg­ ur amatörinn kann að meta. Ebba annaðist útgáfu á bókunum sín­ um sjálf og gekk í öll verk sem þeim tengdust þrátt fyrir að þau hafi oft verið utan hennar þægindasviðs. Þá segist Ebba hlusta á innri rödd sína sem segir henni oftar en ekki að hún geti gert hlutina þótt hún sé hrædd! Kveið fyrir fyrirlestrum „Mér finnst mikilvægt að stíga út fyrir þægindarammann því með því vinn ég sigra. Ég er samt alls ekki góð í því og yfirleitt fer ég einna mest út fyrir rammann þegar ég verð að gera það og er alveg komin út í horn. Það má því segja að kvíði og vanlíðan sé oft fylgifiskur því ég hef áhyggjur af því að geta ekki gert það sem ég ætla mér. Eftir á, þegar mér hefur tekist ætlunarverkið, jafna ég mig fljótt og er auðvitað sterkari fyrir vikið.“ Það getur verið erfitt að ímynda sér að á bak við sjarmann og öryggið sem ávallt birtist áhorfand­ anum þegar Ebba er á skjánum sé kona sem átti erfitt með tökuvélina og var kvíðin fyrir viðtali í beinni út­ sendingu. „Það er svo gott að líta í baksýnis­ spegilinn og sjá að áhyggjurnar sem ég hef áður borið voru í raun­ inni óþarfar. Ég hef þannig lært að ef ég geri mitt besta og af heil­ indum þá fer allt vel. Innri röddin segir mér stundum að ég geti gert hlutina þótt ég sé hrædd og ég reyni að hlusta á hana. Sem dæmi má nefna að mér þótti mjög erfitt að halda minn fyrsta fyrirlestur fyrir framan fólk. Ég var ótrúlega stressuð þegar ég stóð í fyrsta sinn fyrir framan sjónvarpsupptökuvél en þegar ég vandist því þá var það bein útsending sem olli mér miklu hugarangri. Í dag, mér til mikillar ánægju, finnst mér ekkert af þessu vera mikið mál.“ Fékk aðstoð frá frænda Þegar Ebba byrjaði að vinna sjón­ varpsþættina „Eldað með Ebbu“ áttaði hún sig á muninum á hand­ ritsgerð og bókaskrifum. Hún segist ekki hafa kunnað til verka en að frændi hennar, Sævar Sigurðsson, hafi vísað henni veginn, sem henni fannst oft á tíðum erfiður yfirferðar. „Ég kunni ekki að búa til hand­ rit að sjónvarpsþáttum þegar ég byrjaði að undirbúa þættina mína. Hið óþekkta er fyrir utan þæginda­ rammann okkar og því getur hjálp reynst manni vel. Með rosalega góðri aðstoð frá frænda mínum, leikstjóranum Sævari Sigurðssyni, lærði ég margt af því sem mig hafði ekki órað fyrir að tengdist sjón­ varpsþáttagerð. Fyrir vikið átta ég betur á hvernig maður býr til sjón­ varpsþátt og það er frábær reynsla í farteskið.“ Hlustaði á afa Þrátt fyrir mikið hugrekki segist Ebba alls ekki sækjast eftir mikilli áhættu í lífinu og að fólk verði að fá að vera mismunandi hvað það varðar. Hún segir sína ögrun oftast snúa að hræðslunni við að mistak­ ast á meðan aðrir njóti þess hrein­ lega að leika sér að eldinum. „Ég er að minnsta kosti ekki að fara að stökkva út úr flugvél eða neitt álíka hættulegt,“ fullyrðir Ebba en hún segist hafa máltæki frá afa sínum á bak við eyrað þegar hún horfist í augu við eitthvað sem henni kann að finnast óþægilegt. „Afi minn sagði alltaf að maður yrði að þora að vera til og mér finnst þetta ágætis máltæki sem minnir mig á að vera hugrökk í aðstæðum sem krefjast þess. Ég meina, hvað er það versta sem getur gerst á skal­ anum 1–10?“n „Það er svo gott að líta í baksýnis­ spegilinn og sjá að áhyggjurnar sem ég hef áður borið voru í rauninni óþarfar. Hugsar þú út fyrir kassann? Í síðasta helgarblaði DV fjölluðum við um það að hugsa út fyrir kassann og þjálfa hugann í skap­ andi hugsun. Við birtum æfingu sem getur einmitt stuðlað að fram­ antöldu en í henni fólst að tengja saman 9 punkta með fjórum bein­ um línum án þess að lyfta blýanti frá blaði. Spenntir lesendur „út fyrir kassans“ þurfa þó ekki að ör­ vænta þótt þeir hafi ekki fundið lausnina því hér birtum við eina af nokkrum mögulegum lausnum verkefnisins. n Tengdu 9 punkta með 4 beinum línum Æfingin sem birtist í síðasta helgarblaði. Lausn æfingarinnar Hér er dæmi um hvernig hægt er að leysa þrautina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.