Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 24
Helgarblað 27.–30. nóvember 201524 Neytendur
Veruleg verðhækkun
á metsöluhöfundum
n Arnaldur og Yrsa dýrari en á sama tíma í fyrra n Hækkað langt umfram bókaskattinn
V
erð á bókum tveggja vin-
sælustu spennusagnahöf-
unda landsins er á bilinu
21 til 34 prósent hærra en
á útgáfum sömu rithöf-
unda, á sama tíma, í fyrra. Hækk-
anirnar eru í flestum tilfellum langt
umfram breytingar sem urðu á
virðisaukaskatti um síðustu áramót
sem og verðlagsbreytingum.
DV gerði verðkönnun á nokkrum
völdum og vinsælum jólabókum
þann 25. nóvember í fyrra þar sem
verðsamanburður var gerður á níu
bókum milli tíu verslana. Bæði
skáldsögum og barna- og unglinga-
bókum. Bónus reyndist oftast vera
með lægsta verðið af þeim verslun-
um sem könnun DV tók til fyrir ári
en Eymundsson oftast með hæsta
verðið.
Bækur Arnaldar Indriðasonar og
Yrsu Sigurðardóttur, Kamp Knox og
DNA, voru meðal þeirra sem skoð-
aðar voru í fyrra. Turnarnir tveir í ís-
lenskri bókaútgáfu eru einu skáld-
sagnahöfundarnir úr könnun DV í
fyrra, sem gefa líka út í ár. DV ákvað
því að skoða hvernig verðþróun
hefði orðið á bókum þeirra milli ára
hjá fjórum söluaðilum. Í ljós kom
að verulegur verðmunur er á bók-
um höfundanna milli ára.
Arnaldur dýrari
Bók Arnaldar, Kamp Knox, var
ódýrust í Hagkaupum í könnun
DV í fyrra og kostaði þá 4.099 krón-
ur. Nú, ári síðar, kostar Þýska hús-
ið eftir Arnald, 5.499 krónur í versl-
uninni, eða 34 prósentum meira en
Kamp Knox. Verðhækkun á bókum
Arnalds hjá Bónus nemur 15,3 pró-
sentum milli ára en hækkunin er
heldur hóflegri hjá Pennanum Ey-
mundsson (1,6 prósent) og A4 (5,2
prósent).
Yrsa hækkar
Bók Yrsu Sigurðardóttur í fyrra,
DNA, var heldur dýrari en Kamp
Knox Arnaldar í fyrra. Í fyrra var
DNA ódýrust í Bónus í könnun DV
og kostaði 4.198 krónur. Í ár kostar
nýjasta bók hennar, Sogið, 4.545
krónur í Bónus sem gerir hækkun
upp á 8,2 prósent. Mest hækkar
bókin í verði í verslunum Pennans
Eymundsson og A4. Sogið er 20,7
prósentum dýrari en DNA hjá
fyrrnefndu versluninni og 21 pró-
senti dýrari hjá A4. Hjá Hagkaup-
um er Sogið 14 prósentum dýrari
en DNA á sama tíma í fyrra.
Verð á bókunum var ýmist
fengið af heimasíðum viðkomandi
verslana eða í verslununum sjálfum
þann 24. nóvember síðastliðinn.
Örar breytingar eru oft á verði bóka
hjá verslunum vikurnar fyrir jól en
til marks um það þá kostaði Þýska
húsið hans Arnaldar 5.999 krónur
í Hagkaupum þegar hún kom fyrst
út, en hefur síðan lækkað um 500
krónur.
Hækkanir umfram breytingar
En hvað gæti skýrt þessar verð-
hækkanir milli ára? Það fyrsta sem
ber að nefna er að um síðustu ára-
mót tóku gildi breytingar á lögum
um virðisaukaskatt, þar sem meðal
annars neðra þrep virðisaukaskatts
hækkaði úr 7 prósentum í 11 pró-
sent. Samkvæmt útreikningum Al-
þýðusambands Íslands átti verð
vöru í þessu þrepi að hækka um 3,7
prósent. Bækur tilheyra þessu neðra
þrepi. Því mætti ætla að verð á bók-
um ætti almennt að hafa hækkað
um að minnsta kosti 3,7 prósent
milli ára og verðathugana DV. Í
flestum tilfellum er hækkunin hins
vegar umtalsvert meiri, og langt
umfram áhrif þessara breytinga á
virðisaukaskattsþrepinu.
Og ef einhver er að velta fyrir
sér hækkun á vísitölu neysluverðs
þá eru hækkanirnar nú sömuleiðis
talsvert umfram verðlag, sem
á tímabilinu nóvember 2014 til
október 2015 (nýjustu tölur) hækk-
aði um 2,3 prósent. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Arnaldur Indriðason
Kamp Knox (2014) Þýska húsið (2015) Hækkun
Bónus 4.159 kr. 4.798 kr. 15,3%
Hagkaup 4.099 kr. 5.499 34%
Penninn Eymundsson 5.799 kr. 5.894 kr. 1,6%
A4 5.689 kr. 5.989 kr. 5,2%
Yrsa Sigurðardóttir
DNA (2014) Sogið (2015) Hækkun
Bónus 4.198 kr. 4.545 kr. 8,2%
Hagkaup 4.999 kr. 5.699 kr. 14%
Penninn Eymundsson 5.799 kr. 6.999 kr. 20,7%
A4 5.689 kr. 6.889 kr. 21%
„Bók Arnaldar,
Kamp Knox, var
ódýrust í Hagkaupum
í könnun DV í fyrra og
kostaði þá 4.099 krónur.
Nú, ári síðar, kostar Þýska
húsið eftir Arnald, 5.499
krónur í versluninni, eða
34 prósentum meira.
Dýrari metsölubækur Bækur Yrsu og Arnaldar ná nær undantekningarlaust metsölu hér
á landi og er þær að finna undir jólatrjám margra landsmanna fyrir jólin. Það er þó umtalsvert
dýrara að kaupa bækur þeirra í ár en það var í fyrra. MYND SigtrYggur Ari