Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 94
Hönnunarstofan Döðlur, í
samstarfi við Stáss arkí-
tekta, hafa smíðað og hann-
að húsgögn fyrir ODDSSON
hótel í JL húsinu. Allt frá
ljósum, borðum, stólum
og skápum verða
til sýningar.
Döðlur hanna
húsgögn
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í & s e p t . - n ó v.
TENERIFE
19.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í & s e p t . - o k t .
TORONTO
14.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - s e p t e m b e r
VARSJÁ
17.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í & s e p t e m b e r
VILNÍUS
14.999 kr.f rá *
94 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Líf okkar skriðdýranna
Perluvinirnir Ljónslöpp og Lækjaleppur
Jóhann Þór Vilhjálmsson er stadd-
ur í lyftunni hans Spessa í gömlu
Kassagerðinni á Laugarnesi. Hann
fermist á sunnudag. Áður en hann gengur í fullorð-
inna manna tölu fer hann yfir sínar lægðir og hæðir
í lífinu á ferðalagi upp fjórar hæðir hússins.
„Mér líður verst þegar ég er kvíðinn fyrir því að
mæta í skólann. Það gerist ekki oft en á tímabili var
það þannig,“ segir Jóhann um sína lægð í lífinu. Þá
var Jóhann var í sjöunda bekk í barnaskóla og beið
óþreyjufullur eftir gagnfræðaskóla. „Það giltu sömu
reglur fyrir sjöunda og fjórða bekk, sem margir voru
orðnir þreyttir á. Við vorum orðin of gömul fyrir
þetta og það var leiðinlegt samband á milli nemenda
og kennara, það var erfitt í skólanum þá.“
Jóhann segir skólann stóran þátt í lífi sínu, en erf-
itt að kvíða fyrir honum. „Það er erfitt að vera þar í
marga klukkutíma ef manni líður ekki vel.“ Nú er Jó-
hann kominn í Réttarholtsskóla í áttunda bekk. „Það
er allt annað líf, meira frelsi og gaman í skólanum.“
Sínar hæstu hæðir upplifir Jóhann þegar liðið
hans sigrar í íþróttum eða þegar hann er valinn
bestur. „Þegar við æfum vel fyrir leik og vinnum,
það finnst mér skemmtilegast.“ Það er þó einn dag-
ur sem er Jóhanni minnisstæðari en aðrir. „Þegar
ég var yngri þá las ég allar Harry Potter bækurnar
og horfði á myndirnar. Ég var 12 ára þegar pabbi fór
með mig í Universal garðinn í Harry Potter veröld-
ina. Það var ótrúlegt, ég fékk sprota og gat farið í
tæki í galdraheiminum. Litla systir mín og mamma
fóru í Disney garðinn á sama tíma, ég var ekkert
öfundsjúkur. Ég var svo glaður þennan dag.“ | sgk
Útskriftarverkefni Corto Jabali í vöru-
hönnun árið 2013 var byggingarefni
sem hægt væri að búa til úr efnum
sem til staðar eru á Gaza-svæði Palest-
ínu. Innflutningur á svæðið er bann-
aður, byggingarefni þar með talin.
Þetta gerir Palestínumönnum erfitt
að endurbyggja hús sem eyðilagst
hafa vegna sprengjuárása á svæðinu.
Corto ætlaði að fara til Palestínu og
kynna byggingarefnið, en komst fljót-
lega að því að það var ekki raunhæft.
„Ég komst að raun um að bygg-
ingarefni væri dropi í haf vanda-
mála Palestínumanna. Þeir vilja ekki
byggja húsin sín aftur, heldur komast
úr þessu helvíti á jörð sem Gaza er.“
Eins sé mikill gróði af ólögleg-
um innflutningi sements inn á
svæðið, sem sé notað til bygg-
ingar og í sprengiefni. Sá ólög-
legi innflutningur myndi ekki
stöðvast þó Gaza Brick kæmi
til sögunnar. Corto segir hafa
verið lærdómsríkt að þurfa að
gefa Gaza Brick upp á bátinn.
Corto hyggst enn fara til Palestínu og
reyna að verða Palestínumönnum að
liði, en á þeirra forsendum og með
meiri heildarmynd á ástandið.
„Hér var ég bara strákur
á Íslandi að reyna að redda
málum á Gaza. Auðvitað var
það ekkert hægt. Vandamálið
á Gaza verður bara lagað með
því að breyta samskiptum
milli Palestínu- og Ísraels-
manna, ekki með byggingar-
efnum.“ | sgþ
Hönnuður Gaza Brick hættur við í bili
Vandi Gaza stærri en byggingarefnaskortur
Meira frelsi í gaggó
Lyftan #9
Spessi
Jóhann beið óþreyjufullur eftir gaggó til að losna undan ströngum reglum barnaskólans.
35 þúsund hafa keypt sér miða á
sýningu söngleiksins Mamma Mía
í Borgarleikhúsinu. Væri Mamma
Mía stjórnmálaflokkur myndi þessi
skari duga fyrir 18% atkvæða; meira
fylgi en Framsókn, Björt framtíð,
Vinstri græn og Samfylkingin njóta
nú í könnunum. Fylgi Mömmu Míu
er aðeins átta sýningum frá því að
verða meira en fylgi Vinstri grænna
og Samfylkingarinnar samanlagt.
Flokkarnir geta kannski lært af
Mömmu Míu; sé músíkin góð skiptir
engu þótt söguþráðurinn sé rugl.
Aðeins Sjálf-
stæðisflokkur
og Píratar
stærri en
Mamma Mía
Mynd | Grímur Bjarnason