Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 28
28 Umræða Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Þ að mun einhvern tím­ ann verða fræðimönnum mikil ráðgáta hversu mikl­ um tilfinningasveiflum og ástríðuhita umræða um Reykjavíkurflugvöll er á okkar dög­ um. Stundum hvarflar að manni að ekkert standi hjarta sumra nær en þessir malbiksspottar í Vatns­ mýrinni; sumir „flugvallarvinir“ verða hreinlega æfir ef til dæmis á það er minnst að færa völlinn út í uppfyllingar í Skerjafirði, og ný­ verið lagði allur þingflokkur Fram­ sóknar, Reykjavíkurþingmenn þar á meðal!, það til að borgaryfirvöld yrðu svipt skipulagsvaldi á þessum stað í hjarta bæjarins, til þess að öruggt væri að aldrei yrði hægt að hrófla við neinu þar. Af því tilefni setti ég inn kæruleysislega færslu á fjasbók sem gerði allt vitlaust, kall­ aði þetta Framsóknarlið óvirðu­ legu nafni, og enn eru menn að senda mér tóninn vegna þess, sem er svona álíka eins og ef Reykvík­ ingar væru ennþá grenjandi hálfu ári síðar yfir því að einhver hefði leyft sér að nota orð eins og höfuð­ borgarskríll. Einu almennilegu rökin fyrir því að hafa flugvöllinn nákvæm­ lega þar sem hann er núna eru þau sem heyrast frá fólki sem sjálft eða þeirra nánustu hefur verið unnt að bjarga í nauðum beinlínis vegna nálægðar hans við Landspítalann. Þess vegna er það enn meiri þver­ stæða í þessum málum öllum að það verður æ fleirum ljóst að það er trúlega alls ekki góð hugmynd að byggja upp framtíðarhúsnæði fyrir þjóðarsjúkrahúsið þarna við flugbrautarendann – nú nýverið kom meðal annars í ljós að þorri læknastéttarinnar telur það hreint glapræði. Gömul sjúkrahús og ný Vinur minn einn, læknir sem ára­ tugum saman starfaði erlendis, benti mér nýverið á að mjög víða í vestrænum borgum séu gamlir spítalar miðsvæðis, byggðir á fyrri hluta 20. aldar, í virðulegum hús­ um sem margoft sé búið að byggja við síðan. En að húsnæðið sé orðið úrelt og standi nútímaspítalastarf­ semi fyrir þrifum. Með öðrum orð­ um: þetta er nákvæmlega eins og hjá okkur hér, gæti verið lýsing á landspítalalóðinni okkar. Hann sagði mér einnig að víðast hvar í vestrænum borgum sé búið að byggja nýja spítala, eða að þannig framkvæmdir séu í gangi. En alls staðar hafi verið farin sú leið að fara í útjaðra borganna þar sem er nóg pláss fyrir nýjar byggingar og allt sem þeim tilheyrir, og hægt að komast að þeim úr sem flestum átt­ um. Og nóg pláss fyrir hugsanlegar stækkanir. Hann bendir á að trú­ lega muni mannfjöldi hér aukast töluvert á næstu hálfri öld eða svo, kannski um helming, og að það þýði að stækka þurfi spítalann sem því nemur. Og þó að hægt sé nú að troða nýjum byggingum, sem duga okkur í bili, á Hringbrautarsvæð­ ið við flugbrautarendann þá verði mjög erfitt eða útilokað að stækka þar. Þess vegna sé skynsamlegra að fara út úr þéttbýlinu, og helga þar spítalastarfi nóg pláss. Hvað á að gera við öll þessi hús Ég benti þá á þau rök að sumar af núverandi byggingum á landspít­ alalóðinni séu nokkuð nýlegar og að það myndi auðvitað spara tals­ vert að nota þær áfram, eins og fram hefur komið í máli manna. En hann sagði að auðvitað væri ekk­ ert vit í öðru en að nota þessi miklu og fínu hús áfram, enda hefði það alls staðar verið gert þar sem þessi þróun hefur átt sér stað: Þar hefur gömlu spítalabyggingunum verið breytt í íbúðarhúsnæði. Og orðið mjög eftirsótt sem slík: Þetta er miðsvæðis, þar sem flestir vilja búa; þarna mætti gera mjög fjöl­ breyttar íbúðir, með lúxus fyrir þá sem slíkt vilja, eða ódýrar vistarver­ ur, fyrir ungt fólk, stúdenta og svo framvegis. Tengsl við himnana En við vorum að tala um Reykja­ víkurflugvöll. Sjálfur hef ég búið í nágrenni við hann mestalla ævina, og römm er sú taug – hann er partur af mínum föðurtúnum, tengdur frábærum minningum um að fá að fljúga vestur á Ísafjörð til ömmu og afa og frændanna og frænknanna þar, og að auki hef ég alltaf séð í honum þann höfuðkost að hann sér okkur fyrir tengingu við himn­ ana og fjarlæga staði – að sjá flugvél lenda og eða taka á loft minnir stöð­ ugt á að það eru til aðrir staðir þar sem fólk býr og hrærist, við erum ekki ein; sumir hafa sagt að það sé yfirleitt meiri sköpun í hafnarborg­ um vegna þessa sama lífræna sam­ bands við fjarlægðirnar, að vita og sjá skipin koma og fara, og alveg óháð því þótt þeir sem hugsi fleiri skapandi hugsanir séu kannski ekkert að koma eða fara sjálfir með sömu skipum – nóg er að finna fyr­ ir tengingunni við fjarlægðirnar. En – það er líka alveg ljóst, og undir það taka allir arkitektar og borgar­ hönnuðir heimsins – að Reykjavík myndi losna úr skipulagslegri úlfa­ kreppu ef hægt væri að nota, a.m.k. megnið, af því svæði í hjarta borg­ arlandsins sem nú fer undir þessi malbikuðu plön. Þórarinn Eldjárn segir á einum stað í sínum góðu bókum að Reykjavík sé varla borg heldur meira eins og rönd, rofin stöku sinnum af freðmýrum. Og Flugvallarsorgir og spítaladrama Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja „Mér skilst að við verjum tugum milljarða á fjárlögum hvers árs í samgöngur. Af hverju má ekki nota hluta af því, kannski þrjú-fjög- ur ár í röð, til þess að færa flugbrautirnar til dæmis út í Skerjafjörð? Reykjavíkurflugvöllur Stundum hvarflar að manni að ekkert standi hjarta sumra nær en þessir malbiksspottar í Vatnsmýrinni. Mynd SiGTRyGGuR ARi „Vonandi heldur fylgi Pírata áfram að aukast. :)“ segir Áslaug Benediktsdóttir, en Píratar voru mikið til umfjöllunar á dögunum bæði vegna fylgis- aukningar þeirra og vegna þátttöku þeirra í kosningum á þinginu. Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata segir Pírata ekki greiða atkvæði með málum sem þeir ná ekki að kynna sér og fyrir vikið greiði þeir sjaldnar atkvæði en aðrir. „Ríkisstjórnin eins og hún leggur sig á að skammast sín, ekki hægt að hækka laun þeirra sem minnst hafa í 300.000 á 3 árum! Fólk … standið upp „verkfall“ og aftur verkfall þar til við fáum hækkun á smánarlaunin okkar,“ segir Guðrún Björnsdóttir, en DV greindi frá því að laun forsætis- ráðherra hefðu hækkað um 340 þúsund krónur frá hruni. „Og á sama tíma birtast greinar eftir te- pokasjalla í Mogg- anum þar sem verkfalls- rétturinn er útmálaður sem óþarfur og tímaskekkja. Við eigum einfaldlega að treysta á brauðmolahagkerfið og halda kjafti. Klassískt hægri- manna kjaftæði,“ segir Maron Bergmann Jónasson en DV bar saman kjör í Noregi og á Íslandi. Þau norsku reyndust heldur hagstæðari. 16 5 3 8.–9. apríl 2015 25. tbl. 105. árgangur leiðb. verð 445 kr. vikublað Minna eftirlit Með sMærri félöguM Banka- Bónusar hækki fjórfalt Best klædd í stjórnmálum Launasamanburður minni vinna hærri laun n tímakaup 2.584 kr. n 6 vinnudagar að baki húsaleigu noregur meiri vinna lægri laun n tímakaup 1.280 kr. n 14 vinnudagar að baki húsaleigu ísland n jakkafötin út – framandi fatastíll skorar hæst Hvaða skólar skara fram úr? n ísaksskóli bestur í reykjavík n lakasti árangurinn í Breiðholti n Fjármálafyrirtækin vilja geta greitt árslaun í bónus látlaus athöfn um borð í Húna 38 n Forstjóri Fme: „kerfislega mikilvæg fyrirtæki“ hafa forgangn Yfirdráttarlán felldu sparisjóð Vestmannaeyja – ofmetin um hálfan milljarð 8–9 16 10–11 Vantar klósett á veturna n „Ferðamannasprengjan“ tekur á sig ýmsar myndir 12 Frystiklefinn á rifi hlaut eyrarrósina 30 2–3 Amerískir dagar alla daga Opið frá 10.00 - 20.00 Dalvegur 10-14 | 201 Kópavogur | S: 560 2500 kostur@kostur.is | www.kostur.is ATN Zebra 16 Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin • Diesel • Vinnuhæð: 16,4m • Pallhæð: 14,4m • Lágrétt útskot: 9,3m • Lyftigeta: 230kg • Aukabúnaður: Rafmagns- og lofttenglar í körfu. • Til afgreiðslu strax Ýmsar aðrar ATN spjót- og skæralyftur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.