Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 58
54 Menning Sjónvarp Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Fögnum kvenkyns kjánum og ódámum H afa fleiri en ég tekið eft­ ir því, að þessa dagana heyrum við í auknum mæli um konur í valda­ stöðum sem komst í hann krappan? Málin snúast í besta falli um munnleg axar­ sköft og fordómafull ummæli, en í versta falli um meiriháttar embættisafglöp, svik og sjálftöku. Álitsgjafar ýmiss konar, sem lifa og hrærast á kvenréttindavængn­ um, hafa í kjölfarið risið upp og bent á að konurnar fái harðari dóma fyrir afglöp en karlkyns kollegar þeirra, og eflaust er það satt og rétt. Ekki smart að klípa í rass Kvennabaráttan hefur skilað ýms­ um árangri á Íslandi síðustu ára­ tugina. Það þykir ekki lengur smart að klípa í rassa á flugfreyj­ um og hjúkrunarfræðingum, karl­ rembustælar af ýmsu tagi njóta síminnkandi vinsælda og sagt er að karlmenn vaski nú upp til jafns við konur sínar á mörgum heim­ ilum. Karlar hafa þessa dagana sömu möguleika og konur til þess að taka sér fæðingarorlof (þó að þeir geri það reyndar ekki). Síð­ an 2010 hefur fyrirtækjum verið skylt að tryggja að hvort kynið eigi í það minnsta 40 prósent fulltrúa í stjórninni. Í dag erum við rétt skriðin yfir 43 prósentin, en það telst víst árangur miðað við það sem áður var. Konur eru líka rétt rúm 40 prósent alþingismanna. Af tíu ráðherrum eru fjórar kon­ ur – 40 prósentin aftur. Er þetta kannski eitthvert dularfullt lög­ mál? Getur verið að það sé ill­ mögulegt fyrir konur að ætlast til þess að þær geti hrifsað meira en 40 prósent valdanna úr klóm feðraveldispúkans feita á fjósbit­ anum? Launamunur kynjanna hefur eitthvað dregist saman á undan­ förnum árum en mælist þó enn­ þá tæplega 10 prósent – það er sá munur sem verður ekki skýrð­ ur með öðru en kyni. Kannski er það vegna þess að það þykir enn­ þá svona merkilegt að bora í vegg og bera áburðarpoka. Breidd og breyskleiki Eitt er það þó sem umfram ann­ að gefur skýrt til kynna að árangur hafi náðst í jafnréttisbaráttunni. Það er vaxandi hlutfall kvenkyns kjána og ódáma í stjórnmálum og valdastöðum samfélagsins. Hér áður fyrr sté kona varla feil­ spor í íslenskum stjórnmálum – enda þurftu þær að vera miklar yfirburðamanneskjur til þess að brjótast til valda. Við sáum ein­ göngu konur í valdastöðum ef þær höfðu hakað í öll réttu box­ in – höfðu réttu menntunina, starfsreynsluna og helst ætternið líka. Þetta er að breytast, þökk sé kvennabaráttunni. Við sjáum í dag konur af ýmsum tegundum með völd og ábyrgð – ekki bara þessar fullkomnu. Breiddinni fylgir þó breyskleikinn og eftir því sem hlutfall kvenna eykst í valda­ stöðum, verðum við meira vör við mistök þeirra og afglöp. Eftir sem áður eru kvenkjánarnir og kven­ ódámarnir þó dæmdir harðar er sams konar fólk af karlkyni. Gleðjumst saman Femínistar, og aðrir sem aðhyllast jafnrétti kynjanna en hafa ekki klof til að kalla sig femínista, ættu þess vegna að gleðjast yfir framgangi kvenkjána og kven­ ódáma. Baráttan hefur borið ár­ angur og það er full ástæða til að fagna. Jafnrétti fer nefnilega ekki í manngreinarálit heldur leggst jafnt yfir samfélagið. Ef við viljum raunverulegt jafnrétti þurfum við að þola að það gefi öllum tæki­ færi – ekki bara þeim einstakling­ um minnihlutahópanna sem eru klárir og æðislegir og tilheyra efri menntaðri millistétt. Neo og rauða pillan Eitt ber að minnast á í lokin. Jarð­ vegurinn sem við erum hvert og eitt sprottin úr er karllægur. Hann er það þrátt fyrir árangur í barátt­ unni, því jarðvegsskipti taka all­ nokkra áratugi. Normið er þess vegna karllægt og í raun höfum við litlar forsendur til að rýna í áhrifin af þeirri staðreynd, nema með mjög sterkum kynja­ og mis­ réttisgleraugum. Ekki frekar en Neo áður en hann valdi rauðu pilluna úr lófa Morfeusar. Mis­ réttið verður svo mun skýrara í baksýnisspeglinum. n „Getur verið að það sé ill- mögulegt fyrir konur að ætlast til þess að hrifsa meira en 40 pró- sent valdanna úr klóm feðraveldispúkans feita á fjósbitanum? Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Sunnudagur 12. apríl 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Kioka (44:78) 07.08 Ljónið Urri (27:52) 07.18 Kalli og Lóla (2:26) 07.30 Lundaklettur (2:39) 07.37 Litli draugurinn Laban (5:6) 07.44 Róbert bangsi (13:26) 07.54 Vinabær Danna tígurs (24:40) 08.05 Hæ Sámur (2:52) 08.12 Elías (2:52) 08.23 Sigga Liggalá (2:52) 08.36 Tré-Fú Tom (10:13) 08.59 Verðlaunaféð (6:21) 09.00 Disneystundin (14:52) 09.01 Gló magnaða (13:14) 09.23 Sígildar teiknimyndir (13:30) 09.30 Fínni kostur (13:20) 09.52 Millý spyr (9:78) 09.59 Unnar og vinur (19:26) 10.23 Hraðfréttir 10.43 Ævintýri Merlíns (13:13) 11.27 Bókaspjall: Jon Fosse 11.56 Gyðingar og múslimar (3:4) 12.50 Matador (4:24) 13.45 Kiljan Bókmennta- þáttur Egils Helgasonar. Stjórn upptöku: Ragn- heiður Thorsteinsson. e. 14.25 Handboltalið Íslands 14.40 Meistaramót Íslands í badminton Bein út- sending frá úrslitaleikj- unum á Meistaramóti Íslands í badminton. 16.50 Saga af strák 7,5 (About a Boy) Bandarísk gamanþáttaröð um áhyggjulausan piparsvein og einstæða móður í næsta húsi. Aðalhlutverk: Minnie Driver, David Walton og Benjamin Stockham. e. 17.10 Táknmálsfréttir 17.20 Kalli og Lóla (10:26) 17.32 Sebbi (21:40) 17.44 Ævintýri Berta og Árna (22:52) 17.49 Tillý og vinir (12:52) 18.00 Stundin okkar (1:28) Gói og Gloría taka á móti góðum gestum í allan vetur. Leikhúsrotturnar láta sig ekki vanta og ævintýrin eru aldrei langt undan. Umsjónar- maður er Guðjón Davíð Karlsson. Dagskrárgerð: Bragi Þór Hinriksson. e. 18.25 Kökugerð í kon- ungsríkinu (8:12) (Kongerigets kager) Hin geðþekka Mette Blomsterberg ferðast um gervallt Danaveldi í leit að bestu kökuupp- skriftum heims. 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir (33) 19.35 Veðurfréttir 19.40 Landinn (27) 20.10 Öldin hennar (15:52) 20.15 Þú ert hér (4:6) 20.40 Sjónvarpsleikhúsið – Fordæmd 21.05 Heiðvirða konan 22.00 Vonarstræti 00.05 Ungur maður á uppleið 01.45 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 09:25 FA Cup 2014/2015 11:05 Meistaradeildin í hestaíþróttum 2015 14:05 Spænski boltinn 15:45 Spænski boltinn 14/15 17:30 Dominos deildin 2015 19:00 Dominos deildin 2015 (KR - Njarðvík) Bein útsending frá leik KR og Njarðvíkur í Dominos deild karla. 21:00 NBA 2014/2015 - Regular Se 22:55 MotoGP 2015 23:55 Dominos deildin 2015 08:30 Premier League World 2014 09:00 Premier League 12:20 Premier League (QPR - Chelsea) Bein útsending 14:45 Premier League (Man. Utd. - Man. City) Bein útsending 17:00 Premier League 18:40 Friends (11:24) 19:05 Modern Family (15:24) 19:30 New Girl (15:23) 19:55 The Big Bang Theory (10:24) 20:20 Viltu vinna milljón? (14:30) 21:00 Twenty Four (10:24) 21:45 Rita (1:8) 22:30 Sisters (22:24) 23:15 Covert Affairs (2:16) 00:00 Viltu vinna milljón? (14:30) 00:45 Twenty Four (10:24) 01:30 Rita (1:8) 02:15 Covert Affairs (2:16) 03:00 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 07:50 Something's Gotta Give 09:55 Another Cinderella Story 11:30 The Other End of the Line 13:20 So Undercover 14:55 Something's Gotta Give 17:00 Another Cinderella Story 18:35 The Other End of the Line 20:25 So Undercover 22:00 Take This Waltz 23:55 Flypaper 01:25 Prometheus 03:30 Take This Waltz 16:45 The Amazing Race 17:25 One Born Every Minu- te UK (4:14) 18:15 Hot in Cleveland 18:40 Last Man Standing (17:22) Skemmtilegir gamanþættir með grínaranum Tim Allen í hlutverki karlmans sem lifir og hrærist í miklu kvennaríki, bæði í vinnunni og heima fyrir. Mike Baxter (Allen) og kona hans ala í samein- ingu upp þrjár dætur, og þar gengur oft á ýmsu. 19:00 Bob's Burgers (16:22) 19:25 Amercian Dad (7:18) 19:45 Cleveland Show 4, The (18:23) Skemmti- legir teiknimyndarþættir frá handritshöfundum American Dad og Family Guy en þættirnir fjalla einmitt um líf Cleveland- fjölskyldunnar sem koma fyrir í þeim þáttum. 20:10 The Bill Engvall Show (1:10) 20:35 The League (7:13) 21:00 Saving Grace (12:19) 21:45 The Finder (6:13) 22:30 Bob's Burgers (16:22) 22:55 Amercian Dad (7:18) 23:20 Cleveland Show 4, The (18:23) 23:45 The League (7:13) 00:10 The Bill Engvall Show 00:35 Saving Grace (12:19) 01:20 The Finder (6:13) 02:05 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 06:00 Pepsi MAX tónlist 12:00 The Talk 12:40 Dr. Phil 14:40 Cheers (10:26) 15:05 Royal Pains (10:16) 15:50 Parks & Recreation 16:15 The Office (3:27) 16:40 Biggest Loser Ísland - upphitun 17:15 The Biggest Loser - Ísland (11:11) 18:50 Top Gear (3:7) 19:45 Gordon Ramsay Ultimate Home Cooking (4:20) Gætir þú hugsað þér betri matreiðslukennara en sjálfan Gordon Ramsay? Meistarakokkurinn tekur þig í kennslustund og hjálpar þér að öðlast raunverulegt sjálfs- traust í eldhúsinu. 20:15 Scorpion (13:22) Sérvitur snillingur, Walter O‘Brien, setur saman teymi með öðrum yfirburðasnill- ingum sem hafa hvert sitt sérsvið. Hópurinn vinnur fyrir bandarísk yfirvöld og leysir óvenju flóknar ógnanir sem er ekki á færi annarra sérfræðinga að takast á við. 21:00 Law & Order (10:23) 21:45 Allegiance 7,3 (8:13) Bandarískur spennu- þáttur frá höfundi og framleiðanda The Adju- stment Bureau. Alex O'Connor er ungur nýliði í bandarísku leyniþjón- ustunni, CIA, og hans fyrsta stóra verkefni er að rannsaka rússneska njósnara sem hafa farið huldu höfði í Bandaríkj- unum um langt skeið. Það sem Alex veit ekki er að það er hans eigin fjölskylda sem hann er að eltast við. 22:30 The Walking Dead (14:16) Þættir sem hafa slegið öll fyrri áhorfsmet áskriftarstöðva í Banda- ríkjunum. Rick Grimes og félagar þurfa að glíma við uppvakninga utan- frá og svikara innanfrá í þessum hrollvekjandi þáttum sem eru alls ekki fyrir viðkvæma. 23:20 Hawaii Five-0 7,5 (18:25) Steve McGarrett og félagar handsama hættulega glæpamenn í skugga eldfjallanna á Hawaii í þessum vinsælu þáttum. 00:05 CSI: Cyber (3:13) 00:50 Law & Order (10:23) 01:35 Allegiance (8:13) Bandarískur spennu- þáttur frá höfundi og framleiðanda The Adju- stment Bureau. Alex O'Connor er ungur nýliði í bandarísku leyniþjón- ustunni, CIA, og hans fyrsta stóra verkefni er að rannsaka rússneska njósnara sem hafa farið huldu höfði í Bandaríkj- unum um langt skeið. Það sem Alex veit ekki er að það er hans eigin fjölskylda sem hann er að eltast við. 02:20 The Walking Dead 03:10 The Tonight Show 04:00 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Stumparnir 07:25 Doddi litli og Eyrna- stór 07:35 Skoppa og Skrítla enn út um hvippinn og hvappinn 07:40 Elías 07:50 Zigby 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Latibær 08:30 Víkingurinn Vic 08:40 Tommi og Jenni 09:05 Villingarnir 09:30 Kalli kanína og félagar 09:40 Scooby-Doo! Leyni- félagið 10:05 Grallararnir 10:25 Ninja-skjaldbökurnar 11:10 Young Justice 11:35 iCarly (20:45) 12:00 Nágrannar 13:25 Helgi Björnsson í Hörpu 15:05 How I Met Your Mother (23:24) 15:30 Fókus (8:12) 16:00 Margra barna mæður (6:7) Vandaður íslenskur þáttur þar sem sjón- varpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hittir konur sem eignast hafa fleiri börn en gengur og gerist í dag, fylgist með heimilislífinu og forvitn- ast um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á stórum heimilum. 16:25 Matargleði Evu (4:12) Fróðleg og freistandi þáttaröð þar sem Eva Laufey Hermannsdóttir leggur ríka áherslu að elda góðan og fjöl- breyttan mat frá grunni. Í hverjum þætti verður sérstakt þema tekið fyrir og verður farið um víðan völl í matargerðinni. 16:55 60 mínútur (27:53) 17:40 Eyjan (29:35) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (85:100) 19:10 Ísland Got Talent (11:11) Það er komið að stóru stundinni í vinsælasta skemmtiþætti Íslands. Í þessum lokaþætti kemur í ljós hvaða atriði ber sigur af hólmi en hæfileikaríkir keppendur eru tilbúnir að sýna hvað í þeim býr til þess að reyna vinna 10 milljónir króna. 21:05 Rizzoli & Isles (18:18) 21:50 Mad Men (8:14) 22:35 Better Call Saul 9,2 (4:10) Glæný og fersk þáttaröð um Saul Good- man sem er best þekktur sem lögfræðingur Wal- ter White í þáttaröðinni Breaking Bad. Í þessum þáttum fáum við að kynnast betur Saul, uppvexti hans og hvaða aðstæður urðu til þess að hann endaði sem verjandi glæpamanna eins og Walters. 23:25 60 mínútur (28:53) 00:10 Eyjan (29:35) 01:00 Game Of Thrones 01:55 Transparent (9:10) 02:20 Backstrom (4:13) 03:05 Moulin Rouge 05:10 James Dean Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Helgarpistill MYNDIN TENGIST PISTLINUM EKKI BEINT.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.