Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 24
Fyrirtækin í körfunni
Bankar: Íslandsbanki, Arion banki og Landsbanki. Tryggingafélög: VÍS,
Sjóvá og TM. Flutningar: Icelandair, Eimskip og Samskip. Olíufélög:
N1, Skeljungur og Olíuverslun Íslands. Fjarskipti: Síminn og Vodafone.
Verslun: Hagar, Kaupás og Norvik. Landbúnaður: KS, Auðhumla og
Sláturfélag Suðurlands. Heildsala: Innnes, Ölgerð Egils Skallagrímsson-
ar, Íslensk ameríska og Natan Olsen.
24 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Fyrirtæki á innanlands-
markaði hafa ekki notið við-
líka góðæris og kvótafyrir-
tækin en eru samt flest búin
að jafna sig svo af Hruninu
að þau eru farin að borga
eigendum sínum arð.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Samanlagður útgreiddur arður og
hækkun eigin fjár í 24 af stærstu
fyrirtækjum landsins á innanlands-
markaði var nálægt 368 milljörðum
á árunum 2009 til 2014. Ef við tökum
viðskiptabankana þrjá út úr dæminu
þá standa eftir 146 milljarðar króna.
Í árslok 2009 var samanlagt eigið fé
þessara fyrirtækja um 201 milljarður
króna. Bættur hagur þeirra á þessu
tímabili er því um 73 prósent af eigin
fé þeirra í upphafi tímabilsins. Sam-
bærilegt hlutfall hjá sjávarútvegsfyr-
irtækjunum, sem fjallað er um á blað-
síðu 18 í Fréttatímanum þessa viku, er
304 prósent.
Munurinn er mikill. Þessi ávöxtun
jafngildir um 11,6 prósent hjá fyrir-
tækjunum á innanlandsmarkaði en
um 32,2 prósent hjá kvótafyrirtækj-
unum. Að hluta til má rekja meiri arð-
semi kvótafyrirtækjanna til ódýrra
aðfanga eða lágs veiðigjalds en að
hluta til lágs gengis krónunnar.
Heildsalan gengur vel
Þegar skoðað er milli geira hvernig
hagur fyrirtækjanna hefur dafnað
tróna bankarnir yfir öðrum, þeir
drottna yfir viðskiptalífinu. Saman-
lagður hagur þeirra frá 2009 til 2014
er um 222 milljarðar króna á núvirði.
Ávöxtun þeirra á eigið fé er hins vegar
ekki mikil eða um 50 prósent.
Þær atvinnugreinar sem hafa
braggast best eru verslunin og heild-
salan. Samanlagður hagur þriggja
verslunarfélaga var á tímanum 18,3
milljarðar króna á núvirði. Eigið fé
þeirra var um 12,1 milljarðar króna
í árslok 2009 og samanlagður út-
greiddur arður og hækkun eigin fjár
um 150 prósent af eigin fé í upphafi.
Það er um helmingur af því sem
eigendur sjávarútvegsfyrirtækja upp-
skáru á sama tíma. Heildsalarnir eru
hins vegar í flokki með kvótakóngun-
um. Samanlagður arður og hækkun
eigin fjár fjögurra heildsölufyrirtækja
á tímabilinu er tæplega 13 milljarðar
króna á núvirði, eða um 330 prósent
af eigin fé þeirra árið 2009.
Íslendingar hafa því endurreist
bæði verslunarfélögin og heildsalana
með viðskiptum sínum frá Hruni.
Samanlagður bættur hagur þessara
fyrirtækja er um 30 milljarðar króna.
Til samanburðar er bættur hagur 30
stærstu kvótafyrirtækjanna um 230
milljarðar króna á sama tíma.
Fjarskipti ganga illa
Ef horft er yfir hinar atvinnugrein-
arnar þá er bættur hagur trygginga-
félaganna 21 milljarður eða 57 pró-
sent ofan á eigið féð eins og það var
í árslok 2009. Í flutningastarfsemi er
bættur hagur 63 milljarðar króna á
Rekstur Fyrirtæki á innanlandsmarkaði jafna sig af Hruninu
Dágóður hagnaður og
vaxandi arðgreiðslur
núvirði eða 85 prósent af eigin fénu
2009. Olíuverslunin nær næstum að
tvöfalda eigið féð 2009, samanlagður
bættur hagur hennar er 12,8 milljarð-
ar króna. Og fyrirtæki í landbúnaði
hafa bætt hag sinn um 13,2 milljarða
króna eða 53 prósent.
Allt er þetta ágæt frammistaða en
ekki yfirþyrmandi góð. Að jafnaði er
þetta um 11,6 prósent ársávöxtun á
eigið fé, sem þykir ágætt meðaltal
í öðrum löndum. Í ljósi þess að ís-
lensku fyrirtækin voru mörg hver í
rústum eftir Hrunið er þessi bati ekki
umtalsverður.
Það eru hins vegar aðeins fjarskipt-
in sem skila lélegri niðurstöðu. Sam-
anlagður útgreiddur arður og hækk-
un eiginfjár í Símanum og Vodafone á
fimm ára tímabili er aðeins 12 prósent
af eigin fénu árið 2009.
Arðgreiðslur hækka
Þegar fyrirtækin eru tekin saman
kemur í ljós ákveðin tilhneiging varð-
andi arðgreiðslur. Þær eru litlar sem
engar fyrstu árin og aðeins brot af
bættum hag fyrirtækjanna. Á árinu
2013 hafa fyrirtækin bætt eigið fjár-
stöðu sína svo að þau geta borgað
hluthöfum sínum arð. Arðgreiðslur
hafa farið vaxandi síðan þá og mið-
að við uppgjör fyrirtækja á síðustu
vikum munu arðgreiðslur aukast enn
meir á næstu misserum.
Að meðaltali nálgast samanlagð-
ar arðgreiðslur að vera helmingur
af bættum hag fyrirtækjanna, sem
hér eru skoðuð. Það er mun hærra
hlutfall en hjá kvótafyrirtækjunum.
Þar eru fyrirtækin oftar í eigu fárra
og það heyrir til undantekninga að
kvótafyrirtæki sé á almennum hluta-
bréfamarkjaði. Undantekningin er
HB Grandi og þar eru arðgreiðslur
um helmingur af bættum hag, svipað
og er raunin hjá fyrirtækjunum 24
sem hér eru til skoðunar.
Eigendur kvótafyrirtækja sjá sér
allt eins hag í því að geyma eign sína
í fyrirtækjunum eins og taka hana út
sem arð og greiða af henni skatta.
Aukinn arður á seinni árum
Aukið eigið fé og útgreiddur arður hjá stærstu fyrirtækjum landsins á
innanlandsmarkaði utan banka. Allar upphæðir í milljörðum króna.
Sjávarútvegurinn í sérflokki
Útgreiddur arður og aukning eigin fjár í fyrirtækjum frá 2009 til 2014 sem
hlutfall af eigin fé í árslok 2009.
-9,3
milljarðar
23
milljarðar 16,3
milljarðar
23,2
milljarðar
30,0
milljarðar
1,2
milljarðar
1,3
milljarðar
13,1
milljarður
17,4
milljarðar
28,7
milljarðar
Aukið
eigið fé
Útgreiddur
arður
2010 2011 2012 2013 2014
Sjávarútvegur
304%
73% Fyrirtæki á innanlandsmarkaði
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - o k t ó b e r
BARCELONA
17.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í
BERLÍN
9.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í & s e p t . - o k t .
BOSTON
18.999 kr.f rá *
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI,
GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
Gildir til
26. mars