Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 46
42 Lífsstíll Helgarblað 10.–13. apríl 2015 TanTra og Takmarkalaus ásT n Miklu meira en kynlíf n Nautnin kemst á annað stig n Karlar geta líka fengið raðfullnægingu n Ást án eigingirni og takmarkana n Halda námskeið í Reykjavík L júfur ilmurinn af Nag Champa-reykelsinu tekur á móti mér í Natha Yoga Cent- er í Bolholtinu þar sem ég á stefnumót við jógakennar- ana Magdalenu og Serafim. Litríkir púðar á gólfi og stólum og fallegar veggmyndir af gróðri og orkustöðv- um. Magdalena er rauðklædd og af henni stafar mjúkri hlýju, hún tekur vel á móti mér og kallar á Serafim. Hann er hávaxinn og síðhærður í bómullarbol og talar með dönskum hreim. Hann bjó lengi í Danmörku og þar kynntist hann Magdalenu í jógastöð fyrir 20 árum. „Samband okkar hefur alla tíð hvílt á tantrískri hugmyndafræði,“ segir hann, „ég hafði áhuga á kyn- lífi í sambandi við andlegan þroska og ákvað að mæta á tantranám- skeið hjá manni á Købmagergade í Kaupmannahöfn. Hann hafði mikil áhrif á mig því hann talaði um eitt- hvað sem hann hafði reynt en ekki eitthvað sem hann hafði bara lesið. Það er mikill munur á.“ Þau byrjuðu fljótlega að kenna saman og fyrsta námskeiðið sem þau kenndu fjall- aði um „sacred sexuality“. Tantra er meira en kynlíf En snýst þetta allt um kynlíf og rað- fullnægingu? „Kynlífsstimpillinn er ansi lífseigur því kynlíf er það sem almenningur tengir hugtakið við. Kynlíf er hluti af tantra, en ef við mælum þetta í prósentum snúast í mesta lagi sjö prósent af því sem við kennum og stundum um kyn- líf. Tantra inniheldur allar hliðar af því að vera manneskja. Ef við skoð- um lífið út frá orkuflæði er kynlíf mjög mikilvægur hluti þess. Tantra er ekki feimið við að höndla kynlíf sem hluta af því að vera manneskja. Það er kannski helsti munurinn á tantrískum jógafræðum og annarri nálgun í jóga.“ Serafim heldur áfram: „Tantra er lífsviðhorf, eða leið til að lifa líf- inu. Það á rætur í fornum Veda- ritum. Alheimurinn er afleiðing alheimsmeðvitundar sem við erum öll hluti af – á nútímamáli mundi þessi meðvitund vera kölluð mikli- hvellur, sem við þekkjum sem upp- runa alls. Það var ekkert áður, en svo varð allt til. Þetta þýðir að við eigum öll sama uppruna. Eina ágreiningsefni nútímasjónarhorns- ins og jógafræða er að nútíminn gerir ráð fyrir að orkan í heiminum sé blind eða heimsk, það er engin greind í orkunni sem þú notar. Jóga- fræðin vilja benda á að orkan fann möguleika til að búa til líf og gera lífið meðvitað um sig sjálft.“ Leiðir til að lýsa kanínu En eru fræðin í andstöðu við til að mynda nútíma læknisfræði? „Það eru stöðugt að koma fram uppgöt- vanir innan læknisfræði og lífeðlis- fræði sem jógafræðin hefur inni- haldið í árþúsund. Þetta eru miklu minni andstæður en margir halda. Rauði þráðurinn er sá sami og það er hægt að finna fjölda staðfestinga „Ef við skoðum líf- ið út frá orkuflæði er kynlíf mjög mikilvæg- ur hluti þess. Tantra er ekki feimið við að höndla kynlíf sem hluta af því að vera manneskja. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Magdalena og Serafim Kynntust fyrir 20 árum í tantraskóla í Danmörku. Mynd SigTRygguR aRi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.