Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 86

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 86
Helgarblað 27.–30. nóvember 201570 Menning Brauð og hungurleikar Nanna Hlín Halldórsdóttir veltir fyrir sér valdi og andófi í Hunger Games-seríunni Í síðustu viku var frumsýnd fjórða og síðasta myndin í kvikmynda- seríunni um Hungurleikana. Myndirnar hafa slegið hvert metið á fætur öðru í kvikmynda- húsum heimsins undanfarin ár og gert Jennifer Lawrence að einni allra stærstu stjörnu Hollywood. Þótt sagan virðist í upphafi vera einföld dæmisaga góðs og ills er margt undir yfirborðinu og út frá myndinni hafa sprottið margar áhugaverðar vangaveltur um byltingar og andóf í samfélagi hins stafræna sjónarspils. DV ræddi við Nönnu Hlín Halldórsdóttur, doktorsnema í heimspeki, sem hefur velt fyrir sér sambandi valds og andófs í Hungurleikunum. Byltingar ekki svarthvítar Myndirnar um Hungurleikana eru byggðar á samnefndum ævintýra- bókum bandaríska rithöfundarins Suzanne Collins. Þær gerast í sam- bandsríkinu Panem í dystópískum framtíðarheimi þar sem auðug for- réttindastétt – með forsetann Snow fremstan í flokki – lifir í vellystingum á meðan stærstur fjöldi fólks lifir við fátækt og þrældóm. Árlega keppa ungmenni úr hverju sambandsríkjanna upp á líf og dauða í hinum svokölluðu Hungurleikum – ógnvekjandi raun- veruleikasjónvarpsskemmtun. Þegar aðalpersónan Katniss Everdeen þarf að etja kappi í leikunum gerir hún sér grein fyrir kúguninni og beinir athygli sjónvarpsvélanna að mis- réttinu. Upp hefst andóf og uppreisn sem leiðir til blóðugs byltingarstríðs. „Frásögnin í bókunum er gríp- andi en fær mann jafnframt til að hugsa. Það kom mér sjálfri á óvart hvað Hungurleikarnir ná að sýna hvað andóf, vald og byltingar eru marghliða og alls ekki svarthvít fyrir- bæri,“ segir Nanna. Brauð og hungurleikar Hvernig birtist valdbeitingin í þess- um dystópíska framtíðarheimi? „Nafn framtíðarríkisins Panem vísar í latneska frasann „panem et circenses“ sem þýðir „brauð og leikar“. Það mætti segja að það hafi verið stjórnlist eða „valdastra- tegía“ Sesars, rómverska keisarans, til að halda fólki góðu með því einu að tryggja þeim mat og skemmt- un. Í máltækinu vísa „leikarnir til þess þegar skylmingaþrælar voru látnir berjast upp á líf og dauða í hringleikahúsum. Á sama hátt er íbúum Panem haldið „góðum,“ en fyrst og fremst hræddum með Hungurleikunum,“ segir Nanna. „Íbúar Panem búa við yfirráð höfuðborgarinnar Kapítol sem hef- ur nær algjört vald yfir hinum tólf umdæmum. Fólkið í umdæmun- um hefur nánast aldrei tækifæri á að beita nokkurs konar valdi. En Snow forseti veit að það er tilgangs- laust fyrir fólk að lifa við algert valdaleysi og örbirgð. Fólk verð- ur að hafa einhverja von til þess að halda áfram. Hann veit hins vegar að vonina má nýta til þess að snúa fólki gegn hvað öðru frem- ur en gegn yfirvaldinu. Þannig nýt- ast hungurleikarnir valdhafanum. Í stað þess að minna fólkið á hver ræður með því að drepa eitt stúlku- barn og eitt drengbarn úr hverju umdæmi, leyfir yfirvaldið voninni að lifa. Fólk fær að halda í þá von að barn úr þeirra umdæmi geti lifað af, unnið ríkidæmi og orðið stolt um- dæmisins,“ segir hún. „Það þarf alltaf að vera að minnsta kosti fræðilegur möguleiki á andófi gegn valdi, annars er ekki um valdatengsl að ræða heldur að- eins skipun og hlýðni. Vonin snýst um breytingar, um andóf, um kraft sem getur leyst úr læðingi annað og betra líf. En vonin má ekki vera of mikil. Eins og Snow hugsar það þarf fólkið að gera sér grein fyrir að samfélagið muni ekki breytast, svo það fari ekki að veðja á uppreisn. Þarna koma Katniss og félagar inn í hálfgerðan „valdastrategíuslag“ við Snow.“ Leiksoppur uppreisnarinnar Hvað með Katniss, hvernig fer henn- ar andóf fram og hvernig breytist það eftir að það breytist úr sjálf- sprottinni andspyrnu yfir í skipu- lega byltingarstyrjöld? „Það sést strax í byrjun þríleiks- ins að Katniss er ekki einhliða, klisjukennd kvenpersóna held- ur manneskja af holdi og blóði. En það er einmitt í þriðja hlutan- um sem dýpt hennar sem persónu kemur í ljós. Við erum stödd í þeirri uppreisn sem Katniss og öll um- dæmin hafa þráð, en þá er ekki lengur augljóst hvernig maður ger- ir „það rétta“. Í gegnum hungurleika annarrar og þriðju bókarinnar hef- ur Katniss beitt sínu eigin hyggju- viti til þess að lifa af og séð við ráðabruggi Snow en engu að síð- ur uppgötvar hún smám saman að hún er líka leikskoppur annarra afla. Það er ekki aðeins Snow sem er að plotta og hún á það á hættu að verða einungis að valdatæki í höndum andstöðunnar, sett fram og sýnd sem leiðtogi og andófs- hetja byltingarinnar í sjónvarps- tækjum Panem-manna. Við sjáum hins vegar í þessari síðustu mynd að Katniss heldur trú við andófið sjálft frekar en ákveðinn uppreisn- arher, hún knýr fram „nei“ þar sem við gerðum okkur ekki grein fyrir því að valdi væri beitt. Á sama tíma getum við aldrei verið viss um hvar andófið byrjar og öðrum erfiðum mannlegum tilfinningum á borð við hefnd lýkur. Í þessum atriðum finnst mér Collins ná að fanga það margbreytilega við mannlífið í frá- sögninni,“ segir Nanna. Sjarmerandi byltingarhetjur Er hægt að sjá einhverjar hliðstæð- ur milli þessara vísindaskáldsagna og nokkurs sem er að gerast í hinum pólitíska veruleika dagsins í dag? „Já, það getur verið áhugavert að skoða Hungurleikana út frá and- ófspólitík samtímans sem er mest beint gegn niðurskurði velferðar- ríkisins. Afþreyingarmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í Panem við að móta viðhorfs fólks. Það sama er eflaust upp á teningnum í dag og má til dæmis sjá nýjar sjarmer- andi „andófshetjur“ leiða byltingar- kennda flokka í Evrópu. Eitt skýrasta dæmið um það er leiðtogi spænska flokksins Podemos, Pablo Iglesias. Spurningin sem Hungurleikarnir spyrja er, þótt sjarmerandi leið- togar og andófshetjur geti vissulega fært fjöll og jafnvel hrundið af stað byltingu en nægir það? Ég er ekkert svo viss um að Katniss myndi vilja vera Pablo Iglesias dagsins í dag, ég held einmitt að hún geri sér grein fyrir því að byltingarsprotarnir þurfi að vera margir og margt fólk þurfi til þess að hlú að hverjum þeirra svo megi vaxa falleg blóm og tré. Eins mætti segja að það þurfi að sá marg- víslegum fræjum nýrrar samfélags- skipanar strax í dag og kannski líka koma auga á þær sem hefur þegar verið sáð,“ segir Nanna. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Katniss á það á hættu að verða einungis að valdatæki í höndum andstöðunnar, sett fram og sýnd sem leiðtogi og andófs hetja byltingarinnar í sjónvarps- tækjum Panem-manna. Nanna Hlín Doktorsnemi í heimspeki, greinir vald og andóf í sögunni um Hungurleikana. Harðstjórinn Forsetinn Snow gerir sér grein fyrir að kúgaðir undirsátar hans verði að hafa einhverja von um betra líf til þess að þeir haldi áfram að lifa. Byltingarhetjan Óviljandi verður Katniss Everdeen að valdatæki í höndum uppreisnar aflanna í Panem. Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.