Skagfirðingabók - 01.01.2015, Síða 147
SKÍRNARFONTURINN Í HÓLADÓMKIRKJU
147
VIÐAUKI
17 Birt hér með nútímastafsetningu og ritningarstöðunum bætt við. Orðfærið í lok bænarinnar „glóanda anda“
skírskotar kannske að vissu leyti til reykelsisfórnarinnar eða reykelsisaltarisins og getur þannig tengt yfir í
eirkerið/hafið. – Í Þingeyrakirkju er fontur frá því í lok 17. aldar og á honum eru myndir sem tákna skírnina.
Þar er held ég ekki vatnskerið en hins vegar förin yfir Rauða hafið og skírn Jesú. (Einar Sigurbjörnsson).
SKÍRNARBÆN LÚTHERS
Úr Grallaranum, Hólum 1594.
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem með stríðu
þíns réttlætis, hefur með vatnsflóði fyrirdæmt
hina vantrúuðu veröld, og með þinni mikilli
miskunn frelsaðir hinn trúlynda Nóa og átta
sálir með honum (1Mós 7, sbr. 1Pét 3.18–
22) og drekktir hinum harðúðuga Faraó
með öllum sínum í Hafinu rauða og fluttir
þinn lýð, Ísrael, þurrum fótum þar í gegnum
(2Mós 14.15–31), þar með teiknandi þessa
laug þinnar tilkomandi skírnar. Og fyrir
skírn þíns elskulega sonar, Drottins vors Jesú
Krists (Matt 3.13–17), hefur þú bæði Jórdan
og öll vötn helgað og innsett til hjálpsamlegs
flóðs og ríkulegrar hreinsunar syndanna,
vér biðjum þig fyrir sömu þína ósegjanlegu
miskunnsemi, að þú virðist þennan N.
náðuglega að álíta og hann með réttri trú að
gæða, að fyrir þessa heilsusamlegu vatnslaug
drekkist af honum og máist það allt sem
honum er af Adam meðfætt og hann sjálfur
þar til verkað hefur og að hann út af tölu
vantrúaðra manna fráskilinn í örk heilagrar
kristni þurr og öruggur varðveittur verði,
jafnan með glóanda anda og glaðværri
von þínu nafni þjóni svo hann með öllum
trúlyndum maklegur verði að öðlast eilíft
líf þíns fyrirheits, fyrir Jesúm Krist, vorn
Drottin.17
ÚR ÚTTEKTUM
HÓLADÓMKIRKJU
Halldórukirkja 1627–1758:
1628: Fonthúfa yfir fonti, koparkross. (Bps.
B VIII 4)
1657: Fonthúfa yfir fonti, koparkross lítill.
(Bps. B VIII 4 og 5)
1685: Fonthúfa yfir fonti, koparkross lítill.
. . . / Hér að auki auglýsist að sá
háverðugi sálugur herra Gísli Þorláks-
son (loflegrar minningar) hefði dóm-
kirkjunni til eignar og ornamenta
aukalagt þetta eftirfylgjandi, svo sem
það var nú sýnt, afhent og framborið:
. . . 8. Vandað og merkilega úthöggvið
verk á skírnarfontinum. (Jón Þ. Þór,
147 og 150, leiðrétt: afsent > afhent)
1692: . . . skírnarfontur með vandað verk
og vel úthöggvið, virki eður grind þar
umhverfis, vel vandað og gjört með
flötu pílárasmíði og listum, hurð fyrir
á veltum, allt farvað með fjalatröppum
í botni, himinn yfir úthöggvinn
farvaður, og þetta allt merkilega um-
vendað, sem sálugi herra biskupinn
m(agister) Jón [Vigfússon] gjöra lét.
(JÞÞ, 176)
1698: Hér að auki auglýsist að sá sál(ugi)
Herra, Hr. Gísli Thorláksson, hafði
dómkirkjunni til eignar og orna-
menta aukalagt þetta eftirfylgjandi: . . .
og merkilega úthöggvið verk á skírnar-
fontinn, . . . Hér að auki hefur eðla
göfug matróna, Guðríður Þórðardóttir