Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Side 36
Helgarblað 10.–13. apríl 201532 Fólk Viðtal Þegar maður er svona vitleysingur þarf maður einhvern sem maður getur hlegið með. Annars er ég frekar rólegur og lærði það af Fúsa að maður þarf ekki stöðugt að vera að toppa sig og koma á óvart. Ég er löngu kominn yfir það. Góð nær- vera og slíkt er mikilvægara.“ Hann viðurkennir að fjölskylda og vin- ir hafi gert nokkrar tilraunir til að koma honum út. „Ég hef verið sendur á blind stefnumót en hef alltaf mætt á slíkt með hálfum huga frekar en með því hugarfari að nú muni ég eignast konu og fjölskyldu.“ Saknar ekki þynnkunnar Gussi hefur einnig unnið sem dyravörður á skemmtistöðum en sú vinna hafði þau áhrif að hann ákvað að hætta nánast að drekka. „Ég hef aldrei átt við vandamál að stríða tengt áfengi þótt ég hafi tekið oft ansi vel á því á verbúð fyrir vest- an. Þar var drykkjan tengd menn- ingunni. Í dag fæ ég mér bjór, rauð- vín eða hvítvín með matnum en ég er hættur að detta í það eins og ég gerði. Sem dyravörður sá ég ýmis- legt sem fékk mig til að hugsa: Guð minn góður, er ég virkilega svona? Brenndir drykkir eru algjört eit- ur fyrir líkamann. Maður verður handónýtur daginn eftir fyllirí og ég get ekki sagt að ég sakni þynn- kunnar.“ Tekur sitt pláss Hann segist ekki vita hvort kvik- myndin Fúsi eigi eftir að opna dyr að frægð og frama innan kvik- myndabransans. „Það kemur bara í ljós þegar þar að kemur. Líf mitt hefur alltaf verið þannig að ég stekk af stað þegar á mig er kallað. Ég hef bara verið að gera þetta af tilfinn- ingu. Ég á enga drauma um sigra í Hollywood en ég gæti alveg séð mig fyrir mér fara út og leika í kvikmynd, rétt eins og að fara á sjóinn. En slíkt yrði alltaf bara verkefni. Ég held að ég þurfi alltaf fjöllin mín og sjóinn minn til að hafa fótfestu og jarð- tengingu. Svo nei, frægð og frami eru ekki markmið hjá mér en ég slægi ekki hendinni á móti tilboði. Svo myndi ég kannski fíla það í tætl- ur en eins og er kitlar ekkert að flytja út og byrja í hóreríinu. Að sama skapi hef ég ekki áhuga á að kom- ast inn í leikhúsin. Það væri gam- an að fá eitt og eitt verkefni en fast- ráðning myndi ekki henta mér. Ég vil ekki þurfa að gera eitthvað með hangandi hendi af því að hlutverk- ið hentar mér ekki. Hvað gerist næst kemur bara í ljós, allavega eru engin verkefni komin á dagskrá, sem bet- ur fer kannski því þá hef ég smá tíma fyrir sjálfan mig. Ég mun samt reyna að komast hjá því að fara aftur á bætur en ef það ger- ist hef ég allavega tækin til að vinna úr því. Allavega myndi ég ekki sitja heima í sjálfs vorkunn aftur heldur myndi ég kannski nýta tímann til að skrifa. Ég er með nokkrar hugmynd- ir í kollinum en hef ekki enn kom- ið mér í það að setjast niður og ein- beita mér að því að koma þeim niður á blað. Kvikmyndahandritið liggur þarna og skáldsagan líka, einhvers staðar þarna á bak við. Ég á bara erfitt með að einbeita mér og sér í lagi ef það varðar sjálfan mig. Ég er gjarn á að setja mig í síðasta sæti en í dag er ég að læra að halda með sjálfum mér og átta mig á að ég megi taka hrósi og taka mitt pláss.“ Sáttur við sig Gussi hefur alltaf verið næmur. „Ég held að við séum það öll. Það er bara spurning hversu mikið við hleypum því að okkur. Ég sé ekki drauga á hverjum degi en það kemur fyrir. Annars hefur þetta hvorki háð mér né hrætt mig nema kannski þegar ég var yngri en hefur aukist eftir því sem ég hef komist til vits og ára,“ seg- ir hann og játar því að vera trúaður. „Ég veit að það er til æðri orka en hvort hún heitir Guð eða eitthvað annað veit ég ekki. Það er einhver orka í gangi þótt ég kunni ekki að skýra hana. Maður finnur fyrir henni þegar maður vill það,“ segir hann og játar því að framliðnir séu á meðal okkar. „Ég held að það séu samt ekki til neinir vondir andar. Það er örugglega til fólk hinum megin sem er jafn týnt og það var hérna megin og hefur dáið frá óuppgerðum málum. Ég trúi ekki á hið illa heldur trúi ég að við séum öll góð inn við beinið. Það fólk sem er týnt hefur misst af leiðinni. Við erum bara misgóð í því að takast á við líf- ið. Sjálfur reyni ég að vera góður. Ég vakna ekkert endilega á morgnana og ákveð að í dag ætli ég að vera góður. Ég reyni frekar að bera mig þannig og held að það sé líka í eðli mínu. Með aukinni sjálfsvinnu hef ég líka tekið stórt stökk fram á við. Ég er í miklu betri tengslum við lífið og það hvern- ig þetta allt fúnkerar. Ég er miklu sátt- ari en ég var fyrir nokkrum árum, hef tekið sjálfan mig í sátt og fyrirgefið mér líka. Það er nokkuð sem sumum tekst aldrei.“ Veltir sér ekki upp úr fortíðinni En hvað hefur hann þurft að fyrir- gefa? „Að hafa ekki tekið af skarið fyrr. Það sáu þetta allir nema ég, hvert leiðin lá. Ég var ekkert að hlusta, hafði bara lokað á þetta. Samt er ég ekki að velta mér upp úr fortíðinni. „It's never too late to become what you're meant to be“ er setning sem ég heyrði einhvern tímann í kvik- mynd.“ Hann segist þó eiga eftir langt í land í sjálfsvinnunni. „Ég er rétt að byrja og er ennþá að læra hluti sem eiga eftir að nýtast mér út lífið. Það getur verið mjög erfitt að horf- ast í augu við sjálfan sig, það er það erfiðasta sem nokkur maður ger- ir. En umbunin er þvílík og miklu meiri en smá pína í stuttan tíma. Það er alveg sama hversu slæmar aðstæðurnar eru, ef einar dyr lok- ast opnast aðrar. Maður verður bara að vera tilbúinn. Það gerist ekkert nema maður vilji það. Ég er ekki að velta mér upp úr fortíðinni. Ég hef engan tíma til þess að álasa mér. Ég get horft til baka og lært af mistökunum en það er ekki inni í myndinni að leyfa mér að velta mér upp úr þeim. Það er engum hollt. Það er það sem núvitundin kenn- ir manni, að vera ekki að velta sér upp úr fortíðinni eða hafa áhyggj- ur af framtíðinni heldur vera bara á þeim stað sem maður er núna. Lífið er núna.“ n „Ég hef alltaf haft gaman af börnum en ég veit líka að ég er í engu formi til að verða pabbi Frægðin heillar ekki Gussi á sér enga drauma um frægð og frama í Hollywood en myndi þó ekki slá hendinni á móti einu slíku verkefni. Augnheilbrigði Hvarmabólga og þurr augu. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Fæst í öllum helstu apótekum. Thealoz dropar Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Blephagel gel Blephagel er dauðhreinsað gel án rotvarnarefna, ilmefna og alkóhóls. Gelið vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir augnlokin. Það er hvorki feitt né klístrað. Blephaclean blautklútar Blephaclean eru dauðhreinsaðir blautklútar án rotvarnar- og ilmefna sem vinna vel á hvarmabólgu. Hjálpa við hjöðnun á þrota í kringum augun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.