Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 19
Helgarblað 10.–13. apríl 2015 Fréttir 19 „Þetta er stórt samfélag“ n Um 500 manns spila póker reglulega n Háar fjárhæðir undir og langar setur við spilaborðið n Leita á náðir smálánafyrirtækja Tekjurnar af þessu geta verið tals- verðar. Óli hefur það frá fyrstu hendi af einn af smærri stöðunum hafi tek- ið inn um 500 þúsund krónur yfir helgi. Spilað er alla daga og yfirleitt nokkuð þétt setið þannig að tekjurn- ar geta verið talsverðar. Um ólöglega starfsemi er að ræða en án sannana geta yfirvöld lítið gert. Upp og niður hjá Óla Sveiflurnar geta verið miklar hjá spilara sem stundar klúbbana jafn grimmt og Óli. „Ég hef mokað inn hundruðum þúsunda á einu kvöldi og stundum hefur allt gengið upp í talsverðan tíma. Svo koma niður- sveiflur og hvorki gengur né rekur. Ég hef nokkrum sinnum þurft að leita á náðir smálánafyrirtækja eft- ir slæmt tímabil, bara til að þrauka mánuðinn.“ Óli reiknar þó ekki með að hætta í bráð, að minnsta kosti ekki fyrr en hann er kominn í veru- legan plús. n Forsvarsmenn Póker & Play voru ákærðir 171 milljónar króna tekjur af meintri starfsemi Í byrjun árs var þingfest ákæra á hendur þremur forsvarsmönnum Póker & Play. Staðurinn sker sig úr að því leyti að ákæran snýst ekki eingöngu um að hafa haft atvinnu af póker heldur einnig öðrum fjár- hættuspilum eins og „blackjack“ og rúllettu. Heimildir DV herma að slík starfsemi þekkist ekki á öðrum pókerklúbbum. Þrír einstaklingar eru ákærðir í málinu og er þeim gefið að sök að hafa á rúmlega tveggja ára tímabili (frá júní 2010 til 11. desember 2012) tekið við, nýtt eða aflað sér ávinnings samtals að fjárhæð um 171 milljón króna. Umfang meintrar starfsemi var því gríðarlegt. Staðurinn var þá til húsa í Skeifunni 19 en síðan þá hefur hann verið á vergangi samkvæmt heimildum DV. Eftir stuttan tíma á Suðurlands- braut hefur staðurinn nú fundið sér samastað í Faxafeni 12. Næsta fyrirtaka í ofangreindu máli er 15. apríl næstkomandi. Gullöldin Hverafold 5 Segir íbúðir Valsmanna auka á umferðarvanda Svæðið verður „eins og lítil varta í Vatnsmýrinni“ Ó lafur Kr. Guðmundsson, varaformaður Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda og varamaður í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur- borgar, segir að framkvæmd- ir Valsmanna hf. við Hlíðarenda muni auka á umferðarvanda borgarinnar. Til stendur að byggja yfir 800 íbúðir á svæðinu. Ólafur segir að engin áform séu uppi um að breyta umferðarkerfinu vegna þessa. „Þetta verður eins og lítil varta þarna í Vatnsmýrinni. Bú- staðavegurinn er stíflaður á morgnana og síðdegis nú þegar. Það sama er að segja um Miklu- brautina. Þetta verður algjör við- bót við háskólann og annað sem þarna er og eykur á vandann,“ segir hann. Ólafur telur að alvöru um- ferðarmódel sem gæfi til kynna betra umferðarflæði vanti í gatna- kerfi höfuðborgarsvæðisins. Það myndi koma í veg fyrir umferð- arteppu og tilheyrandi mengun. „Alls staðar erlendis nota menn flæðimódel til að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þessi eða hin framkvæmdin mun hafa. Til dæmis ef nýr Landspítali verður þarna, hvað mun gerast á Hring- brautinni? Og ef Valssvæðið kem- ur þarna inn, hvað mun gerast á Bústaðavegi og Miklubraut? Ef flugvöllurinn fer þá kemur heil- mikil byggð þar. Hvað gerist þá á Miklubrautinni? Það veit enginn,“ segir Ólafur. Ósammála Brynjar Harðarson, formaður Valsmanna hf., er ósammála Ólafi og segir að áhrif nýju íbúðanna á umferðina hafi verið skoðuð bæði í víðu og þröngu samhengi. „Meginstefnan er sú að þeim mun fleiri íbúðir og annað slíkt sem þú flytur miðsvæðis þá minnkarðu umferðina,“ segir Brynjar. „Mað- ur sem býr uppi í Mosfellsbæ eða úti á Völlum og keyrir í Háskól- ann í Reykjavík keyrir 24 til 30 kílómetra á dag. En maður sem býr þarna og fer til að mynda í há- skólann eða á sjúkrahúsin, hann annaðhvort keyrir ekki neitt eða kannski tvo til fjóra kílómetra,“ segir hann. Kunna ekki að reka borg Ólafur telur að sennilega kunni Íslendingar ekki að reka borg með tilliti til umferðarinnar. Undan- farin tuttugu ár hafi það sama verið að gerast á höfuðborgar- svæðinu og annars staðar erlend- is. „Í Kaupmannahöfn er saman- safn af litlum bæjum og það sama á við um London. Svo allt í einu smellur þetta saman í eina heild. Hafnarfjörður var heimur út af fyrir sig fyrir nokkrum árum og Mosfellsbær líka en núna er þetta orðin ein heild umferðarlega séð. Það hefur ekki verið gert sam- eiginlegt umferðarmódel af öllu svæðinu í heild sinni,“ segir hann. „Við höfum talað um ofanbyggða- veg en hann hefur aldrei kom- ist á koppinn. Reykjanesbrautin endar fyrir sunnan Hafnarfjörð og enginn veit hvernig hún á að liggja inn í Reykjavík. Það er búið að byggja alls staðar þvert fyrir hana. Garðabær og Hafnarfjörður hafa hindrað að Reykjanesbraut- in leiði inn í Reykjavík.“ n Freyr Bjarnason freyr@dv.is „Alls staðar er- lendis nota menn flæðimódel til að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þessi eða hin fram- kvæmdin mun hafa. Ólafur Kr. Guðmundsson Segir að alvöru umferðarmódel vanti á höfuðborgarsvæðinu. Mynd SiGtryGGUr Ari Hæ sæti hvað færð þú að borða? Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.