Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2015, Qupperneq 52
48 Menning Helgarblað 10.–13. apríl 2015
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Dansstudio JSB
JAZZdans & DANSpúl!
E
F
L I
R
a
lm
a
nn
a t
en
g
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ö
nn
un
Innritun stendur yfir í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is
Vornámskeið hefjast mánudaginn 13. apríl
Hagstætt!
STUDIOKORT er árskort sem gildir á öll dansnámskeið í Dansstúdioi JSB.
Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að tækjasal JSB. Verð: 69.900 kr.
ansstudioD www.jsb.is
STUDIOKORT
Dansstudionámskeiðin eru frábær leið til að halda sér í formi!
DANSSTUDIO JSB 20+
• Varst þú í jazzballett á þínum yngri árum
og langar að halda áfram að dansa?
• 6 vikna dans- og púlnámskeið fyrir
byrjendur og lengra komna
• Kröftugir tímar þar sem jazzdans, púl og
svitadropar eru í algleymingi
Tímabil: 13.apríl – 20.maí
• Mánudaga kl.19:45 – 21:00 og miðvikudaga kl.20:00 - 21:15
• Kennarar: Guðmunda Pálmadóttir og Rósa Rún Aðalsteinsdóttir
Verð: 16.000 kr.
Bónus
Frír og ótakmarkaður aðgangur
að tækjasal JSB og í líkamsræktartíma í
opna kerfinu á meðan á námskeiðunum stendur
V
il
tu
g
er
as
t
vi
n
u
r
JS
B
?
D
an
sl
is
ta
rs
kó
li
JS
B
er
á
fa
ce
bo
ok
Pípulagnir líkamans og innviðir netsins
n Sequences VII er tíu daga myndlistarhátíð í Reykjavík n Alfredo Cramerotti, listrænn stjórnandi, ræðir pípulagnir og heiðurslistakonuna Carolee Schneemann
Á
hersla Sequences hefur
alltaf verið á hugmyndina
um tíma og slagorð hátíðar-
innar er „raun-tíma-há-
tíð.“ Áhorfendur fá að njóta
myndlistar sem notast við miðla
sem einungis er hægt að upplifa á
ákveðnum tíma: myndbönd, leik-
hús, gjörningar, dans,“ segir Alfredo
Cramerotti, listrænn stjórnandi
myndlistarhátíðarinnar Sequences,
sem hefst um helgina. Hátíðin er
haldin annað hvert ár og fer hún nú
fram í sjöunda sinn. 26 listamenn,
um helmingurinn íslenskir, sýna og
er þema hátíðarinnar pípulagnir.
Heiðursgestur er bandaríska mynd-
listarkonan og frumkvöðull í gjörn-
ingalistum, Carolee Schneemann.
Íslensk list framsækin og
nútímaleg
Alfredo Cramerotti er fyrsti er-
lendi aðilinn sem tekur að sér sýn-
ingarstjórn á Sequences. Hann er
listfræðingur, rithöfundur og sýn-
ingarstjóri og gegnir stöðu forstöðu-
manns MOSTYN, stærstu samtíma-
listastofnunar Wales. Þá hefur hann
verið sýningarstjóri evrópska sam-
tímalistatvíæringsins Manifesta 8 á
Spáni árið 2010 og stýrt þjóðarskál-
um Wales og Maldíveyja á Feneyja-
tvíæringnum árið 2013.
„Það var líklega í kringum þar-
síðustu hátíð sem ég heyrði fyrst um
Sequences. Seinna hitti ég Mark-
ús Þór Andrésson á Feyneyjatvíær-
ingnum en þá var hann listrænn
stjórnandi Sequences. Það var svo í
fyrra sem ég og stjórn hátíðarinnar
fórum að ræða möguleikann á sam-
starfi. Mér fannst þetta sérstaklega
spennandi, ég hafði aldrei komið til
Íslands og sá það fyrir mér sem land
leyndardóma, hetja og goðsagna.
Svo hefur landið magnað orðspor
sem mjög framsækið og nútíma-
legt. Þó að íslenskir myndlistar-
menn séu kannski ekki jafn kunn-
ir hinum almenna listunnanda og í
tónlistarheiminum hafa þeir mjög
sterka stöðu borið saman við mun
fjölmennari lönd með rótgrón-
ar listamenntastofnanir, söfn, gall-
erí og svo framvegis. Það er í raun
ótrúlegt að bera saman íbúafjölda
og sýnileika, en íslenskir listamenn
eru að sýna úti um allan heim,“ seg-
ir Alfredo.
Pípulagnirnar upp á yfirborðið
Eftir að ákveðið var að Alfredo tæki
verkefnið að sér fór af stað samtal
um listrænar áherslur hátíðarinnar
í ár. „Þemað sem ég stakk upp á var
kannski svolítið undarleg nálgun á
pípulagnir. Mér fannst áhugavert
að hugsa ekki bara um efni heldur
frekar um kerfin og innviðina sem
færa efni frá A til B – að leggja ekki
áherslu á þá staðreynd að við keyr-
um bíla heldur að við notum vega-
kerfi til að komast frá A til B. Mér
fannst áhugavert að skoða þessa
strúktúra, náttúrulega jafnt sem
manngerða, sem gera okkur kleift
að færa efni, hluti, þekkingu og lík-
ama milli staða. Lagnir eru kannski
skýrasta dæmið um þetta: frá pípu-
lögnum á heimilinu þar sem þú dæl-
ir heitu vatni inn í húsið og til víra
sem færa rafmagn, orku og hita inn
í bygginguna,“ segir Alfredo.
Hinar náttúrulegu pípulagnir lík-
amans og boðleiðir stafrænna sam-
skipta – pípulagnir internetsins –
verða einnig áberandi á hátíðinni.
Báðar virka okkur ósýnilegar en eru
þrátt fyrir það efnislegar. „Líkaminn
er þéttriðið net lagna: í honum eru
ólíkir farvegir fyrir loft, blóð og ýmsa
aðra vökva. Í heilanum eru taugaboð
svo send milli heilafrumna. Það má
líka færa þetta upp á jörðina sjálfa og
að því leyti til er áhugavert að vera á
Íslandi. Hér erum við með jarðhita
sem er verið að dæla upp úr jörðinni,
efni innan úr jörðinni flæða upp á
yfirborðið og eru færð í aðra mynd,“
segir Alfredo.
„Varðandi internetið, þá hugsum
við um upplýsingatækni og netþjón-
ustu sem loftkennd fyrirbæri, stað-
sett í „skýjum“ – en þau eru þvert
á móti mjög jarðtengd og efnisleg.
Þetta er það áhugaverða við innviði
internetsins, þeir eru í raun þéttriðið
kerfi sjóstrengja sem flytja símtöl og
internetboð frá einni heimsálfu til
annarrar, milli gríðarstórra bygginga
sem hýsa netþjóna og gagnageymsl-
ur. En nokkrar slíkar byggingar eru
meira að segja staðsettar hér á landi.
Það eru ákveðnir kostir við að byggja
slík mannvirki á Íslandi, mitt á milli
Evrópu og Ameríku, og þar sem loft-
ið er svo kalt að það þarf ekki kerfi
til að kæla vélarnar sem hitna mjög
mikið við áreynsluna,“ segir Alfredo.
Að hliðra sjónarhorninu
„Hlutverk sýningarstjórans felst í
að móta þessa hugmynd í gegnum
verk listamannanna og gera breiðari
áhorfendahóp kleift að nálgast hana,“
segir Alfredo. Verkin sem eru sýnd
á hátíðinni er ýmist verk eftir lista-
menn sem Alfredo þekkti og fannst
ríma við þemað eða verk sem voru
sköpuð eftir samræður sýningar-
stjórans og listamannsins. „Þegar
ég kom fyrst til landsins heimsótti
ég 25 til 30 vinnustofur, settist niður
með listamönnunum og spjallaði við
þá til að reyna að skilja hvert áhuga-
svið þeirra væri og úr því varð að við
báðum nokkra þeirra um ný lista-
verk. Samtalið fólst í því að athuga
hvort þeir væru með hugmyndir um
hvernig þessi pípulagnamyndlíking
gæti talað til almennings. Svo þetta
er sambland nýrra verka og verka
sem voru til áður.“
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Pípulagnir Þema Sequences í ár er pípur, rásir, æðar, lagnir, vírar og aðrir farvegir fyrir
flutning efnis og upplýsinga frá A til B. Mynd Páll IvAn frá EIðuM
Þau sýna á
Sequences VII
Dagrún Aðalsteinsdóttir, Una Margrét
Árnadóttir, Ed Atkins, Jordan Baseman,
Hanna Kristín Birgisdóttir, Margrét H.
Blöndal, Helga Griffiths, Francesca Grill,
Styrmir Örn Guðmundsson, Graham
Gussin, Anne Haaning, Kolbeinn Hugi
Höskuldsson, Selma Hreggviðsdóttir,
Hekla Dögg Jónsdóttir, David Kefford,
Raul Keller, Kris Lemsalu, Katarina Löf-
ström, Ragnar Helgi Ólafsson, Beatrice
Pedoconi, Finnbogi Pétursson, Sally
O'Reilly, Ene Liis-Semper, Margrét Helga
Sesseljudóttir og Helgi Þórsson.
„Þetta er
það áhuga-
verða við innviði
internetsins, þeir
eru í raun þéttriðið
kerfi sjóstrengja
sem flytja símtöl
og internetboð frá
einni heimsálfu til
annarrar.