Skagfirðingabók - 01.01.2015, Qupperneq 45
KRÓKSARARNIR FRÁ JÓTLANDI
45
meðan aðrir sköruðu fram úr, t.d.
stelpurnar hans Jóns kennara. En Minna
tók öllu með jafnaðargeði. Hún hvatti
okkur með endalausu hrósi. Bang var
alltaf með henni því að grammófónninn
þagnaði ef hann var ekki sífellt trekktur.
Þetta voru dásamlegar stundir.“
Minna rifjaði upp að stelpurnar voru
hjá henni ár eftir ár og margar þeirra
orðnir duglegir dansarar. Hún segir
jafnframt eins og Guðrún hér að ofan,
að þessi síðustu ár fyrir stríð voru án
allra freistinga fyrir ungviðið. „Fáir höfðu
útvarp, sjónvarp náttúrlega ekki til, engin
sjoppa var á Króknum svo stúlkurnar
höfðu góðan tíma til æfa sig. Det var
virkelig skönt.“ Meðal verka sem Minna lét
börnin dansa við má nefna Blómavalsinn
eftir Tsjaíkovski, Tunglskinssónötuna og
Adagio cantabile eftir Beethoven, ýmsa
Vínarvalsa, Ungverskan dans og Tango
jalousi eftir Gade. Auk þess dönsuðu
stúlkurnar við músik úr La boheme og
Toscu. Hér var ekki ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur.
Minna hélt vel utan um börnin.
Hún skráir nöfn þeirra festulegri hendi
í stílabók: 1. hold og skráir skilvíslega
hver er búinn að gera upp. Í 1. hold voru
26–27 stúlkur, en í 2. hópi 16–17 og 20
í þriðja hópi. Svona var þetta eitthvert
haustmisserið og svipað eftir áramótin.
Í stílabókina hefur hún líka skrifað
„Leikfimismarch“:
1) Áfram gakk 16 spor
2) Hnébeygja, gangur 16 spor
3) Fílsgangur 10 sinnum
4) Áfram gakk með hendur út 8
sinnum, 8 sinnum upp
5) Flingstaða áfram, 1-2-3 upp með
vinstri hnébeygju
6) Gangur áfram með hægri hnébeygju
og út, beygja og niður 4 sinnum
7) 3 spor vinstri-hægri-vinstri-hægri,
hnébeygja og hendur upp 4 sinnum
8) Hendur upp, armsveifla áfram í
hring að gólfi, aftur til baka og upp,
vinstri-hægri-vinstri hægri
9) Vinstri-hægri-vinstri-hægri
10) Hliðhlaup í hring til hægri 8 spor og
sama til vinstri
11) 10 hopp áfram, hendurnar fylgja
Fleiri handrit að einstökum tímum eru
í þessu kveri og sýna glögglega að hér
var ekki kastað til höndum og Minna
bjó greinilega yfir mikilli þekkingu
og færni í margvíslegum dönsum og
líkamsæfingum.
Minna hætti 1942 að kenna en lagði
þó ekki hendur í skaut. Eyþór Stefánsson
stóð ár hvert fyrir sýningum nemenda í
barnaskólanum og Minna samdi fyrir
hann dansa. Hún minntist þess að
árið 1945 setti Eyþór upp „Gleðilegt
sumar“ eftir Guðmund Guðmundsson
skólaskáld. Minna samdi dansana og
Sissa hans Eyþórs, Sigríður Stefánsdóttir,
saumaði búningana.
Minna hafði hins vegar ekki sagt sitt
síðasta orð. Eftir að Bang dó dreif hún
sig suður í Reykjavík og fór á námskeið
í dansi og ballett, óvíst hins vegar hvar.
Síðan hélt hún heim á Krók full orku
og áhuga og kenndi 1972–74. Hún var
með þrjá hópa hvert ár, 5–8 ára, 8–10
ára og 11–12 ára. Í hverjum aldursflokki
voru allt að 20 börn; 1974 borgaði hvert
barn 100 kr. sem dugði fyrir kostnaði.
En þjóðhátíðarárið 1974 lét hún staðar
numið. Enn sem fyrr minnast nemendur
kennslunnar með mikilli væntumþykju
og gleði.