Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 27
Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku.
– Láttu það eftir þér!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6-
04
29
Guðmundi Steingrímssyni hjá
Bjartri framtíð fram frumvarp til
stjórnskipunarlaga með sérákvæði
um breytingu stjórnarskrár.
„Frumvarp þetta er flutt í þeim til-
gangi að ná sem víðtækastri sátt
á Alþingi um framhald og lyktir
þeirrar víðtæku endurskoðunar
stjórnarskrárinnar sem staðið hef-
ur undanfarin ár,“ segir í greinar-
gerð frumvarpsins. Árni Páll hefur
því lagt nokkuð á sig til að koma
málum á núverandi stað.
Fyrir er staða Árna Páls veik
innan flokksins og því getur and-
staða við tillögur stjórnarskrár-
nefndar veikt formanninn enn
fremur. Þess ber þó að geta að
sáttin var ekki víðtækari en svo að
frumvarpið var samþykkt með 25
atkvæðum á þingi. Strax við sam-
þykkt mátti því vera ljóst að engin
„víðtæk sátt“ ríkti um þessar
lyktir mála. Í atkvæðagreiðslu
um málið mátti þegar sjá að Árni
Páll hafði ekki tryggt stuðning
eigin flokksmanna við sáttatil-
löguna sína. Meðal þeirra sem
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
voru Jóhanna Sigurðardóttir, fyrr-
verandi formaður Samfylkingar-
innar, Mörður Árnason, Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir og Valgerður
Bjarnadóttir. Þá er vert að benda
á að sáttahugur Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar var ekki meiri
en svo að bæði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og nú fjármálaráðherra, og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins
og forsætisráðherra, sátu hjá við
atkvæðagreiðslu um frumvarp og
þingsályktunartillögu sem boða
átti víðtæka sátt um stjórnarskrár-
breytingar.
Stjórnalagaráðsfulltrúi vill
heildarendurskoðun
„Ég er frekar neikvæður á að
þessar tillögur séu til framdrátt-
ar,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson,
nefndarmaður í stjórnlagaráði og
gjaldkeri Samfylkingarinnar, um
tillögur stjórnarskrárnefndar. „Ég
tel aðalatriði málsins að við náum
að klára heildarendurskoðun
stjórnarskrárinnar á næsta kjör-
tímabili. Ég er að vonast til þess að
stjórnarandstaðan nái vel saman
um það markmið og geti unnið að
því. Ég vil þá bara að við einhend-
um okkur í það að klára málið í
lýðræðislegu ferli eins og var á
síðasta kjörtímabili.“
Vilhjálmur segir að tillögur
stjórnarskrárnefndar séu ekki
það góðar að forsvaranlegt sé að
hætta á að vinna verði í stjórnar-
skrá árum og jafnvel áratugum
saman. „Ég held að samþykkt
þessarar tillögu stjórnarskrár-
nefndar sé ekki varða á leiðinni til
heildarendurskoðunar stjórnar-
skrárinnar. Þetta eru ekki nógu
góð ákvæði til að standa í stjórnar-
skránni, hugsanlega í áratugi, ef
mistekst að ná fram heildarendur-
skoðun. Ég held að flokkarnir sem
raunverulega vilja nýja stjórnar-
skrá eigi ekki að rugla kjósendur
með því að samþykkja eitthvað
sem er ekki gott núna með þeim
formerkjum að breyta eigi aftur á
næsta kjörtímabili.“
Vilhjálmur segir að af því sem
komið hafi úr stjórnarskrárnefnd
forsætisráðuneytisins sé þjóðarat-
kvæðagreiðsluákvæðið „þolanleg-
ast“ af vinnu nefndarinnar.„Vissu-
lega er það svo að í samanburði
við 26. grein stjórnarskrárinnar
[málskotsrétt forseta], eins og hún
stendur í dag, þá er hún framför.
Hinsvegar má alveg spyrja sig ef
flokkarnir eru allir tilbúnir í það
að leyfa þjóðaratkvæðagreiðslu,
að frumkvæði kjósenda, spyr
maður sig hvers vegna þeir gera
það ekki bara með gömlu aðferð-
inni. Það er að segja með því að
samþykkja stjórnarskrárbreytingu
núna í lok kjörtímabilsins og hún
yrði svo staðfest af nýju þingi eftir
næstu kosningar. Hvers vegna þarf
að fara með það í þjóðaratkvæða-
greiðslu?“
Afturhaldsöflin sátt
Valgerður Bjarnadóttir, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í stjórnarskrárnefnd, hefur
bent á að vinna nefndarinnar sé langt frá
því að vera byltingarkennd. Hún segir, í
grein sem birtist í vefritinu Herðubreið,
nefndina hafa starfað af heilindum en
útkoman sé það sem hún er. „Þetta var
engin svikanefnd, eins og einhverjir vilja
halda fram. Allir störfuðu af heilindum,
enginn gekk frá borði. Að leikslokum er
útkoman augljós. Útkoman er sú sem aft-
urhaldsöflin geta fallist á. Gjörið svo vel.“
Valgerður gengur lengra og tekur
hverja tillögu nefndarinnar fyrir. Um
auðlindaákvæðistillöguna segir hún:
„Ég óttast það ákvæði ekki. Tekinn er
af allur vafi um að auðlindin er í eigu
þjóðarinnar, það skiptir höfuðmáli. Ég
er ósammála þeim sem segja að ákvæðið
rammi inn kvótakerfið.“ Þjóðaratkvæða-
greiðsluákvæðið segir hún gamaldags
og jafnvel úrelt. „Einungis má kalla eftir
atkvæðagreiðslum um lög sem Alþingi
hefur samþykkt. Þröskuldur, sem segir
að 25 % atkvæðisbærra manna þurfi að
greiða atkvæði gegn lögum til þess að þau
séu felld úr gildi, er of hár.“ Um ákvæði
um náttúru og umhverfisnefnd segir Val-
gerður að minnstur ágreiningur hafi verið
um meðal nefndarmanna. „Á lokametr-
unum voru hins vegar uppi kröfur um
orðalag um inntak og afmörkun almanna-
réttar. Sú umræða endaði með að eftir-
farandi setningu var bætt inn í ákvæðið:
Mælt skal nánar fyrir í lögum um inntak
og afmörkun almannaréttar. – Ég óttast
nokkuð þetta orðalag þar sem mér finnst
það mjög óljóst og átta mig, satt að segja,
ekki alveg á hvaða hagsmuni er verið að
verja, en tel þó að það séu hagsmunir
landeigenda.“
Valgerður Bjarnadótt-
ir, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í stjórnar-
skrárnefnd, hefur
sagt tillögur nefndar-
innar úreltar og það
sem afturhaldsöflin
geti fallist á.
Árni Páll Árnason,
formaður Sam-
fylkingarinnar,
er einn höfunda
sáttarinnar sem
stjórnarskrárnefnd
átti að boða.
|27fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016