Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Page 40
36 Neytendur Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Tekjuviðmiðin
„Til skammar“
Mosfellsbær og Hafnarfjörður skera sig úr þegar kemur að leikskólagjöldum sem einstæðir foreldrar greiða
F
jögur af sex stærstu sveitarfé-
lögum á höfuðborgarsvæðinu
bjóða einstæðum foreldrum
upp á 30–40% afslátt af leik-
skólagjöldum. Ætíð er miðað
við sjálft dvalargjaldið en fullt verð er
greitt fyrir fæði. Sveitarfélögin sem
um ræðir eru Reykjavík, Kópavogur,
Garðabær og Seltjarnarnes. Í þess-
um sveitarfélögum dugar það eitt að
vera skráður sem einstæður í þjóð-
skrá og sækja um hjá leikskólanum
til þess að tryggja sér þennan veru-
lega afslátt af gjöldunum.
Aðeins Mosfellsbær og Hafnar-
fjörður með tekjuviðmið
Mosfellsbær og Hafnarfjörður skera
sig úr hvað þetta varðar því að þar
miðast afslátturinn við tekjur fyr-
ir einstaklinga og fólk í sambúð.
Hugsunin er góðra gjalda verð en
hún miðast að því að grisja út ein-
stæða foreldra sem hafa háar tekjur
og þurfa ekki á afslættinum að halda.
Margt bendir þó til þess að of langt
hafi verið gengið í þeim efnum.
Í kjölfar umfjöllunar DV um leik-
skólagjöld á höfuðborgarsvæðinu
þá bárust ábendingar um að tekju-
viðmið Hafnarfjarðar og Mosfells-
bæjar væru afar lág. „Þau væru ein-
faldlega til skammar,“ svo vitnað sé
í orðsendingu frá íbúa í Hafnarfirði.
Dæmin má sjá hér til hliðar í töflu.
Spara 210–220 þúsund á ári með
búsetu í Reykjavík
Tökum sem dæmi einstætt foreldri
með eitt barn sem er með 313.000
krónur í mánaðarlaun. Gróflega má
ætla að útborguð laun séu um 250
þúsund krónur. Slíkur einstaklingur
myndi spara sér um 18 þúsund krón-
ur á mánuði eða á bilinu 210–220
þúsund krónur á ári í leikskólagjöld,
miðað við 8 tíma vistun, með því að
búa í Reykjavík frekar en Hafnarfirði
eða Mosfellsbæ. Munurinn er nánast
heil mánaðarlaun á ársgrundvelli.
Það er einnig fróðlegt að setja
þessi gjöld í samhengi við framfær-
sluviðmið umboðsmanns skuldara.
Ef miðað er áfram við einstætt for-
eldri með eitt barn þá er gert ráð fyr-
ir að framfærsla á mánuði sé 182.198
kr. Þá á eftir að greiða fyrir kostnað
af húsnæði (leiga eða afborganir af
láni) og leikskólagjöld. Ef við miðum
áfram við Hafnarfjörð og Mosfellsbæ
þá á einstætt foreldri með áðurnefnd
laun í bæjarfélögunum um 34–35
þúsund til þess að standa straum af
kostnaði við húsnæði. Reiknings-
dæmið skánar þegar gert er ráð fyrir
meðlagi, barnabótum og mögulega
húsaleigu- eða vaxtabótum.
Ástandið er síðan enn verra fyrir
einstætt foreldri sem er aðeins með
288 þúsund á mánuði og býr í Mos-
fellsbæ.
Talsverður fjöldi sem þó fær
tekjutengda afslætti
Miðað við hversu lág tekjuviðmiðin
eru í Hafnarfirði og Mosfellsbæ þá er
það í raun áhyggjuefni hversu margir
fá þessa tekjutengdu afslætti í Mos-
fellsbæ og Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði eru alls 372 nem-
endur sem fá þennan afslátt en bak
við þá eru 324 greiðendur. Alls eru
1.363 greiðendur leikskólagjalda hjá
Hafnarfjarðarbæ og því eru um 24%
greiðenda að fá tekjutengda afslætti.
Inni í þessum tölum eru ekki þeir
sem sækja þrjá þjónusturekna leik-
skóla í bæjarfélaginu, Hjalli, Bjarmi
og Hamravellir, en bærinn innheimt-
ir gjöldin vegna þeirra.
Í Mosfellsbæ er hlutfallið lægra
sem er mögulega í takt við lægri við-
mið. Í bænum eru 550 leikskóla-
börn og alls eru 54 nemendur sem fá
tekjutengdan afslátt eða 10%.
„Það má ræða hvort tekjuviðmið-
in séu sanngjörn“
„Þetta afsláttarfyrirkomulag var
tekið upp eftir árið 2008 en þá fór-
um við að sjá aukin dæmi þess að
mjög tekjuhátt fólk fékk sjálfkrafa
afslátt fyrir einstæða foreldra. Al-
mennt höfum við orðið vör við
ánægju með fyrirkomulagið þar
sem þetta þykir heiðarleg aðferð
til að jafna kjör fólks. Það má al-
veg ræða hvort tekjuviðmiðin séu
sanngjörn en þá þarf einnig að
taka tillit til annarra afslátta eins
og systkinaafslátta þar sem spila
saman afslættir hjá allri þjónustu
við dagvistun barna,“ sagði Aldís
Stefánsdóttir, forstöðumaður þjón-
ustu- og samskiptadeildar, í skrif-
legu svari til blaðsins. n
Matur/hrein.vörur Föt/skór Lækniskostn/lyf Tómstundir Samskipti Önnur þjónusta Samgöngur Samtals
Einstaklingur 43.972 8.383 9.530 12.325 11.635 4.274 45.080 135.198
Með 1 barn 68.575 13.572 11.590 22.947 14.032 7.121 45.081 182.918
Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara 2015
Tekjuviðmiðin eru eftirfarandi:
Hafnarfjörður – Einstaklingar:
40% afsláttur: 0 til 3.127.663 kr. eða 260.639 krónur á mánuði (f. skatt)
20% afsláttur: 3.127.663 til 3.753.194 kr. eða 312.766 kr. á mánuði (f. skatt)
Mosfellsbær - Einstaklingar:
40% afsláttur: 0 til 2.846.614 kr. eða 237.218 krónur á mánuði (f. skatt).
20% afsláttur: 2.846.614 til 3.445.346 kr. eða 287.112 krónur á mánuði (f. skatt)
Afslátturinn miðast við álagningu ársins á undan og ef þau breytast á árinu
þarf að sækja sérstaklega um afsláttinn með því að skila inn launaseðlum
síðustu þriggja mánaða.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
leikskólagjöld
Einstætt foreldri, 1 barn, með 313.000 kr. í laun
Útborguð laun eru um 250 þúsund krónur
8 tíma vistun með fullu fæði (mánaðargjald):
Reykjavík: 15.100 kr.
Seltjarnarnes: 21.900 kr.
Kópavogur: 22.430 kr.
Garðabær: 24.668 kr.
Hafnarfjörður: 32.585 kr.
Mosfellsbær: 33.351 kr.
„Það má alveg
ræða hvort tekju-
viðmiðin séu sanngjörn
Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara
Fyrir einstakling með eitt barn er viðmiðið 182.918
krónur á mánuði. Þá á eftir að gera ráð fyrir húsnæðis
kostnaði og leikskólagjöldum. Sé það sett í samhengi
við einstætt foreldri með um 250 þúsund krónur
útborgaðar fær það ekki einu sinni 20% afslátt af
leikskólagjöldum í Hafnarfirði og Mosfellsbæ.
Sjá töflu hér fyrir neðan
Safnaðu
þeim öllum!
Nýir vinir
bætast í hópinn