Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Blaðsíða 42
38 Skrýtið Sakamál Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Nauðgaði tveimur
stúlkum og myrti
n John Albert fékk dóm fyrir kynferðislegt ofbeldi n Rauf skilorð ítrekað en naut samt frelsis
B
andaríkjamaðurinn John
Albert Gardner hinn þriðji,
hvorki meira né minna, var
árið 2010 dæmdur til lífs-
tíðarvistar á bak við lás og
slá án möguleika á reynslulausn.
Að auki fékk hann 25 ára til lífs-
tíðardóm og 24 ára fangelsisdóm.
Má leiða líkur að því að bandarísk-
um yfirvöldum hafi lítt hugnast að
John Albert fengi um frjálst höfuð
strokið þaðan í frá.
Af forsögu Johns Alberts má
ráða að hann hafi ekki verið densi-
legur drengur því árið 2000 hafði
hann verið sakfelldur fyrir að mis-
nota nágranna sinn, 13 ára stúlku.
Hann afplánaði fimm ár í fang-
elsi og losnaði undan skilorði árið
2008. Einhverju síðar reyndi hann
að nauðga 13 ára stúlku, Candice
Moncayo frá San Diego-sýslu.
Sjö skilorðsbrot
Sem fyrr segir lauk John Albert af-
plánun árið 2008. Það gerði hann
þrátt fyrir að hafa brotið gegn
ákvæðum skilorðs sjö sinnum;
hann hafði búið of nærri skóla árið
2007 og einnig hafði GPS-sendir
sem hann bar sýnt að hann hafði
hangið í grennd við skóla og barna-
heimili og aðhafst ýmislegt annað
sem gekk í bága við ákvæði skilorðs
hans.
Hvað sem þessu líður játaði
John Albert að hafa nauðgað og
myrt Amber Dubois, 14 ára stúlku
frá Escondido í Kaliforníu, 13.
febrúar 2009, og Chelsea King, 17
ára stúlku frá Poway í Kaliforníu,
25. febrúar 2010. Chelsea hafði
John Albert myrt skammt frá heim-
ili móður hans í Rancho Bernardo.
Lífsýni úr John Albert
Amber Dubois hvarf í febrúar 2009
og fundust líkamsleifar hennar
ekki fyrr en um ári síðar, í Pala,
verndarsvæði indíána í Kaliforníu.
John Albert var handtekinn 28.
febrúar 2010 í Del Dios-hverfinu í
Escondido. Þá lá fyrir að DNA-sýni
úr honum tengdi hann við fatnað
sem fannst á víðavangi og hafði til-
heyrt Chelsea King sem hafði horf-
ið nokkrum dögum fyrr. Chelsea,
nemandi úr Poway High School,
hafði verið úti að skokka í grennd
við Hodges-vatn 25. febrúar og ekki
sést síðan.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
John Albert var einnig viðriðinn
hvarf Amber og líkamsleifar henn-
ar fundust skömmu síðar. Um svip-
að leyti fannst lík Chelsea í grunnri
gröf við vík í Hodges-vatni skammt
frá þeim stað þar sem föt hennar
fundust.
Lýsing kom lögreglu á sporið
Það sem upphaflega kom lögreglu
á spor Johns Alberts var vitnisburð-
ur konu nokkurrar sem lenti í klóm
hans í desember 2009. Konan hafði
verið úti að skokka í mestu makind-
um þegar John réðst á hana. Kon-
an veitti mótspyrnu, slapp með
skrekkinn og gaf lögreglu lýsingu á
óberminu.
Þetta leiddi til þess að lögreglan
í Escondido og San Diego ók um í
leit að manni sem svipaði til lýs-
ingar konunnar og höfðu laganna
verðir erindi sem erfiði, sem fyrr
segir, 28. febrúar 2010 og handtóku
John Albert á bar í Del Dios.
Samdi og játaði
John Albert játaði, 16. apríl 2010,
sök hvað varðaði hvora tveggja
Amber og Chelsea – eftir að hafa
samið um að sleppa við dauðar-
efsingu. Hann hafði numið Amber
á brott, nauðgað henni og síðan
stungið til bana. Hann viðurkenndi
að hafa dregið Chelsea á afskekkt-
an stað, nauðgað henni og síðan
kyrkt og grafið.
John Albert Gardner lýsti sig
einnig sekan um að hafa reynt að
nauðga Candice Moncayo. Dómur
yfir honum var kveðinn upp 14.
maí 2010 og í ljósi þyngdar dóms-
ins má teljast ósennilegt að hann
njóti nokkurn tímann frelsis á ný –
en hvað veit maður. n
„ John Albert
viðurkenndi að
hafa dregið Chelsea á
afskekktan stað, nauðg-
að henni og síðan kyrkt
og grafið.
Sautján ára Chelsea King lenti í klóm Johns Alberts þegar hún var úti að skokka.
Fjórtán ára fórnarlamb Líkamsleifar
Amber Dubois fundust rúmu ári eftir að hún
hvarf.
Vafasamur pappír John Albert Gardner III lærði lítið í fimm ára fangelsisvist.
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjum á
heimilinu
með því að
hlaða snjall-
símann og
stærri raftæki
á einum og
sama staðnum
Tengill með USB
Sniðug lausn fyrir hvert heimili og fyrirtæki
Hafðu
samband
við okkur
eða næsta
löggilda
rafverktaka