Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 2
Vikublað 28.–29. apríl 20152 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Spillingu við
úthlutun makríl-
kvóta mótmælt
Stjórn Samfylkingarfélagsins í
Reykjavík mótmælir harðlega að
þingmaður Framsóknarflokksins,
Páll Jóhann Pálsson, hafi ekki sagt
sig frá vinnu
við frum-
varp sjávarút-
vegsráðherra
um úthlutun
makrílkvóta í
gegnum setu
sína í atvinnu-
veganefnd.
Þetta kem-
ur fram í ályktun félagsins. Segir
þar að þingmaðurinn Páll Jóhann
Pálsson hafi hagsmuna að gæta í
málinu. Eiginkona Páls er eigandi
Marvers sem fær úthlutað mak-
rílkvóta sem talin er 50 milljóna
króna virði, nái frumvarp sjávar-
útvegsráðherra fram að ganga.
Fyrir lok árs 2013 var Páll Jó-
hann skráður eigandi Marvers ehf.
ásamt konu sinni. „Áþekk vensl
viðskipta og stjórnmála koma
reglulega upp á Alþingi og í stjórn-
sýslunni. Ástæðuna er að finna í
smæð samfélagsins frekar en illu
innræti. Þess vegna er mikilvægt
fyrir Alþingi og stjórnsýsluna að
hafa skýrar og einfaldar siðaregl-
ur sem taka á svona uppákomum,“
segir í ályktuninni. Jafnframt er þar
fullyrt að hér sé um að ræða ein-
falt mál þar sem manneskja sem
í krafti setu sinnar á Alþingi út-
hlutar sjálfri sér 50 milljóna króna
verðmætum úr sameiginlegri auð-
lind þjóðarinnar.
K
jötvinnslufyrirtækið Kjarna-
fæði hefur gert tilboð í öll
hlutabréf Norðlenska. Frá
þessu var greint á vef Viku-
dags í gær, mánudag. Í viðtali við
vefinn sagði Gunnlaugur Eiðsson,
framkvæmdastjóri Kjarnafæðis, að
málið væri á byrjunarstigi og það
hafi verið af og til skoðað á undan-
förnum árum að sameina félögin.
„Núna eins og oft áður er stað-
an innan greinarinnar erfið. Þetta er
einn af þeim liðum sem við teljum
að þurfi að skoða af alvöru því inn-
angreinarhagræði er það sem fyrst
ber að sækja í til eflingar og frekari
sóknar. En hvort af verður veit ég
ekki á þessari stundu,“ sagði Gunn-
laugur við Vikudag.
Búsæld, félag kjötframleiðenda
í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á
Austur- og Suðausturlandi, keypti
öll hlutabréf Norðlenska fyrir 568
milljónir króna árið 2007. Rekstur
Norðlenska var þungbær í fyrra, að
sögn Vikudags, en það ár var fyrir-
tækið rekið með tæplega 50 millj-
óna króna tapi. n
Gera tilboð í Norðlenska
Kjarnafæði freistar þess að færa út kvíarnar
Erfið staða Rekstur Norðlenska ku hafa
verið þungur í fyrra.
T
rausti Jónsson veður-
fræðingur segir að ný-
liðinn vetur hafi verið sá
umhleypingasamasti í um
tuttugu ár. Hann hafi verið
mjög líkur vetrarveðrinu á árunum
1989 til 1995.
„Þeir sem eru yngri en 25 ára
eiga kannski í erfiðleikum með að
muna þetta. Þeir sem muna það
ekki finnst þessi vetur hafa ver-
ið mjög slæmur. Ég er kominn
vel á sjötugsaldurinn og man eft-
ir mörgum svona vetrum,“ segir
Trausti, sem viðurkennir engu að
síður að veturinn hafi verið leiðin-
legur.
Hann tekur fram að eins og svo
oft í umhleypingasömu veðri þá
hafi ekki verið sérlega kalt í veðri.
„Frostið í Reykjavík fór aldrei í
mínus tíu sig, sem er óvenjulegt,“
segir hann.
Trausti tekur fram að veðrið á
Austur- og Norðausturlandi hafi
verið mjög gott síðari hluta vetrar-
ins. Óvenju snjólétt hafi verið víða
og til að mynda hafi þurft að flytja
skíðamót á aðra staði vegna snjó-
leysis.
Mun verra veður var á heiðun-
um og gengu samgöngur yfir heið-
ar mjög illa vegna þess. „Kröfurn-
ar eru orðnar meiri um greiðari
Leiðinlegasti
veturinn í 20 ár
n Miklir umhleypingar n Minnir á veðrið 1989 til 1995 að sögn Trausta
14. mars Versta veðrið í
vetur hvað vind áhrærir
-9,6° Mesta frost
í Reykjavík, 3. febrúar
467,8 mm Úrkoman
vetrarins í Reykjavík var 53%
umfram meðallag
46,3 m/s Mesti vind-
hraði vetrarins mældist á Stór-
höfða í Vestmannaeyjum 22.
febrúar
7,1 m/s Meðalvindhraði
vetrarins á mönnuðum stöðvum.
Sá mesti frá vetrinum 1992 til
1993 að telja.
70% Snjómagn í Reykjavík
var 70% umfram meðallag
síðustu ára
70 Alhvítir dagar í Reykja-
vík. 17 fleiri en að meðaltali
1971–2000
81 Alhvítir dagar á Akureyri
78% Úrkoma í Stykkishólmi
var 78% umfram meðallag
68% Úrkoma á Akureyri var
68% umfram meðallag
Veturinn í tölum
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
samgöngur en var. Það þarf örugg-
lega að fara aftur til ársins 1995 til
að finna eitthvað sambærilegt. En
innan Reykjavíkur var það ekki
nema einu sinni í vetur sem ég
þurfti að halda mig heima,“ segir
Trausti, sem býr í útjaðri borgar-
innar. n
„Það þarf örugg-
lega að fara aftur
til ársins 1995 til að finna
eitthvað sambærilegt.
Trausti Jónsson Veður-
fræðingurinn segir veturinn hafa
verið afar umhleypingasaman.
VB Bakki
kaupir í DV
VB Bakki ehf., einkahlutafé-
lag að fullu í eigu Þórunnar
Guðmundsdóttur, hefur keypt
0,45% hlut í DV ehf., útgáfufé-
lagi DV og dv.is.
Seljandi hlutarins er
Dagmar Una Ólafsdóttir, jóga-
kennari á Selfossi.
Nafnverð hlutafjár í DV ehf.
er ríflega 155 milljónir króna
og er Pressan ehf. stærsti hlut-
hafinn