Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 16
Mynd | Rut „Það má segja að sakleysið sé þeirra mesta fötlun, þau eru í stórhættu á götunni,“ segir Guðrún Bryndís Karlsdóttir sem á einhverfan son sem er um tvítugt. Einhverfu fólki er hættara við að sækja í hvers kyns áhættuhegðun en það getur verið erfitt að fá viðeigandi hjálp þegar það lendir í þroti. Guðrún Bryndís segir að sonur sinn hafi átt erfitt með að fóta sig í Hlíðaskóla, sem sé skóli án að- greiningar. „Hann er ekki læs á tilfinningar annarra, aðstæður eða svipbrigði, hann getur ekki varist þeim sem vilja nota hann og hafa gott af honum,“ segir hún. „Það virðist vera sem ákveðnir einstak- lingar nái strax tökum á þessum börnum. Þau langar svo mikið að vera samþykkt og viðurkennd og reyna að kaupa sér samþykki með öllum ráðum. Það er hægt að láta þau kaupa fíkniefni, jafnvel stela, þau gera hvað sem er.“ Vísað af geðdeildinni Hún segir að sonur sinn hafi farið að fá örorkubætur 18 ára. Skóla- félagi hans úr grunnskóla hafi þá farið að hafa samband við hann og fengið hann til að kaupa kanna- bis fyrir sig og vini sína. Neyslan hafi fljótlega farið úr böndunum. „Við reyndum allt til að ná til hans en allt kom fyrir ekki. Hann var orðinn mjög ólíkur sjálfum sér og farinn að vera ofbeldisfullur heima fyrir.“ Guðrún Bryndís segir að haustið 2013 hafi sonur sinn farið í meðferð á Vog, á unglingaganginn. „Honum var ekki boðið að fara í framhalds- meðferð enda skildi hann hvorki meðferðina né hvað var almennt að gerast í kringum hann,“ segir hún. „Þegar hann var tvítugur fórum við með hann á geðdeild, að ráði sálfræðings sem hann gekk til um tíma. Læknarnir þar ákváðu að leggja hann inn á geðgjörgæslu og svipta hann sjálfræði í 48 tíma vegna gruns um geðrof af völdum kannabisneyslu. Þar sem hann var ekki með dæmigerð einkenni geðrofs, var hann eftir tæpa viku útskrifaður af geðdeild og vísað á Vog. Uppgefin ástæða útskriftarinnar var undirliggjandi einhverfa sem væri ekki geðsjúkdómur og því ætti hann ekki erindi á geðdeild. Þá var okkur sagt að hegðun hans gerði aðra sjúklinga órólega, hann gengi um gólf í sífellu og það truflaði aðra. Meðan á þessu stóð millifærði gamli skólafélaginn peninga af reikningi sonar míns og hótaði okkur, foreldrum hans og systk- inum, íkveikju, nauðgunum, morði og líkamsmeiðingum, ef við skipt- um okkur af. Við gáfum skýrslu hjá lögreglu um fjárdráttinn, en var sagt að þar sem sonur okkar væri fjárráða yrði hann að kæra sjálfur og gefa skýrslu. Það vildi hann ekki gera enda skilur hann ekki hug- takið misnotkun og er auk þess dauðhræddur við félagann sem var á skilorði fyrir önnur brot. Hvarf með ferðatöskuna Guðrún Bryndís segir að á eftir innlögnina á geðdeildina hafi sonur sinn ætlað á Vog, ferðataska með náttfötum og tilheyrandi hafi komin út í bíl. „Þegar við gengum að bílnum hringdi síminn hans og hann tók strikið og hvarf, lét ekki sjá sig meira þann daginn. Helgina eftir hvarf hann með ferðatöskuna, hann svaraði ekki síma og við vissum ekki hvað varð af honum. Ég hringdi í hann á hverjum degi og þegar hann svaraði mér loksins, var hann í herbergi á gistiheimili við Hverfisgötu sem skólafélaginn Móðir einhverfs manns í vímuefnavanda segir að hann fái enga hjálp Er verið að framleiða fatlað útigangsfólk? Guðrún Bryndís Karlsdóttir segir að syni sínum hafi verið ekið á bensínstöð í Hafnarfirði eftir meðferð í Krýsuvík og hann skilinn þar eftir með ferðatösku. var búinn og hann hafði ekkert borðað í nokkra daga. Hann féllst á að koma heim að borða og í lok mánaðarins kom hann alkomin heim, mjög vannærður. Næstu mánuðir voru skelfilegir, í byrjun mánaða þar til peningarnir hans voru búnir var hann vinsæll meðal félaganna. Hann var mjög tortrygg- inn gagnvart fjölskyldunni og ásak- aði okkur um að hafa lagt hann inn á geðdeild. Hann kom ítrekað heim þannig að það stórsá á honum í andliti, hann haltraði og fötin hans rifin með sparkförum. Hann hefur ekki getu til að berja frá sér og einu áverkarnir á höndum hans voru í lófunum, rispur vegna falls. Skýr- ingin sem hann gaf var að hann hafi dottið.“ Skilinn eftir á bensínstöð Hún segist hafa gert á þessu tímabili ítrekaðar tilraunir til að fá réttindagæslumann fatlaðra í Reykjavík til að bregðast við – þær tilraunir hafi reynst árangurs- lausar. „Við óskuðum aftur eftir innlögn á Vog, en þar sem hann hafði ekki mætt á þriðjudeginum eftir útskrift á geðdeild þurfti hann að bíða í, minnir mig, þangað til í september. Þegar ég fékk loksins samband við fulltrúann hans, var hægt að koma upplýsingum um einhverfu hans til skila. – Dvölin á Vogi var 10 dagar, en aftur var honum ekki boðið upp á eftirmeðferð. Þegar öll sund virtust lokuð var bent á Krýsuvík og langtímameð- ferðina þar. Hann fékk þar inni en var vísað út eftir tvær vikur vegna einhverfunnar. Við höfðum beðið Félagsþjónustuna um að veita honum liðveislu fyrir fatlaða inni á Krýsuvík en það vildu þeir ekki þar sem Krýsuvík tilheyrði öðru sveitarfélagi. Þegar hann yfirgaf meðferðina þar var honum ekið á bensínstöð, þar var hann skilinn eftir með ferðatösku. „Borgin hafði lofað að láta hann hafa íbúð en þó ekki ef hann gæti búið hjá foreldrum,“ segir Guðrún Bryndís. „Hann vildi því ekki koma heim en fékk að fara til afa síns, þar sem hann átti að dvelja í nokkra daga, meðan hann biði eftir íbúð. Síðan er liðið rúmt ár og hann er enn að bíða. Mér skilst að fimm einhverfir kannabis- neytendur séu að bíða eftir búsetu- úrræðum hjá borginni en engin neyðarúrræði eru til staðar. Á meðan gerist ekkert í hans málum. Hann fær liðveislu heim til afa síns, þrisvar í viku. Ef hann byggi einn í íbúð fengi hann miklu meiri þjónustu. Það er ver- ið að spara á aðstandendum og þannig brenna þeir hraðar upp. Að mínu viti er verið að framleiða fatlað útigangsfólk með þessari vanrækslu.“ hafði reddað honum. Eftir tvær vikur þar var hann búinn að fá yfir- drátt og taka öll möguleg smálán og afhenda vininum. Peningurinn Hann var mjög tortrygginn gagn- vart fjölskyldunni og ásakaði okkur um að hafa lagt hann inn á geðdeild. Hann kom ítrekað heim þannig að það stórsá á honum í andliti, hann haltraði og fötin hans rifin með sparkförum. Þú færð pottþétt starf Í verk- og tækninámi bjóða ölmörg fyrirtæki upp á vinnustaðanám þar sem þú öðlast dýrmæta starfsreynslu. Að námi loknu standa þér til boða ótal spennandi og vel launuð störf, þú hlýtur alþjóðlega viðurkennd starfsréttindi og auk þess góðan grunn að ölbreyttu framhaldsnámi. Fleiri en 160 fyrirtæki í iðnaði hafa lýst yr vilja til að ea vinnustaðanám. Kynntu þér málið á www.si.is. Samtök iðnaðarins 2016 | 591 0100 16 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.