Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Blaðsíða 40
28 Menning Vikublað 28.–29. apríl 2015 U ppsetning verksins Peggy Pickit sér ásýnd Guðs er einstaklega vel tímasett nú þegar fjöldi dauðs­ falla á Miðjarðarhafi bein­ ir sjónum okkar enn og aftur að íbúum Afríku. Þó að verkið fjalli um Vestur lönd og Afríku ber þess þó að geta strax að hér er ekki á ferð áróð­ ur um hvað við hefðum átt að gera, eða ekki gera, fyrir Afríku. Þess í stað vekur verkið upp spurningar um hjálpariðnaðinn, hvort hann þjóni gefendum frekar en þiggj­ endum og hvort við höfum yfirhöf­ uð þekkingu eða möguleika á að bæta lífsgæði íbúa sem búa á stríðs­ hrjáðum eða harðbýlum svæðum órafjarri réttlæti og lögum. Þrátt fyrir að verkið sé í styttra lagi, eða um 80 mínútna langt, ættu áhorf­ endur að reikna með því að eyða nokkrum tíma til viðbótar til þess að ræða efni þess sín á milli eftir að leikhúsheimsókn lýkur. Þetta er einfaldlega þannig verk að það leit­ ar á mann. Kannski ekki síst vegna þess að það er svo skratti skemmti­ legt og fyndið. Kristín Þóra fer á kostum Verkið fjallar um þýsk vinahjón um fertugt sem að loknu læknisnámi hafa tekið ólíka stefnu í lífinu. Ann­ að parið, Lísa og Frank, hefur kom­ ið sér vel fyrir í góðu húsi og eignast bíl og barn. Lísa hugsar um heim­ ilið og Frank um starfsframann. Saman hafa þau eignast dóttur, reyndar gegn vilja Franks og ljóst er að börnin verða ekki fleiri. Hitt parið, Katrín og Marteinn, hélt til Afríku í hjálparstarf að loknu námi. Þau hafa dvalið þar í sex ár, eða þar til þau þurftu að flýja landið vegna átaka. Karen og Marteinn hafa tekið ákvörðun um að eignast ekki börn en þau hafa hins vegar tengst munaðarlausri stúlku við hjálparstörfin og fengið Lísu og Frank til þess að styðja umönnun hennar með fjárframlögum. Lísa hefur tekið hjálparbeiðnina mjög alvarlega, þær mæðgur hjálpast að við að skrifa stúlkunni bréf og senda henni smádót í pakka. Við fylgjumst með endurfundum hjón­ anna þegar fyrrverandi Afríku­ búarnir mæta í matarboð til Lísu og Franks. Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í hlutverki Lísu. Þrátt fyrir að vera mjög kómískur og kannski ekkert sérlega klár karakter þá hélt hún trúverðugleikanum og hennar persóna varð stöðugt áhugaverðari. Hún leggur sig alla fram um að láta endurfundina heppnast vel þrátt fyrir að ljóst sé frá fyrstu mínútu að þetta sé gjörsamlega misheppnað samkvæmi. Valur Freyr Einarsson var ekki síðri í hlutverki Marteins. Einlæg eintöl hans við áhorfendur þar sem hann meðal annars talaði um það hversu mjög hann hataði svona vinaboð, hittu þráðbeint í mark. Hann gerir sér alveg ljóst að árin sex í Afríku voru nánast til einskis og breyttu litlu fyrir þá sem hann annaðist. Frank og Katrín voru svolítið flatari persónur í meðförum þeirra Maríönnu Clöru og Hjartar Jó­ hanns. Hlutverk þeirra eru ef til vill ekki eins vel skrifuð af hálfu höfund­ ar. Eintöl Hjartar voru þó áberandi vel unninn og þar náði hann góðri tengingu við áhorfendur. Þegar leið á sýninguna snerist boðið svo nán­ ast upp í kappleik um hvert þeirra hefði tekið verstu stefnuna í lífi sínu og hvort hjónabandið væri mislukk­ aðra. Vel leikið en ekki gallalaust Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri sýningarinnar, fær í hendurnar frá­ bært verk og framúrskarandi leik­ ara. Á stöku stað hefði hann mátt vinna betur með endurtekningar texta eftir eintöl leikara við sal. Þær voru margar hreint og beint leiðin­ legar þrátt fyrir að sumar hefðu virk­ að ágætlega. Þá var einnig óbæri­ legt, í þessu litla rými, að þurfa að hlusta á leikara öskra heilu ræð­ urnar yfir salinn. Vignir fer þá leið að færa staðsetningu verksins nær Íslandi með því að nota þekkt ís­ lensk lög í verkið. Þetta gekk ekkert sérlega vel upp þar sem persón­ ur verksins eru á margan hátt mjög þýskar. Leikmyndin er bæði vel og illa heppnuð. Frumskógarflækjan að baki leikurunum er gríðarlega falleg og skapaði sterka umgjörð. Hins vegar var ávala bungan sem skar sviðið í tvennt full fyrirferðar­ mikil og skilaði í raun engu fyrir verkið. Leikmunir á barnum voru líka viðvaningslegir. Freyðivíns­ flaska, kampavínsflöskur og tvær vodkaflöskur hvor af sinni tegund­ inni hljóta að teljast til fábrotinna áfengisveitinga í læknaboði. Bún­ ingarnir voru líka mistækir, klæðn­ aður þeirra Marteins og Franks var eðlilegur og ekkert út á hann að setja. Lísa var hins vegar í pokaleg­ um kjól sem samanstóð aðallega af tveimur risastórum slaufum að aftan og framan, líkt og hún hefði ákveðið að bregða sér í klossaðan búning sem „Big Mama“ í tilefni endurfunda við fólk sem hún hafði ekki hitt í sex ár. Katrín var í svartri buxnadragt sem bæði fór henni illa og skapaði auk þess undar­ legt ójafnvægi við aðra búninga á sviðinu. Ég held að vandfundnar séu þær fertugu konur sem hefðu valið sér þennan fatnað fyrir matar­ boð hjá vinahjónum, hvorki hér á landi né í Þýskalandi. Í heildina litið þá er þetta snjallt og mjög fyndið verk sem kemur skemmtilega á óvart. Þá er vert að benda á að í leikskránni er finna hárbeitta háðsgrein sem ber nafnið Hvernig skrifa á um Afríku, eftir rithöfundinn Binyavanga Wainaina. Þessi grein gerir leik­ skrána auranna virði og hana ættu allir að lesa. Uppsetningin er ekki gallalaus en verkið er vel leikið, efnistökin koma á óvart og vekja tilefni til umhugsunar um stóru vandamálin í Afríku. n Afríka afgreidd með ferskum hætti n Peggy Pickit sér andlit Guðs í Borgarleikhúsinu n Kristín Þóra fer á kostum Hverjum er verið að hjálpa? Peggy Pickit sér andlit Guðs vekur upp spurningar um hjálpariðnaðinn, hvort hann þjóni gefendum frekar en þiggjendum. Peggy Pickit sér andlit Guðs Höfundur: Roland Schimmelpfennig Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson Leikarar: Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Maríanna Clara Lúthers- dóttir og Valur Freyr Einarsson Þýðing: Hafliði Arngrímsson Leikmynd og búningar: Anna Rún Tryggvadóttir Lýsing: Þórður Orri Pétursson Sýnt í Borgarleikhúsinu Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús „Ég held að vand- fundnar séu þær fertugu konur sem hefðu valið sér þennan fatn- að fyrir matarboð hjá vinahjónum, hvorki hér á landi né í Þýskalandi. Heill heimur af pylsum! Hrísateig 47 Pylsur á pönnuna en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti. Gæðapylsur og skinkur án allra auka- og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir uppskriftum frá öllum heimshornum. Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla! PIPA R\TBW A • SÍA UPPFYLLIR SKILYRÐI NÁLARAUGANS Paleo GABS SCD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.