Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 42
Helgarblað 27.–30. nóvember 20152 Jólagjafahandbók - Kynningarblað
Eftirminnilegasta jólagjöfin
kom unglingnum í vandræði
Yrsa Sigurðardóttir og störnukíkirinn hennar
www.arc-tic.is www.arc-tic.is
ARC-TIC RETRO
ertu að leita að rétta úrinu á rétta verðinu?
við kynnum arc-tic Retro
Gilbert úrsmiður kynnir nýtt úr í ARC-TIC Iceland línunni á frábæru verði, úrið er íslensk
hönnun og kemur í ryðfríum 316L 5ATM stálkassa með vönduðu svissnesku quartz
gangverki. Úrið heitir ARC-TIC Retro og kemur í tveimur stærðum, 42 mm og 36 mm
í bæði hvítu og svörtu og fylgir nató ól með öllum úrum í íslensku fánalitunum.
íslensk
hönnun
VERÐ AÐEINS:
29.900,-
E
ftirminnilegasta jólagjöfin í
mínu tilfelli er forláta stjörnu-
kíkir sem ég fékk frá foreldr-
um mínum þegar ég var 14
ára. Ef ég ætti að fá stjörnukíki
í dag sem myndi veita mér jafn mikla
gleði þyrfti það að vera Hubble-sjón-
aukinn, þótt þar sé ekki saman að
jafna á neinn hátt,“ segir metsölu-
höfundurinn Yrsa Sigurðardóttir um
eftirminnilegustu jólagjöfina sína og
bætir við:
„Þessi kíkir kom mér raunar í
vandræði þegar frá leið því við flutt-
um í nýtt hverfi tæpu ári síðar og
ég hóf þar með skólagöngu í nýjum
skóla þar sem ég þekkti engan. Þar
sem ég stóð úti í garði fyrir framan
húsið okkar nýja að góna upp í loftið
gegnum elskaðan kíkinn eitt stjörnu-
bjart haustkvöldið, bar að tvo tán-
inga úr árganginum sem höfðu ætlað
að heilsa upp á nýja nemandann. Ég
hefði ekki getað verið gripin við hall-
ærislegri iðju ef ég hefði æft vikivaka
með skotthúfu á túninu. En sem bet-
ur fer tókst gestunum að líta fram-
hjá þessum „lapsus“ í töffheitum og
okkur varð mjög vel til vina og lifir sá
vinskapur enn, enda búinn að ganga
gegnum eldraun mikla á upphafs-
stigum hans.“ n
Stjörnukíkir Tækið
sem Yrsa fékk leit ná-
kvæmlega svona út.
Mynd dV Sigtryggur Ari JóhAnnSSon