Skagfirðingabók - 01.01.2015, Síða 99
JÓN MARGEIR
99
verið þar þjónandi á árabilinu 1931–
1936 og aftur á árunum 1939 og 1942.
Eftir það var hún ekki heimilisföst í Bæ.
Að öllum líkindum hefur hún jafnan
haft samband við dreng sinn þar sem
hann var á næstu grösum við hana. Jón
í Móhúsi var einungis fósturfaðir Jóns
Margeirs svo að lögum samkvæmt var
hún einkaerfingi hans. Hálfum mánuði
eftir að hann týndist, hinn 3. mars 1942,
voru eftirlátnar eigur hans skrifaðar upp
af hreppstjóra og virtar. Þótt þær væru
ekki ýkja margar né fjölbreyttar gefa þær
talsverða hugmynd um hugsunarhátt og
væntingar þessa unga manns.
Í fyrsta lagi voru það bækur. Hann
átti bækur eins og Fegurð og snyrting,
Uppeldið, námsbækur í ensku, dönsku
og þýsku, ensk-íslenska orðabók og
enskar sögubækur. Hann átti talsvert af
fatnaði, meira en vænta hefði mátt af
fátækum pilti, m.a. spariföt með vesti
og rykfrakka, auk venjulegs fatnaðar og
sjóklæða. Hann átti rakáhöld og fleira
þar tilheyrandi og slifsisnælu og hann
átti myndavél. Það er greinilegt að Jón
Margeir hefur lagt upp úr því að geta
verið snyrtilega til fara. Síðast en ekki
síst átti Jón Margeir verulega upphæð í
peningum, sem honum hafði tekist að
safna saman til að afla sér menntunar.
Voru veraldlegir munir hans metnir á
kr. 1.929,46, þar af var peningaeign kr.
1.653,46.13
Þann 23. apríl var haldið opinbert
uppboð á eftirlátnum eigum Jóns Mar-
geirs. Þar voru seld 58 uppboðsnúmer á
samtals 520 krónur, 35 aura. Það var um
helmingi hærri upphæð en matið sagði
til um.14
Nú fóru í hönd ömurlegir tímar í
Móhúsi þótt löngu væri annar drengur
kominn þangað til uppeldis. Það var
Jóhannes Pálsson, síðar verkamaður í
Hofsósi, fæddur á Siglufirði 15. nóvember
1933. Höfðu þau Jón og Margrét dóttir
hans tekið hann að sér nokkurra mánaða
gamlan. Jón ,bis‘ var orðinn 76 ára gamall
og slitinn af þrældómi og vosbúð, en hann
hafði aldrei verið upp á aðra kominn.
Heyskaparfólk í Bæ. Frá
vinstri talið: Hjörtur
Ólafsson, Jóhannes Gísli
Hjartarson, Garðar
Dagbjartsson, Jóhann
Jakob Kristinsson á Ytra-
Ósi, Björn Jónsson bóndi,
Bogga vinnukona (Björg
Guðný Jónsdóttir), Jón
Konráðsson hreppstjóri í
Bæ, Þóra Sigurgeirsdóttir
á Syðra-Ósi.
Eig.: Haukur Björnsson
13 HSk.: Uppskrifta og virðingabók Hofshrepps, 3. mars 1942.
14 HSk. 441, folio: Dagbók Björns Jónssonar í Bæ.