Fréttatíminn - 11.03.2016, Page 10
Fréttaskýring fyrir barnið í okkur
Óbærilegur ótti við
forsetaframboð makans
Ég hef verið að hugsa um hvaða kosti
forseti þarf að hafa.
Og það skrítna er að ég hef þá alla.
Fleiri konur þurftu að leita
í Konukot vegna heimilis-
leysis í fyrra en árin á
undan. Meirihlutinn á við
vímuefnavanda að stríða
en nokkrar konur stríða við
geðfötlun eða þroskahömlun
og fá ekki búsetu við hæfi.
Þóra Kristín Ásgeirsóttir
tka@frettatiminn.is
„Staðan á leigumarkaði er kannski
erfið fyrir venjulegt millistéttar-
fólk, fólk getur þá reynt að gera sér
í hugarlund hvernig hún er fyrir
fólk sem er jaðarsett í samfélaginu,
eins og geðfatlaðar konur eða kon-
ur með þroskafrávik, sem hafa
bara úr örorku að spila,“ segir
Svala Jóhannesdóttir, verkefna-
stýra Konukots, næturathvarfs
Rauða krossins fyrir heimilislausar
konur en komum þangað fjölgaði
mikið í fyrra samanborið við árin
á undan, samkvæmt ársskýrslu
Rauða krossins.
75 prósent af gestum Konukots
í fyrra eiga við vímuefnavanda
að stríða, hvort heldur var um
að ræða lögleg eða ólögleg efni.
Um 22 prósent gestanna stríða
við bæði vímuefna og geðrænan
vanda, en 34 prósent gesta átti við
geðrænan vanda að stríða.
Fleiri konur með geðrænan
vanda leituðu í Konukot árið 2015
en áður hefur verið. Helstu ástæð-
ur þess eru skortur á búsetuúr-
ræðum fyrir geðfatlaðar konur og
erfið staða á almennum leigu-
markaði. Tólf konur sem leituðu í
Konukot í fyrra áttu ekki við neinn
vímuefnavanda að stríða heldur
var vandinn einungis geðræns
eðlis auk þroskafrávika. „Nokkrar
konur festast í heimilisleysi af því
þær vantar búsetu með stuðningi.
Þær ráða ekki við að búa einar,“
segir Svala. „Sumum hefur verið
sagt upp leiguhúsnæði, þar sem
eigendur vilja selja eða leigja ferða-
mönnum og þær ráða ekki við að
koma sér inn á leigumarkaðinn
aftur. Framboðið af ódýru hús-
næði og herbergjum virðist hafa
minnkað af einhverjum ástæðum.“
Tólf konur með búsetu komu í
Konukot. Helsta ástæða þess var
að þær voru að leita í öruggt rými
og voru sumar að leita í félags-
skap vegna einmanaleika. „Þetta
eru oft konur sem búa á heimilum
fyrir alkóhólista eða fíkniefnaneyt-
endur og eru að leita sér að félags-
skap, hlýju og stuðningi en hér er
alltaf starfsmaður á vakt og sjálf-
boðaliðar.“
Alls 14 konur eða fimmtán
prósent leituðu til Konukots vegna
heimilisofbeldis. Þær flúðu ofbeld-
isfullar aðstæður en voru undir
áhrifum vímuefna og gátu þess
vegna ekki sótt í Kvennaathvarfið.
Fimm af konunum áttu heimili og
níu voru heimilislausar. Sjö kon-
ur af erlendum uppruna leituðu
í Konukot. Sex þeirra voru með
vímuefnavanda og fjórar voru að
flýja heimilisofbeldi.
Konukot lokar yfir daginn, í sjö
tíma virka daga og þrjá tíma um
helgar. Svala segir að konurnar séu
þá á gangi um göturnar á meðan.
Þær eigi oftast engan að sem þær
leiti til á meðan athvarfið er lokað.
Staðan á leigu-
markaði er kannski
erfið fyrir venjulegt
millistéttarfólk, fólk
getur þá reynt að
gera sér í hugarlund
hvernig hún er fyrir
fólk sem er jaðarsett
í samfélaginu, eins og
geðfatlaðar konur eða
konur með þroskafrá-
vik, sem hafa bara úr
örorku að spila.
Svala Jóhannesdóttir, verkefnastýra
Konukots, næturathvarfs Rauða kross-
ins fyrir heimilislausar konur.
Metaðsókn í Konukot
Konukot Fleiri geðsjúkar og þroskahamlaðar konur lenda á götunni
Heilbrigðismál Mikið veikt fólk fær ekki réttu lyfin
Bagalegur lyfjaskortur
Nokkur algeng lyf sem
meðal annars eru notuð af
mikið veiku fólki, hafa verið
ófáanleg í apótekum í meira
en mánuð. Lyfsali segir þetta
hafa í för með sér óþægindi
og aukinn kostnað bæði fyrir
sjúklinga og kerfið.
Fjórar lyfjategundir verið nánast
ófáanlegar í íslenskum apótekum í
nokkurar vikur og eru þau meðal
lyfja á svokölluðum biðlista hjá
birgjum. Ekki er óalgengt að tíma-
bundinn skortur sé á einhverjum
lyfjategundum hjá íslenskum birgj-
um en oftast er hægt að gefa sam-
heitalyf í staðinn. „Lyfjaskorturinn
getur hinsvegar haft alvarlegar
afleiðingar ef ekki eru til önnur lyf
sem gera svipað gagn,” segir Aðal-
steinn Loftsson, lyfsali hjá Lyfju.
„Nú er skortur á nokkrum slíkum
lyfjum og getur hann valdið veru-
legum óþægindum fyrir sjúklinga.“
Norgesic er algengt lyf við bak-
verkjum sem er bæði vöðvaslak-
andi og verkjastillandi. „Lyfið getur
verið afar nauðsynlegt fyrir fólki
með þráláta bakverki eða brjósklos.
Mycostatin mixtúra við sveppasýk-
ingum í munni hefur ekki fengist
allan febrúar og það sem er af er
mars. Lyfið er til dæmis mikið gefið
krabbameinssjúklingum og fólki
sem er alvarlega veikt. Við fengum
tvo sjúklinga í apótekið í síðustu
viku sem þurfa þá bara að vera með
sveppasýkingu í munni því það er
ekkert sambærilegt lyf sem getur
bætt ástandið. Þá er einnig skortur
á hjartalyfinu Isoptin retard. Þá
hefur Kåvepenin mixtúra ekki
verið til síðan í febrúar en það er
vægasta sýklalyfið á markaðnum og
gefið ungum börnum.“
Að sögn lyfsala og lyfjabirgja sem
Fréttatíminn hefur rætt við, hafa
slæm veður haft áhrif á lyfjadreif-
ingu til landsins í vetur. Tafir hafa
orðið á gámum og skortur hefur
verið á mörgum vörunúmerum. | þt
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
ÖRYGGIÐ
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Dólómítar & dalalíf
Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Komdu með í dásamlega ferð um Dólómítana, þar sem
farið verður í spennandi skoðunarferðir í rútu og léttar
gönguferðir um fögur fjallasvæði Austurríkis, Þýskalands og
Ítalíu. Við upplifum m.a. náttúrufegurð Misurina vatnsins,
skoðum Innsbruck borg og förum með kláfi upp á hæsta fjall
Þýskalands, Zugspitze. Ferð sem auðgar andann!
Verð: 214.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
18. - 26. júní Sumar 9
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG?
HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIÐ DREIFING@FRETTATIMINN.IS
10 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016