Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 4
4 Fréttir Helgarblað 27.–30. nóvember 2015
V
ið finnum alveg fyrir ríkis
reknu sjónvarpi annars vegar
og svo ókeypis Skjá Einum
hins vegar,“ segir Sigmundur
Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri
Hringbrautar. Sigmundur Ernir
viðurkennir að rekstur stöðvarinn
ar sé þungur en segir að forsvars
menn hennar telji sig hafa tryggingu
fyrir því að reksturinn lifi út næsta ár.
„Þá vonandi verðum við komnir með
nægar auglýsingar til að viðhalda
þessu.“ Þeir finni fyrir hlýhug al
mennings og sumra fyrirtækja en
Sigmundur Ernir bendir á að fyrir
tæki fari varlegar í markaðssetningu
en stundum áður. Það sé gott fyrir
samfélagið en ekkert sérstaklega já
kvætt fyrir Hringbraut. Hann hafi
verið í fjölmiðlum í 35 ár og þeir berj
ist alltaf í bökkum.
Nokkrir þættir á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut eru
farnir, eða eru að fara, í jólafrí. Þar á
meðal eru þættir Páls Magnússonar,
Sigríðar Arnardóttur og Karls Ágústs
Úlfssonar. Sigmundur Ernir segir
í samtali við DV að þau muni öll
snúa aftur á skjáinn á nýju ári. „Við
hvílum alltaf þætti öðru hverju.“
Páll Magnússon staðfestir í samtali
við DV að hann muni snúa aftur á
skjáinn á nýju ári. n
Þungur rekstur Hringbrautar
Sjónvarpsstjórinn segir þó næsta ár tryggt
Sjónvarpsstjórinn Nokkrir þættir eru
komnir í jólafrí að sögn Sigmundar Ernis.
Styrkja með
bensínlítranum
Olíuverzlun Íslands hf. ýtti
verkefninu „Gefum & gleðjum“
úr vör á dögunum. Næstu fimm
föstudaga fram að áramótum
munu 5 krónur af hverjum seld
um eldsneytislítra hjá Olís og
ÓB renna til þeirra félaga sem
ákveðið hefur verið að styrkja en
þau eru: Styrktarfélag barna með
einhverfu, Mæðrastyrksnefnd,
Neistinn styrktarfélag hjartveikra
barna, Geðhjálp og Landsbjörg.
„Það er okkar samfélagslega
skylda að leggja góðum málefnum
lið. Olís hefur undanfarin ár styrkt
myndarlega við hin ýmsu verk
efni, samtök og íþróttafélög og því
viljum við halda áfram,“ segir Jón
Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís.
Bætur vegna
skarkala
Breskt par, sem dvaldi á gisti
heimili í miðborg Reykjavíkur,
var mjög ósátt við dvölina vegna
ónæðis sem orsakaðist af skarkala
frá næturlífi miðborgarinnar. Þar
sem gistiheimilið var fullbókað
gat fólkið ekki skipt um herbergi
og þurfti því að sætta sig við and
vökunætur vegna óhljóða. Fólkið
fór fram á bætur vegna ónæðis
ins þegar gera átti dvölina upp en
því höfnuðu eigendur gistiheim
ilisins. Parið hafði í framhaldinu
samband við Neytendasamtök
in og eftir íhlutun þeirra þá var
niðurstaðan sú að Bretarnir fengu
35.400 krónur í bætur.
Leigir moskuna á
10.000 á mánuði
Menningarsetur múslima á Íslandi segir leigugreiðslur vegna Ýmishússins vera táknrænar
T
rúfélagið Menningarsetur
múslima á Íslandi greiðir tíu
þúsund krónur í húsaleigu á
mánuði til Stofnunar múslima
á Íslandi ses. fyrir 1.200 fer
metra Ýmishúsið í Skógarhlíð. Sam
kvæmt húsaleigusamningi þeirra á
leigan að nema sömu upphæð út tíu
ára samningstímann eða til ársloka
2023. Taoufik Elmassoudi, stjórn
armaður og einn stofnenda trúfé
lagsins, segir leigugreiðslurnar tákn
rænar þar sem fasteignin hafi verið
keypt með fjárframlögum „úr hinum
múslimska heimi“. Annar forsvars
maður trúfélagsins hefur fullyrt að
Stofnun múslima á Íslandi hafi fengið
margumrædda rúma milljón Banda
ríkjadala, um 130 milljónir króna, sem
SádiArabía gaf til stuðnings byggingar
mosku hér á landi, en ítrekað að stofn
unin sé ótengd menningarsetrinu.
„Við óskuðum eftir langtíma leigu
samningi til að tryggja stöðugleika,
sjálfstæði trúfélagsins og að það gæti
starfað án þrýstings eða skilyrða,“ segir
Taoufik í skriflegu svari við fyrirspurn
DV.
Hóf söfnunina
Húsaleigusamningurinn tók gildi í árs
byrjun 2013 og var þinglýst í janúar
síðastliðnum. Stofnun múslima á Ís
landi keypti Ýmishúsið við Skógarhlíð
20 í október 2012 en fasteignamat þess
fyrir næsta ár er 230 milljónir króna og
brunabótamatið rétt tæpar 329 millj
ónir. Hussein Al Daoudi, stjórnarfor
maður Stofnunar múslima á Íslandi,
skrifaði undir leigusamninginn fyrir
hönd hennar. Samkvæmt fyrirtækja
skrá er stofnunin til húsa á sama stað
og trúfélagið. Ahmad Seddeq, ímam
menningarsetursins, sagði í samtali við
RÚV í mars síðastliðnum að stofnunin
hefði fengið peningagjöfina frá Sádi
Arabíu sem átti að renna til byggingu
mosku hér á landi. Hussein sé búsettur
í Svíþjóð en að Ahmad viti ekki til hvers
stofnunin ætli að nota peningagjöfina.
Ítrekaði ímaminn að stofnunin væri
ekki trúfélag, ólíkt menningarsetrinu.
„Þessi moska var keypt af Stofn
un múslima á Íslandi með fjárfram
lögum frá hinum múslimska heimi og
þar á meðal SádiArabíu. Byggingin er
í hennar nafni en stofnunin er ekki trú
félag,“ segir Ahmad í samtali við DV. Í
svari Taoufik segir að Hussein Al Da
oudi hafi hafið söfnunina fyrir kaupun
um á Ýmishúsinu.
„Síðar féll hann frá því sem hann
hafði áður sagt og stofnaði sjálfseignar
stofnunina eftir að hafa fengið loforð
um fjárframlög. Þegar búið var að safna
peningunum sem þurfti voru þeir lagð
ir inn á bankareikning stofnunarinnar
á Íslandi og fasteignin keypt í lok 2012.
Við viljum að fasteignin verði skráð
undir nafni múslima á Íslandi og að
fjárframlög vegna hússins séu í hönd
um skráðs trúfélags,“ segir Taoufik.
Afsprengi klofnings
Menningarsetur múslima á Íslandi er
annað tveggja trúfélaga íslam hér á
landi og afsprengi klofnings innan sam
félags þeirra. Forsvarsmenn hins trúfé
lagsins, Félags múslima á Íslandi, hafa
ítrekað vísað því á bug að það hafi feng
ið peningagjöfina frá SádiArabíu sem
fyrst var greint frá í mars síðastliðnum
á vefsíðu forsetaembættisins. Kom þar
fram að Ibrahim S.I. Alibrahim, sendi
herra SádiArabíu á Íslandi, hefði á
fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, greint frá því að ein
ræðisríkið styddi byggingu mosku í
Reykjavík og myndi leggja verk efninu
til rúmlega eina milljón dala.
„Leigusamningurinn um Ýmishús
ið var gerður áður en það fjárframlag
kom til sögunnar,“ segir Ahmad.
Forsvarsmenn Félags múslima á
Íslandi hafa fullyrt að menningarsetr
ið í Skógarhlíð sé stutt af sænska trú
arhópnum ArRisalah. Ibrahim Sverrir
Agnarsson, fyrrverandi formaður fé
lagsins, sagði í viðtali við RÚV í október
2012 að ArRisalah væri að hans mati
öfgahópur. Í fyrirspurn DV til menn
ingarsetursins var ekki spurt út í meint
tengsl þess við ArRisalah. Taoufik seg
ir aftur á móti í svari sínu að ekki sé
fótur fyrir ýmsum fullyrðingum á vef
síðu ArRisalah um starfsemi sænska
trúarhópsins hér á landi eins og þeirri
að hann starfræki skóla fyrir múslima
í Skógarhlíð.
„Þú getur spurt þá hvar öll þessi
starfsemi er rekin en Skógarhlíð 20 er
rekin af Menningarsetri múslima á Ís
landi. Hussein Al Daoudi hefur að
undanförnu notað ákveðið fólk hér á
Íslandi í þeim tilgangi að grafa undan
menningarsetrinu sem á í deilum við
hann. Þetta gerir hann til að hafa áhrif
á það hverjir sitja í stjórn trúfélagsins.
Yfirvöld á Íslandi hafa verið upplýst um
þetta,“ segir Taoufik. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Þessi moska var
keypt af Stofnun
múslima á Íslandi með
fjárframlögum frá hinum
múslimska heimi og þar á
meðal Sádi-Arabíu.
Ýmishúsið Menningarsetur múslima á Íslandi vildi upphaflega leigja Skógarhlíð 20 til
ársins 2038 en á endanum var samið til 2023. Svo virðist sem upp séu komnar deilur á milli
leigutakans og forsvarsmanna stofnunar múslima á Íslandi. Mynd SiGtryGGur Ari
Ímaminn Ahmad Saddeq, ímam Menn-
ingarseturs múslima á Íslandi, ítrekar að
leigusamningurinn um Skógarhlíð 20 hafi
verið gerður áður en Stofnun múslima á
Íslandi tók við rúmlega milljóna dala pen-
ingagjöf frá Sádi-Arabíu.
Hittust á Bessastöðum Ibrahim S.I.
Alibrahim, sendiherra Sádi-Arabíu á Íslandi,
greindi Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands, frá því í mars að konungsdæmið
hefði ákveðið að gefa rúmlega eina milljón
dala til byggingu mosku hér á landi.