Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 24
Helgarblað 10.–13. apríl 201524 Umræða Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Týndur í Tólf ár n Eitt dularfyllsta mannshvarf síðari áratuga n „Ósérhlífinn og hvers manns hugljúfi“ A llnokkur dæmi eru um að fólk hverfi sporlaust og lík þess finnist aldrei. Mál af þessu tagi eru sjaldnast rannsökuð sem sakamál og oftast talið að fólk hafi látist af slys­ förum eða hafi svipt sig lífi. Því fylgir einhver dularfullur óhugnaður þegar fólk sem lifir og hrærist meðal okkar hverfur allt í einu og aldrei spyrst til þess framar. Ósjaldan lifa ættingjar og aðrir ástvinir í von um að einn góð­ an veðurdag komi hinn týndi fram. Þær þrár rætast næstum aldrei. Eitt mannshvarf hérlendis sker sig þó úr hvað þetta varðar. Segir hér af því. Læknissonurinn frá Hvolsvelli Halldór Heimir Ísleifsson, læknis­ sonur frá Hvolsvelli, var í hagfræði­ námi í Bandaríkjunum um miðbik níunda áratugar síðustu aldar. Árið 1987 kom hann heim og vann hér í einn vetur. Árið eftir hélt hann aftur út og ákvað að halda áfram námi í North Texas University. Hann var þá 25 ára gamall. Hann tjáði fjölskyldu sinni að hann ætti gamlan og góðan bíl vestan hafs og hygðist aka um Banda­ ríkin áður en hann byrjaði í skólan­ um. Fjölskyldan hafði af því áhyggjur að hann væri einn á ferð í ókunnugu landi, en hann kvaðst þekkja vel til vestanhafs og engin ástæða til að ör­ vænta. Skömmu eftir að hann kom út hafði hann samband við fjölskyldu sína. Halldór hverfur Hinn 14. mars 1988 hringdi Hall­ dór frá Kaliforníu til skólafélaga síns í Texas og bað hann um að senda sér peninga fyrir flugfarseðli svo hann gæti flogið til baka til Texas. Bíl Hall­ dórs hafði þá verið stolið og öll skil­ ríki hans voru horfin. Skólafélagi hans símsendi peningana en þegar hann birtist ekki hófu menn að hafa hafa af honum áhyggjur. DV ræddi í lok maí 1988 við Höllu Linker, ræðismann Ís­ lands í Kaliforníu, en Halldór hafði þá verið týndur í hálfan þriðja mánuð. Hún sagði að afar vandasamt gæti ver­ ið að hafa upp á týndu fólki í Banda­ ríkjunum en lögreglan væri þó bjart­ sýn á að ekkert alvarlegt hefði komið fyrir hann. Bíll hans fannst í smábæ, þrjá kílómetra frá landamærum Mexíkó, og taldi lögreglan í San Diego að hann hefði jafnvel farið suður yfir landamærin. Upplýsingum um Hall­ dór var dreift víðsvegar um Banda­ ríkin og Kanada, en ekkert fannst sem varpað gat ljósi á hvarf hans. Kristín Ísleifsdóttir listakona, systir Halldórs, segir svo frá: „Á endanum drógu flestir í fjölskyldunni þá ályktun að hann væri látinn. Þetta var að sjálf­ sögðu erfiður tími. Við upplifðum þá sorg sem flestir upplifa sem misst hafa náinn ættingja.“ Einn ættingja hans sagði fjölskylduna hafa ríghaldið í vonina og bætti við: „Við vonuðum en það má segja að vonin hafi ein verið eftir og bænin. Óvissan var hræðileg.“ Kemur fram tólf árum síðar Liðu nú tólf ár. Í október árið 2000 hringdi Halldór Heimir í fjölskyldu sína. Mágur hans svaraði í símann og afráðið var að kalla fjölskylduna saman, sem hringdi til hans þremur klukkustundum síðar. Urðu miklir fagnaðarfundir meðal foreldra hans og fjögurra systkina. Hann var þá orðinn 38 ára gamall. Kristín, systir Halldórs, hélt til Bandaríkjanna skömmu eftir að bróð­ ir hennar kom fram. Hún þurfti að staðfesta að um réttan mann væri að ræða og útvega pappíra svo að hann kæmist heim til Íslands, en nafn hans hafði verið afmáð úr þjóðskrá á sín­ um tíma og farið með eignir hans og skuldir líkt og hann væri látinn, en samkvæmt skrám var hann sagður látinn hinn 14. mars 1988. Þá hafði hann á sínum tíma aðeins fengið leyfi til tímabundinnar dvalar vestan­ hafs sem námsmaður. Það var því að mörgu að hyggja. Kristín sagði frá því í Morgunblað­ inu að það hefði verið sérstök stund að hitta aftur bróður sinn tólf árum síðar, bróður sem hafði verið úrskurð­ aður látinn. Halldór kvaðst vilja koma heim og setjast hér að. Hann hafði fylgst vel með því sem gerst hafði á Ís­ landi á netinu hin seinni árin og sagði Kristín systir hans að hann væri betur að sér um margt sem væri að gerast hér heima en ættingjar hans. Flyst loks heim Halldór fluttist loks heim hinn 24. október 2000. Að sögn ættingja hafði hann búið í Texas í tólf ár og unnið þar fyrir sér. Hvort tveggja hann sjálfur og fjölskylda hans hafa alla tíð neitað að gefa upp ástæður þess að hann hvarf með þessum hætti og hvers vegna hann lét ekki vita af sér. Í huga fjöl­ skyldunnar var aðalatriðið að hann væri á lífi og heilbrigður. „Ættjörðin og fjölskyldan hafa á endanum togað hann heim eins og gjarnan gerist með þá sem hafa lengi dvalist erlendis,“ sagði Kristín systir hans. Heimkominn hóf Halldór störf sem byggingaverkamaður. Hann var vel liðinn af vinnufélögum, „harð­ duglegur, ósérhlífinn og hvers manns hugljúfi“, eins og sagði í fréttum DV á sínum tíma. Ágengir blaðamenn Eiríkur Jónsson, blaðamaður DV, var býsna ágengur í fréttaflutningi af mál­ inu og ræddi meðal annars við sam­ starfsmenn Halldórs og spurði þá hvort hann hefði sagt þeim nokk­ uð af dvöl sinni í tólf ár vestanhafs. „Við höfum verið að reyna að impra á þessu máli og spyrja hann út í dvöl­ ina ytra en hann þegir þunnu hljóði í kaffitímunum og vill ekkert segja okk­ ur. Þetta er skemmtilegur náungi og virðist vita sínu viti,“ sagði trésmiður nokkur sem starfaði með Halldóri. Að sögn Eiríks Jónssonar var Hall­ dór „grannur og spengilegur“, „dökk­ ur yfirlitum, útlitið suðrænt“. Hann sagði augun „athugul og stingandi“ og talandann öruggan og skýran. Hall­ dór neitaði þó að ræða ástæðu hinnar löngu dvalar ytra og sambandsleysis­ ins við fjölskylduna. Blaðamenn héldu áfram að krefja ættingjana svara um hvað vakað hefði fyrir Halldóri að láta ekkert af sér vita í tólf ár. Kristín, systir Halldórs, sagði að þeirri spurningu yrði aldrei svarað, en hún tók að sér að vera talsmaður fjöl­ skyldunnar. Tjáir sig ekki Halldór hóf fljótlega eftir heimkomu eigin rekstur fyrirtækis sem meðal annars sá um uppsetningu vinnubúða á virkjanasvæðinu við Kárahnjúka. Í samtali við DV árið 2003 sagði hann að sér hefði „gengið vel að aðlagast lífinu á Íslandi, það hefur tekið sinn tíma en ég ánægður í dag“. Aðspurð­ ur kvaðst hann sem fyrr ekki vilja tjá sig um þann tíma sem hann dvaldi í Bandaríkjunum. Það væri alfarið hans einkamál og fjölskyldu hans. Eðlilega spunnust margvíslegar sögur af afdrifum Halldórs Heimis í þau tólf ár sem hann var týndur. En þrátt fyrir að hann hafi ekki kosið að segja þjóðinni sögu sína er mikilvæg­ ast af öllu er að hann skyldi heimtur úr helju. „Ættjörðin og fjölskyldan“ toguðu hann heim til sín. n Mannshvarf Forsíðufrétt DV 30. maí 1988. Þung spor heim Viðtal við Halldór Heimi í DV eftir heimkomuna. Verslunin flytur allt að 80% afsláttur ReykjavíkuRvegi 66 - 220 HafnaRfjöRðuR Sími: 565 4100 - www.nyfoRm.iS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.