Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 17
Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Fréttir 17 Dæmdur saklaus n Fangelsi vofði yfir tveimur mönnum í heilt ár n Hæstiréttur sýknaði H æstiréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykja- víkur og sýknað Sönke Holz og Donald Andersson í lík- amsárásarmáli á Laugavegi á menningarnótt í Reykjavík árið 2012. Hæstiréttur taldi vitni ótrú- verðug og að ákæruvaldið hefði ekki axlað sönnunarbyrði. Bæði Sönke og Donald höfðu verið dæmdir í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi. Ærumissir á netinu „Við vorum nafngreindir í DV og fréttin hefur verið á netinu síðan seint í maí í fyrra þegar dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi,“ seg- ir Sönke. Sönke Holz er af þýsku bergi brot- inn og hefur verið búsettur hér á landi undanfarinn áratug eða svo. Hann er útskrifaður sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og sóttist námið vel þar. Hann er meðal annars meðlimur í hljóm- sveitinni Cryptochrome. Dóminum var umsvifalaust áfrýjað og sýknu- dómur Hæstaréttar var kveðinn upp fyrir skemmstu. „Það hefur verið afleitt að hafa hangandi yfir sér níu mánaða fang- elsisdóm. Ég er í sambúð og á sjö ára son. Ef ég sæki til dæmis um vinnu er vandalaust að fletta því upp á netinu að ég hafi verið dæmdur fyrir of- beldi sem ég hef nú verið sýknaður af. Ef allt hefði farið á versta veg hefði ég farið í fangelsi í sumar. Allt þetta hefur verið mjög erfitt fyrir mig, til dæmis þegar ég sæki um vinnu.“ Einkennileg málsatvik Mál Sönkes og félaga hans er athygl- isvert því skömmu eftir atvikið á Laugavegi reyndi Sönke sjálfur að kæra líkamsárásina og taldi sig þar af leiðandi vera brotaþola en ekki árásarmann. „Ég og kunningi minn vorum að koma úr vinnu. Donald var á undan mér að tala í síma. Ég sneri mér við og fékk högg í andlitið þannig að gleraugun duttu í götuna. Donald kom og vildi verja mig frek- ari áreitni meðan ég tæki upp gler- augun og setti á mig.“ Sönke og félagi hans hurfu um síðir af vettvangi en Donald var fljót- lega handtekinn. Sá er kærði líkams- árásina hafði fallið í götuna og í kæru hans var borið að Sönke og Dona- ld hefðu sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að hann tapaði rænu um stund. „Eins og gefur að skilja hefði ég ekki reynt að kæra líkamsárás sjálf- ur ef ég hefði verið með vonda sam- visku. Mér var sagt að það gengi ekki því sá sem ég átti að hafa ráðist á væri búinn að kæra. Mér var sagt að ég gæti borið vitni fyrir Donald. Þannig átti að snúa á haus tilraun minni til að kæra ofbeldisárás og nota hana gegn sjálfum mér. Þetta er óskiljan- legt réttarfar,“ segir Sönke. Ótrúverðug vitni Í dómi héraðsdóms fyrir tæpu ári segir: „Samkvæmt áverkavottorði greindist brotaþoli með töluverða áverka í andliti eftir atvikið, auk þess sem hann tognaði í hálshrygg og brjósthrygg. Samrýmast þessir áverkar því að brotaþoli hafi fengið ítrekuð spörk í höfuðið. Þegar fram- burður þessara sjónarvotta eru virt- ir, og hliðsjón höfð af áverkavottorði og ljósmyndum af áverkum á brota- þola, þykir dómnum hafið yfir skyn- samlegan vafa að ákærðu hafi í félagi veist að brotaþola og sparkað í höf- uð hans liggjandi í jörðinni. Ákærðu tóku báðir þátt í atlögunni. Af þeim sökum verður ekki skilið á milli þátt- ar hvors um sig í atlögunni.“ Hæstiréttur fór yfir framburð vitna sem virðast hafa ráðið úrslitum í dómi undirréttar. Taldi rétturinn að framburður vitnanna væri óskýr og „nokkuð misvísandi“ um spörk í höfuð brotaþola. Að minnsta kosti annað höfuðvitnanna var auk þess drukkið umrætt kvöld samkvæmt vitnisburði. Sama vitni bar að Sön- ke hefði sparkað í höfuð brotaþola. En Hæstiréttur sannfærðist ekki og í dómi hans segir: „Ekkert ann- að þeirra vitna sem komu fyrir dóm bar afdráttarlaust á þann veg. Þá hef- ur vitnið [...] sjálfur borið á þá leið að hann hafi verið drukkinn um- rætt sinn. Einnig kom fram í fram- burði [...] læknis fyrir dómi að höf- uðáverkar þeir sem brotaþoli hlaut geti hafa orsakast af öðrum ástæðum en spörkum í höfuð. Jafnframt kom fram hjá lækninum að áverkar hans hafi ekki verið alvarlegir.“ Uppreisn ærunnar Dómarar Hæstaréttar segja að þótt rétturinn sé ekki í aðstöðu til þess að endurmeta sönnunargildi munn- legs framburðar fyrir héraðsdómi verði samt sem áður að slá því föstu að gegn eindreginni neitun Sönkes og Donalds hafi „ákæruvaldið ekki axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvílir [...] og ekki sé því komin fram næg sönnun fyrir sekt ákærðu, eins og henni er lýst í ákæru, svo haf- ið sé yfir skynsamlegan vafa [...]. Verða ákærðu því sýknaðir af kröfum ákæruvaldsins í málinu.“ Auk þess að hljóta níu mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur höfðu Sönke og Donald verið dæmdir til að greiða samtals um 1,7 milljónir króna í miskabætur, málsvarnarlaun og sakarkostnað. Auk þess að sýkna Sönke og Donald vísaði Hæstiréttur miskabótakröfu meints brotaþola frá dómi og felldi sakarkostnað allan á ríkissjóð. n Vettvangur Atvikið átti sér stað á Laugavegi á meningarnótt 2012. Sönke reyndi sjálfur að kæra atvikið en hlaut einkennilegar viðtökur hjá lögreglunni. Jóhann Hauksson johannh@dv.is Sýknaður Með sýknudómi Hæsta- réttar hefur Sönke Holz tekið gleði sína á ný eftir að hafa lifað í skugga fangels- isdóms í nærri eitt ár. Dómur undirrétt- ar hafði margvísleg og neikvæð áhrif á líf hans. Nafn hans var birt meðal annars í frétt DV þegar sektardómurinn féll í fyrra. Mynd SigtryggUr Ari „Ef ég sæki til dæmis um vinnu er vandalaust að fletta því upp á netinu að ég hafi verið dæmdur fyrir ofbeldi sem ég hef nú verið sýknaður af Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir Rykmoppur og sápuþykkni frá Pioneer Eclipse sem eru hágæða amerískar hreinsi- vörur. Teppahreinsivörur frá HOST Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942 Frábærar þýskar ryksugur frá SEBO Decitex er merki með allar hugsanlegar moppur og klúta í þrifin. UNGER gluggaþvottavörur, allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með: Marpól er með mikið úrval af litlum frábærum gólfþvottavélum Tilboð fyrir hótel og gistiheimili í apríl/maí!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.