Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 54
50 Menning Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík • S: 511-7000 • Opið virka daga kl. 10–18
Innrammarinn.is
PANTAÐU Á NETINU
Project1_Layout 1 24/11/2011 12:58 Page 1
Kenro
myndaalbúm
og tilbúnir
rammar
Þekkt bók
um meðvirkni
Pia Mellody er höfundur bók-
arinnar Meðvirkni - Orsakir -
Einkenni. Hún er einn helsti
brautryðjandinn í skilgrein-
ingu á meðvirkni og hefur gefið
út ýmsar bækur og kennsluefni
um greiningu, orsakir og með-
höndlun vandans. Meðvirkni er
þekktasta verk hennar.
Málörvun og
hljóðanám
Lubbi finnur málbein – íslensku
málhljóðin sýnd og sungin – er
bók sem hugsuð er til mál örvunar
og hljóðanáms fyrir börn á aldr-
inum tveggja til sjö ára. Höfund-
ar hennar eru Þóra Másdóttir og
Eyrún Ísfold Gísladóttir. Vísur
eru eftir Þórarin Eldjárn, Freydís
Kristjánsdóttir myndskreytti og
börn úr Skólakór Kársness syngja
á diski sem fylgir bókinni.
Stolnar myndir frá Ingu
Maríu seldar á netinu
Inga María Brynjarsdóttir hitti meintan myndþjóf fyrir tilviljun á Þingvöllum
Þ
etta er alveg hrikalegt,“ segir
Inga María Brynjarsdóttir
myndlistarkona en prent
af verkum sem hún sýndi á
sinni fyrstu einkasýningu
árið 2008 eru til sölu á vefsíðu sviss-
nesku listakonunnar Caroline Vitelli.
Þar segir að enn séu til nokkur eintök
af upprunalegu verkunum í stærðinni
70x100 sentimetrar. Inga María sá
myndirnar fyrir tilviljun eftir að hafa
kynnst Vitelli á Þingvöllum.
Hefur fengið góða umfjöllun
„Ég kynntist þessari manneskju núna
um daginn, hitti hana í gegnum vin-
konu mína og við vörðum saman
helgi á Þingvöllum. Þetta er rosafín
stelpa og við náðum vel saman. Síð-
an kem ég heim og fer að skoða verk
á heimasíðunni hennar og rekst þá á
verk eftir mig sjálfa.“
Verkin sem um ræðir eru teikn-
ingar af afmynduðum dýrum sem
Inga María vann árið 2007 og sýndi
árið eftir á fyrstu einkasýningu sinni.
„Ég hef oft verið beðin um að gera
prent eftir þessum myndum, en af
virðingu við þá sem eiga myndirn-
ar og keyptu þær af mér á sínum
tíma ákvað ég að gera það ekki,“ seg-
ir Inga. Á einhverjum tímapunkti
setti Inga myndir af verkunum inn
á Flickr-myndasíðu sína á netinu en
tók út stuttu síðar.
Hún telur að Vitelli hafi tekið
myndirnar þaðan og notað í kjölfar-
ið. „Hún hefur teiknað eftir myndun-
um með kolum og sýnt þær á sýn-
ingu í Sviss og í kjölfarið fór hún að
selja prent af verkunum. Hún hefur
svo fengið góða umfjöllun um þessi
verk,“ segir Inga María.
„Ég hafði samband við hana. Hún
bara neitar þessu og segir að þetta
séu sínar myndir. Ef hún hefði viður-
kennt þetta og sagst hafa gert mistök
og beðist afsökunar, þá hefði þetta
verið allt í lagi,“ segir Inga.
Býst ekki við borgun
„Ég talaði við Myndstef og þau ætla
að taka þetta mál að sér. Þau senda
henni póst og gefa henni viku eða
tveggja vikna frest til að útskýra mál-
ið eða svara fyrir sig. Ef hún svarar
ekki er bara gert ráð fyrir að ég hafi
rétt fyrir mér, þá hafa þau samband
við Myndstef í Sviss. Í kjölfarið verð-
ur henni svo sendur reikningur sam-
kvæmt verðskrá. En ég er er ekkert að
búast við að hún borgi og ég er ekkert
að sækjast eftir því, en aðalatriðið er
að nafnið mitt sé á þessum myndum
en ekki nafn einhvers annars. Það er
engin harka í þessu,“ segir Inga.
En er ekki mögulegt að hér sé um
tilviljun að ræða, að þær hafi teiknað
nákvæmlega eins myndir? „Það væri
náttúrlega stórkostlegt,“ segir Inga
María og hlær. „En maður er nátt-
úrlega með sinn einstaka stíl. Þetta
eru ekki hefðbundnar dýralífsteikn-
ingar þótt þær séu unnar út frá dýr-
um. Ég efast meira að segja um að
hún viti hvaða dýr þetta eru, því ég er
búin að afskræma þau,“ segir Inga. En
dauð dýr eiga ennþá hug hennar því
nú stendur yfir sýningin Hugleiðingar
/ Observation í Kubbnum í Listahá-
skóla Íslands, þar sem hún vinnur
meðal annars með uppstoppuð dýr.
Ekki tókst að ná í Caroline Vitelli
við vinnslu fréttarinnar. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Snýst ekki um
peninga Inga
María Brynjarsdóttir
myndlistarkona
segist ekki vera
að sækjast eftir
peningum frá sviss-
nesku stöllu sinni.
Mynd SIGtryGGur ArI
Afskræmt dýralíf Myndirnar voru fyrst sýndar á einkasýningu Ingu Maríu í 12 tónum.
D
agskrá Listahátíðar í Reykja-
vík, sem haldin verður í 29.
skipti 13. maí til 7. júní, var
kynnt á blaðamannafundi í
Gimli í vikunni. Um fjögur hundruð
listamenn koma fram eða eiga verk
á hátíðinni í ár og verða viðburðir
haldnir á yfir 30 söfnum, sýningar-
stöðum, leikhúsum og tónlistar-
stöðum auk fjölmargra einkaheim-
ila og garða, húsveggja og minni
sýningarrýma.
Hanna Styrmisdóttir, listrænn
stjórnandi hátíðarinnar, greindi frá
því að opnunarverk hátíðarinnar
mun fara fram á framhlið hússins
við Austurstræti 6. Það er verk
eftir bandaríska dansflokk-
inn Bandaloop undir
stjórn Ameliu Rudolph,
en hópurinn hefur sér-
hæft sig í lóðréttum
dansi og hefur kom-
ið fram á klettabjörgum
jafnt sem skýjakljúfum
víðs vegar um heim.
Þann 13. maí verður þar að
auki afhjúpað listaverk sem fem-
iníski aðgerðalistahópurinn Guer-
illa Girls vann sérstaklega fyrir
hátíðina. „Þegar undirbúningur
Listahátíðar í vor hófst vildum við
strax finna leið til að tengja hana við
aldarafmæli kosningarétt-
ar kvenna á árinu,“ segir
Hanna. Þá segir hún að
hátíðin hafi hingað til
ekki gert höfundarverk-
um kvenna viðunandi
skil og úr þessu verði
reynt að bæta í ár og á
næsta ári, því til þess dugi
ein hátíð ekki. „Þess vegna ber
hátíðin í vor yfirskriftina „fyrri hluti“
og ég get upplýst nú að 30. Listahá-
tíð í Reykjavík árið 2016 mun bera
yfirskriftina „síðari hluti“,“ segir
Hanna. n
kristjan@dv.is
Skæruliðastelpur og
kvennaþema á Listahátíð
Áherslur Listahátíðar í Reykjavík 2015 voru kynntar í vikunni
Konur í aðalhluverkum Hanna Styrm-
isdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar
í Reykjavík, kynnti kvenlegar áherslur
hátíðarinnar í ár. Mynd SIGtryGGur ArI